Lesbók Morgunblaðsins - 14.09.1952, Síða 3
LESBÓK 'MORGUNBLAÐSINS
431
árum og er hann nú geymdur í
Þj óðmin j asaf ninu.
Sléttað hefur verið yfir kirkju
rústina og kirkjugarðinn að mestu,
en heimilisgrafreitur gerður þar.
öll leiði eru horfin nema eitt, leiði
séra Þorsteins Hjálmarsen, sem
var prestur þarna 1829—1871. Á
leiðinu hefur verið járnkross á
stórum fæti. Krossinn er nú brot-
inn, en fóturinn stendur á sínum
stað. Að þessu leiði hafa venð
dregnar tvær grafhellur, sem voru
í kirkjugarðinum. Önnur er gríðar-
stór, með lágmyndum í öllum horn-
um og þéttsett letri. Hefur hella
þessi verið á leiði Sæmundar prests
Oddssonar og er áletrunin á latínu.
Hin hellan er miklu minni, en á-
letrun hennar er einnig á latínu.
Hún hefur verið á leiði séra Ólafs
Jónssonar föðurbróður fræðimanns
ins séra Jóns Halldórssonar.
Hjá þessum legsteinum stendur
nú ferhyrndur grásteinn og vinstra
megin á framhlið hans er klöppuð
mannsmynd. Þetta er einn af hin-
um merku steinum úr kirkjunni,
og fylgir honum enn sú sögn, að
þetta sé mynd Hítar tröllkonu. Er
þetta einkennilegt, því að auðséð
er að myndin er af karlmanni með
alskegg, og ætti þá nöfnum að vera
ruglað og þetta myndin af Bárði
Snæfellsás.
Sjálfsagt hafa steinmyndirnar i
kirkjuveggnum verið af postulum
eða dýrlingum. En hvernig stendur
þá á því að þjóðtrúin gerir úr þeim
Hít og Bárð Snæfellsás? Gæti ekki
hugsazt, að eftir siðaskifti hafi
menn gert dýrlingunum þá van-
virðu af trúarlegu ofstæki, að gera
úr þeim tröll og velja þá einmitt
Bárð og Hít, vegna þess að þjóð-
trúin hafði bundið.nöfn þeirra við
sögu dalsins?
—--------
Við skulum nú skreppa upp að
Hundahelli, þar sem sagan segir
að Hít tröllkona hafi búið og þar
sem hún helt hina annáluðu jóla-
veizlu sem segir frá í Bárðar sögu:
„Hún bauð þar fyrstum Bárði
Snæfellsás og fór Gestur með hon-
um son hans og Þorkell skinnvefja.
Þangað var og boðið Guðrúnu
knapaekkju og Kálfi syni hennar.
Þangað var og boðið Surt af Hellis-
fitjum og Jóru úr Jórukleif. Sá
þurs var þangað boðinn er Kol-
björn hét; hann bvggði þann helli,
er stendur í Breiðdalsbotnum, en
það er í framanverðum Hrútafjarð-
ardal, þar sem grvnnir dalinn vest-
ur undir Sléttufelli. Kolbirni
fylgdu þeir Gani og Gljúfra-Geir,
er heima áttu í Hávagnúpi í Gnúps-
dal; Glámur og Ámur úr Miðffarð-
arnessbjörgum; þar var og Guð-
laugur úr Guðlaugshöfða.“
Eins og á þessu má sjá, hefur
þarna verið tröllaval mikið. Er svo
nánar skýrt frá því hvernig þeim
var skipað á bekki. „Voru þá borð
upp tekin og matur á borinn heldur
stórkostlegur. Drykkja var þar
mjög óstjórnleg, svo að allir urðu
þar ginntir." Síðan er sagt frá því
að tröllin fóru þarna í skinnaleik.
Vöfðu jötnarnir saman bjarndýrs-
féld og köstuðu á milli sín og varð
þar hinn harðasti aðgangur, því að
jötnarnir ruddust um fast.
Af þessari frásqgn mætti ætla að
húsakvnni Hítar hafi verið hin
stórkostlegustu, hellirinn geisivíð-
ur og hátt til lofts. Þess vegna
bregður okkur allmjög í brún þeg-
ar komið er út fvrir túngirðingu
og okkur er sýndur Hundahellir.
Þetta er þá ekki annað en dálítill
skúti og hvergi manngengur. Þak
skútans hefur fallið niður á einum
stað og er þgr gengið ofan í hann.
Má glögglega sjá, að hellirinn hefur
aldrei verið stærri en nú er honn,
það sýnir grjótið úr hvelfingunni
er niður fell, því að það liggur þar
í hrúgu.
Þjóðtrúin gerir dýrindis hallir úr
lélegum hreysum, glæsilegar álfa-
borgir úr úfnum hraunklettum, og
hér hefur hún gert úr þessum skúta
mikinn fjallasal, eitthvað á borð
við Dofrahöll.
—-5W —
Áður en við skiljumst algerlega
við sögu hinnar horfnu kirkju,
verður að geta þess, að hér hafa
margir merkir prestar verið.
Hér var séra Þórður Jónsson (d.
1670) mikill fróðleiksmaður. Hann
gerði þá landnámasamsteypu úr
Melabók og Skarðsárbók, sem síð-
an hefur verið við hann kénnd og
kölluð Þórðarbók.
Hér var Sæmundur Oddson
prestur 1671—1687. Hann var kom-
inn í móðurætt af Árna Gíslasyni
á Hlíðarenda. Er sagt að Jón bisk-
up Vigíússon hafi orkt eftir hann -
stef á latínu, og er það líklega graf-
skrift sú, sem er á hinni miklu
hellu, sem áður er frá sagt. Sæ-
mundur var talinn höfðingi mikill
í útlátum, en kona hans sárnísk.
Hann var prófastur og komst í það
að rannsaka guðlöstunarmál Hall-
dórs Finnbogasonar úr Borgarfirði
(hann var kallaður Grágunnuson).
Helt Sæmundur um það presta-,
stefnu í Svignaskarði 18. febr. 1685
og var þar úskurðað að Halldór
hefði framið hina mestu guðlöstun
og málinu vísað til Alþingis. Ög þá-
um sumarið var Halldór brenndur
á Þingvöllum.
Næstur eftir Sæmund helt Ólafur
Jónsson staðinn, en ekki nema 4
mánuði, því að þá andaðist hann.
Verður hans því ekki getið fyrir
röggsemi í prestsembætti, en hann.
hafði getið sér mikinn orðstír áður.
Ungur gerðist hann kennari við
Skálholtsskóla og gegndi því starfi,
í 8 ár. En þá var hann gerður að
skólameistara og gegndi því em-
bætti 21 ár (1667—1688). Var hann
talinn hálærður maður og meðal
hinna ágætustu skólameistara. Hjá.
honum lærðu biskuparnir Jón
Vídalín og Jón Árnason. Það er
k