Lesbók Morgunblaðsins - 08.03.1942, Qupperneq 10
42
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Saga eftir MAISE GRIEG:
Það byrjaði á
hárgreiðslustofu
KLIPPA hnakkann, svo að ekki
verði eftir nema smákrullur,
og svo djúpa bylgju á ská fram
undir gagnaugað! Jeg skal kalla
á eina stúlkuna hjerna, sem er
greidd svona, og þá getið þjer
sjálf séð, hvernig það lítur út,
ungfrú!
Adeleide Richardson samþykti
þetta með því að kinka kolli og
settist í einn silkifóðraða stólinn,
en madame Justine sigldi hátíð-
lega út úr stofunni til þess að ná
í Colleen Mumer.
Ein ástæðan til hins mikla geng
is, sem madame Justine naut í
New York fyrir snyrtistofu sína
var sú, að stúlkurnar, sem störf-
uðu hjá henni höfðu hver ein sín
einkenni.
Hárið á Dolores var eins og
hrafnsvængir niður með fögru,
fölu andlitinu, og glórauðu krull-
urnar á Peggy voru eins og haf-
rót kringum litla kringlótta kisu-
andlitið á henni.... Skiftavinirnir
hjá madame Justine þurftu ekki
að leita í tízkublöðum til þess að
finna fyrirmyndina, sem þeim
hæfði.... þeir þurftu ekki annað
en að líta á þessar laglegu stúlk-
ur, sem madame Justine hafði
valið til þess að afgreiða. Þar
mátti sjá hvernig hárið fór best
og hvemig hörundssnyrtingin
átti að vera.
Og af því að Colleen hafði sama
höfuðlagið og Adeleine Richard-
son.... og af því að platínuljósa
hárið á henni var af náttúrunnar
hendi með sama silfurbjarta lit-
'blænum, sem Adeleine hafði tek-
ist að ná á sitt hár með allskonar
efnablöndum.... með öðrum orð-
um: af því að Colleen var einmitt
þannig útlits eins og Adeleine
langaði til að vera, var henni fal-
ið að afgreiða hina ungu miljóna-
mæringsdóttur.
Þegar þessu var lokið opnaði
Colleen dyrnar fyrir hinum tigna
gesti .... og sá í svip löngu bif-
reiðina, sem beið eftir Adeleine
Richardson úti á götunni. Hún
andvarpaði er hún hugsaði til
safalakápunnar, sem hún hafði
fært Adeleine í áðan.... og svo
byrjaði hún á næstu greiðslu.
Ungfrú Richardson var sýni-
lega ánægð með andlitsfegrun
madame Justine, því að eftir
þessa fyrstu heimsókn kom hún
þangað oft. Á hverjum fimtudegi
kom bifreiðin fagra upp að dyr-
unum, og altaf • var það Colleen
sem afgreiddi. Adeleine fór blátt
áfram að þykja vænt um þessa
ungu stúlku, sem var svo hæ-
versk í framkomu og svipaði svo
mikið til hennar sjálfrar í útliti.
Þær töluðu mikið saman meðan
á afgreiðslunni stóð .... fyrst
um farða og smyrsl, síðar um
veðrið og síðustu kvikmyndina
.... og loksins um hann!
★
HANN hjet Bruce Gray og var
auðvitað yndislegasti mað-
ur í heimi .... auk þess var hann
teiknari hjá vikublöðum. En af
því, að hann hafði mjög sjálf-
stæðar skoðanir á list — skoðan-
ir, sem ritstjórarnir hans fjell-
ust ekki altaf á, var hann líka
annað .... nefnilega fátækur!
Nú er það svo, að fátæktin er
sitt hvað, eftir því hvaðan á hana
er litið. Bruce fanst sjálfum, að
eiginlega hefði hann nóg fyrir sig
að leggja, og líklega hefði Colleen
fundist, að hann væri nægilega
stöndugur til að reisa bú og gifta
sig; en í samanburði við miljónir
Richardson voru árstekjur Bruce
eins og krækiber í víti.
Adeleide hafði hitt Bruce hjá
vinafólki þeirra beggja, og þarna
hafði ástin blossað upp við fyrstu
sýn hjá þeim báðum.
— Ilann hefir ekki hlotið fulla
viðurkenningu ennþá! sagði Ade-
leide, meðan Colleen var að nudda
ilmandi smyrslum inn í andlitið á
henni. — En það kemur! Teikn-
ingarnar hans eru svo undursam-
legar .... annars var hann- ný-
lega að selja listatímariti nokkr-
ar af þeim. Æ .... bara að hægt
væri að koma vitinu fyrir hann
pabba! Hann mætti þakka fyrir
að eignast tilvonandi frægan
mann fyrir tengdason .... og
jafnvel stuðla að því, að hann
yrði frægur. Annars hefi jeg ekk-
ert að athuga við það að giftast
honum þó að hann sje bláfátæk-
ur. Það hlýtur að vera gaman
upp á vissan máta að vera fá-
tækur!
— Gaman! hváði Colleen.
— Já, hugsið þjer yður að eiga
svolítið smáhús, með 5—6 her-
bergjum. Og búa til matinn sjálf!
— Kunnið þjer að búa til mat?
skaut Colleen fram í.
— Já, jeg hefi lesið hitt og
annað um það í kvennasíðunni í
blöðunum. En annars gætum við
líka borðað á veitingahúsum!
Pabbi segir oft, að það sje miklu
ódýrara að kaupa matinn að til-
búinn, þegar við höfum sam-
kvæmi.
Colleen átti bágt -með að stilla
sig um að brosa að hugmyndum
ungfrúarinnar um mismuninn á
allsnægtum og fátækt.
*