Lesbók Morgunblaðsins - 05.12.1954, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 05.12.1954, Blaðsíða 11
W LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Hjördís Sævar, fyrsta ís- lenzka kon- an, sem gerist loft- skeytamað- ur á togara. manna ýmsa kjörgripi úr búi hans (þar á meðal bókasafn hans) til minn- ingar um foreldra sína (11.) Iðnaðarmannafélag Akureyrar átti 50 ára afmæli (26.) Umf. Kjartan Ólafsson í Mýrdal átti 40 árp afmæli (30.) FJÁRMÁL OG VIÐSKIFTI Viðskiptasamningur íslands og ítalíu, sá er gilt hefir að undanförnu, var framlengdur til júníloka 1955 (4.) Vöruskiftasamningur að upphæð 2 millj. dollara, var gerður við Austur- Þýzkaland. Meðal annars er samið um að Þjóðverjar kaupi 10 togarafarma af ísfiski fyrir ákveðið verð (4. og 5.) Innflutningsleyfi voru veitt fyrir 30 nýum vélbátum (14.) Fjárveitinganefnd Alþingis fór norður á Akureyri og athugaði þar ýmis mannvirki (18.) Vísitala framfærslukostnaðar var óbreytt, 159 stig. Kaupgjaldsvísitala hækkaði um eitt stig og er nú 149 stig (19.) Útflutningur í október nam 116.7 milljónum króna og er það met í mán- aðar útflutningi, og var um 20 millj. meira en innflutningur nam. Vöru- skiftajöfnuður 1. nóvember var óhag- stæður um 203.5 millj. kr. (20.) FRAMKVÆMDIR Lendingarstaður fyrir flugvélar var gerður í Gufudalssveit (4.) Baldvin Jónsson, Vegamótum, Sel- tjarnarnesi, hefir fundið upp dún- hreinsunarvél, sem er svo góð, að hon- um hefir borizt pöntun í hana frá Kanada (6.) Dýpkunarskipið Grettir átti að dýpka Rifshöfn, en varð að hætta við vegna þess að sandur hafði borizt inn í rennuna sem gerð var í sumar, svo að skipið komst ekki inn í höfn- ina (6.) Grundfirðingar hafa stofnað nýtt verslunar- og útgerðarfélag, sem heit- ir Grund h.f. (18.) Kapellu er verið að reisa handa varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli (18.) Bæarstjórn Reykjavíkur hefir á- kveðið að lúðrasveitir skuli stofnaðar í skólum bæarins (19.) Áburðarverksmiðjan framleiðir nú um 1600 tonn á mánuði, eða 100 tonn- um meira en ráð var fyrir gert að hún afkastaði (24.) Verið er að setja á fót fullkomna glerverksmiðju í Reykjavík (17.) Hin fyrsta íslenzka flugratsjá var tekin í notkun á Akureyri (18.) 767 Leirböð til lækninga byrjuðu í Skíða- skálanum í Hveradölum (28.) MENN OG MÁLEFNI Áfengisvarnaráð opnaði skrifstofu í Reykjavík (3.) Eiríkur Pálsson var skipaður skatt- stjóri í Hafnarfirði (4.) Birgir Kjaran var endurkosinn for- maður landsmálafélagsins Varðar í Reykjavík (4.) Jón Mathiesen var kosinn formaður landsmálafélagsins Fram í Hafnarfirði (11.) Björn Jóhannsson í Hafnarfirði var kosinn yfirskoðunarmaður ríkisreikn- inganna 1953 (12.) Gunnar Gunnarsson skáld flutti merkilegt erindi um vestræna menn- ingu og kommúnisma, og var ekki um annað meira rætt í höfuðborginni í þessum mánuði (16.) Þing Bandalags starfsmanna ríkis og bæa var háð í Reykjavík. Ólafur Björnsson prófessor var endurkosinn forseti sambandsins (17.) Nær 100 manns lærði svifflug á æf- ingastöðinni á Sandskeiði í sumar (18.) Minnisvarði um séra Bjarna Þor- steinsson og konu hans var afhjúpað- ur í Hvanneyrarkirkjugarði á Siglu- firði (19.) Listdanssýningar hófust í Þjóðleik- húsinu. Var þar meðal annars sýnt ævintýrið Dimmalimm kóngsdóttir eft- ir Guðmund Thorsteinsson listmálara Minnismerki séra Bjarna Þorsteins- sonar og konu hans.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.