Lesbók Morgunblaðsins - 17.06.1956, Qupperneq 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
333
Frá opinberu heim-
sókninni í Þýzka-
landi: Adenauer
kanslari, Ólafur
Thors forsætisráíf-
herra, Theodor Heuss
forseti Þýzkalands.
12. Karen ísaksdóttir frá Grenjaðar-
stað.
13. Sigríður Steinsdóttir ljósmóðir,
Minnahofi, Rangárvöllum.
15. Þórhallur Jónasson stýrimaður,
Reykjavík.
18. Þorsteinn Guðmundsson klæðskeri,
Isafirði.
19. Einar Kristinn Guðmundsson,
múrari, Reykjavík.
19. Magnús Jóhannesson verkstjóri,
Haínarfirði.
26. Kristinn Kristinsson bakari,,
Reykjavík.
28. Margrét Jónsdóttir kennslukona
frá Spónsgerði.
SLYSFARIR
Vb. Grímur frá Húsavík var mjög
hætt kominn við Tjörnes. Bilaði vélin
og ralc hann upp í brimgarð undir
háum klettum. Annan vélbát, Helga
Flóventson bar þar að og tókst honum
með snarræði að bjarga Grími út úr
brimskaflinum (12).
Enskur togari sigldi á strandferða-
skipið Herðubreið við bryggju í
Neskaupslað og laskaði það mikið
(16.)
Þriggja ára telpa datt út um glugga
á fjórðu hæð í Reykjavík og beið
bana (30. og 31.)
BÍLSLYS
Fjögurra ára telpa varð fyrir bíl í
Reykjavík og meiddist lífshættulega
(1.)
Bíll fór út af veginum hjá Brekk-
um í Holtum og valt þar ofan í gil.
Stúlka, sem var farþegi í honum slas-
aðist mikið á höfði (3.)
Bílaárekstrar í Reykjavík hafa orð-
ið um 200 fleiri á þessu ári heldur en
á sama tíma í fyrra (23.) Lögreglan
tók marga menn, sem voru ölvaðir við
akstur.
ELDSVOÐAR
Brann fiskimjölsverksmiðja í Grinda-
vík, en mjölgeymslu hennar tókst að
bjarga. Varð þarna mikið tjón 6.)
Garðhús brann í Kringlumýri í Rvík
og er ekki vitað um eldsupptök (10.)
íbúðarhúsið á Lágu Kotey í Meðal-
landi brann til kaldra kola. Húsið var
autt vegna ábúandaskipta (24.)
Brann ibúðarhúsið a* Uppsölum í
Miðfirði til kaldra kola, Einnig kvikn-
aði í fjósi og fjárhúsi, en þeim húsum
tókst að bjarga lítið skemmdum (30.)
ÍÞRÓTTIR
Sigurður Sigurðsson frá Akranesi
setti nýtt íslandsmet í 500 metra
bringusundi í sundkeppni á Akureyri
(9.)
Á ínnanfélagsmóti ÍR og Ægis voru
sett fjögur íslenzk met í sundi: Sig-
ríður Sigurbjömsdóttir i 50 m flug-
sundi, sveit Ármanns í 4x100 m bringu-
sundi, Helgi Sigurðsson í 500 m skrið-
sundi og Ágústa Þorsteinsdóttir í 200
m skriðsundi (15.)
Knattspyrnufélagið Valur átti 45 ára
afmæli (17.)
Íslandsglíman var háð i Reykjavík
og varð Ármann J. Lárusson glimu-
kóngur. Nú voru 50 ár liðin síðan fyrst
var glímt um Grettisbeltið og hö 3u
18 menn unnið það á þessum tíma,
og eru þeir allir á lífi, nema Sigurjón
Pétursson (18. og 19.)
Skákþingi Islendinga lauk með því,
að Ingi R. Jóhannsson varð íslands
meistari. Hann er nú 19 ára (23.)
Úrvalslið knattspyrnumanna írá
Vestur Berlín kom hingað tii þess að