Lesbók Morgunblaðsins - 15.02.1948, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 15.02.1948, Blaðsíða 6
82 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS er reglan um nauðsyn samkomulags tjáð hinum fimm föstu meðlimum Ör- yggisráðsins fast ákveðin og lögfest. Við vitum það allir, enda hefur þess verið ra^kilega getið hjer, að þessi rjettur stórv'eldanna fimm er til orð- inn eftir langvinnar og rækilegar um- ræður og samkomulags tilraunir á milli þeirra. Stórveldin æsktu þessa rjettar, og þeim var veittur hann í San Frarcisco. íslenska sendinefndin er þeirrar skoðunar, að þessi rjettur eigi við rök að styðjast, og að stór- veldunum beri hann, að minsta kosti þangað til, að Stofnun hinna Samein- uðu þjóða hefur náð meiri fótfestu og betra samkomulagi, og aukinn sk’ln- ingur hefur komist á milli stórveld- anna. Hinn háttvirti fulltrúi frá Ukraine hjelt því fram í gær, að þau ríki, sem hefðu mestar skyldur samkvæmt sátt- málanum, ættu að njóta einhverra forrjettinda. Jeg er honum samsinn- is. £að er fullkomlega eðlilegt og sanngjarnt, að þeim ríkjum, sem bera aðalábyrgðina á því, að friður og öryggi ráði í heiminum, beri einn- ig vald til að stöðva slíkar aðgjörðir, er gætu stofnað hvorttveggja í hættu og það mundi vera í fylsta máta ó- rjettmætt ef hópur smáþjóða gæti gjört tilraun til þess að neyða nokk- urt stórveldanna til hernaðaraðgjörða slíkra sem 7. kafli sáttmálans fjallar um. Samkvæmt 109. grein sáttmálans, er aðeins hægt að breyta neitunar- valdinu með því að kalla samán sjer- staka ráðstefnu hinna Sameinuðu þjóða í þeim tilgangi einum. Enn- fremur segir þar, að neitunarvaldinu verði því aðeins breytt, að öll stór- veldin sjeu því samþykk. Nú hefur að minsta kosti eitt stórveldi lýst því yfir, að það sje algjörlega andvígt nokkurri breytingu á neitunarvaldinu. Þetta er út af fyrir sig beiting á neit- unarvaldinu. Það er þessvegna alveg augljóst, að það er þýðingarlaust að kalla saman nokkra slíka ráðstefnu, og það mundi ekki leiða til neins ár- angurs. Af þessari sök mun íslenska sendinefndin greiða atkvæði á móti tillögu Argentínu um að kalla saman ráðstefnu til þess að fjalla um breyt- ingu á neitunarvaldinu. Hvað snertir beitingu neitunarvalds ins í Öryggisráðinu, þá getum við tek- ið undir ummæli ýmsra hjer, að of tíð beiting þess geti leitt til vandræða, og er síst til framdráttar málstað og virð ingu hinna Sameinuðu þjóða í heild. En engin breyting á neitunarvaldinu getur náð fram að ganga nema með samkomulagi hinna fimm stórvelda. Við verðum þessvegna að bíða með breytingu á þessum rjetti uns sú stund rennur upp, og við skulum vona, að hún sje ekki eins fjarri eins og virðast má í dag, að stórveldin hafi náð því stigi sáttfýsi og skilnings, sem eitt getur leitt til nokkurra breytinga á nokkru þýðingarmiklu ákvæði sátt- málans, og á nokkrum mikilsverðum starfsháttum hinna Sameinuðu þjóða. Aðeins sáttfýsi og aukinn skilningur í alþjóðamálum getur breytt forrjett- indum stórveldanna. Þessvegna álítur íslenska sendinefndin, að sú tillaga Bandaríkjanna að vísa þessum málum til bráðabirgðanefndar hinna Sam- einuðu þjóða sje, á þessu stigi máls- ins, ekki gagnleg, og muni ekki koma að notum. — Við munum þessvegna greiða atkvæði á móti henni. Hinsvegar getum við ekki sjeð, að það komi að neinni sök þó að þeir meðlimir hinna Sameinuðu þjóða, sem æskja breytinga á neitunarvaldinu ræði það sín á milli, og við munum því ekki greiða atkvæði gegn slíkri tillögu, heldur sitja hjá við atkvæða- greiðslu um þann hluta tillögu Banda- ríkjanna. Hið veigamesta atriði í tillögu Bandaríkjanna eru tilmælin til stór- veldanna um það, að þau sín á milli ræddust við um örðugleikana við at- kvæðagreiðslur í Öryggisráðinu, og að j^u reyni að ná samkomulagi sín á milli um ákvæðin er leiddu til þess, að Öryggisráðið yrði starfhæfara en áður. Við munum þessvegna greiða at kvæði með þeim hluta tillögunnar. Mjer þykir mjög sárt ef jeg hef valdið fulltrúa Póllands vonbrigðum vegna afstöðu okkar í þessu máli. ís- lenska sendinefndin hefur þá venju að greiða atkvæði eftir málsatvikum hverju sinni. Við lítum ekki á það hverjir bera fram tillögurnar, heldur á það eitt, hvað í þeim felst. Málefn- in ráða, það er, á þann öátt, sem við höfum rekið okkar lýðræði í síðast- liðin þúsurid ár, og það er sú eina regla, sem er í samræmi við þjóðlíf vort og lund. • Jeg tók eftir því, að margir fulltrú- anna gátu ekki stilt sig um að brosa, þegar fulltrúinn frá Póllandi — ein- mitt fulltrúinn frá Póllandi — fór að tala um fylgispekt. Þetta þarf þó engan að undra. Fulltrúinn frá Pól- landi hlýtur að vera sjerfræðingur í því atriði. ^ ^ V ^ Fallegur hattur Hún Jceypti sjer fallegan hatt •og setti hann upp undir eins, en Ijet setja gamla hattinn sinn í hattöskjuna. Svo gekk hún heim, háleit og ánœgö meö lífið. Maöurinn hennar opnaöi fyrir henni og kastaöi á hana kveðju, en gekk fcúo pegar aö vinnu sinni. Hann sá aö henni mislíkaöi þetta, svo hann sneri sjer aö henni og sagöi: — Jeg sje aö þú hefur fariö í búö og keypt þjer hatt. Blessuö lofaöu mjer aö sjá hann. Og svo tók frúin ofan nýa hattinn sinn, opnaöi öskjuna og setti upp gamla hattinn. Maöurinn hennar virti hana vandlega fyrir sjer og sagöi svo stórhrifinn: — Elskan mín, þetta er sá fallegasti hattur, sem jeg lief sjeö á ævi minni!

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.