Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1960, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1960, Qupperneq 10
334 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS tslandshús i Hull, reist fyrir íslenzkt sam- skotafé ur, kosinn formaður Æskulýðssam- bands íslands (5.) Jón E. Ágústsson endurkosinn for- maður Málarameistarafélags Reykja- víkur (6.) Lúðvík Hjálmtýsson éndurkosinn formaður Sambands veitinga- og gisti- húseigenda (10.) Sveinn B. Valfells endurkosinn for- maður Félags ísl. iðnrekenda (10.) Langholtssöfnuður lagði 1 millj. kr. í kirkjubyggingu á sl. ári. Helgi Þor- láksson endurkosinn formaður safnað- arnefndar (11.) Gunnar Friðriksson, framkvæmda- stjóri, var kosinn forseti Slysavarnar- félags íslands (12.) Tuttugu Lions-klúbbar eru starfandi á íslandi. Umdæmisstj. er Árni Kristj- jánsson, framkvæmdastjóri (14.) Stefán Júlíusson kosinn formaður Félags íslenzkra rithöfunda (18.) Kjartan Thors endurkosinn formaður Vinnuveitendasambands íslands (21). Valdimar Ólafsson kosinn formaður Félags flugumferðarstjóra (22.) Richard Thors var kosinn formaður Sambands íslenzkra fiskframleiðenda (31.) AFMÆLI Ungmennasamband Skagafjarðar 50 ára (5.) Helgi Hermann Eiríksson, fyrrv. skólastjóri og bankastjóri, varð 70 ára 3. maí (6.) Forseti íslands, herra Ásgeir As- geirsson, varð 66 ára 13. maí. Hjálpræðisherinn á íslandi 65 ára (18.) 200 ár-frá stofnun fyrsta apóteks hér á landi (19.) Garðyrkjufélag íslands varð 75 ára 26. maí (26.) 30 ár eru síðan Austurbæarbarna- skólinn tók til starfa (28.) Tímaritið Eimreiðin 65 ára. Ingólfur Kristjánsson tekur við ritstjórn ritsins (28.) ÝMISLEGT Fyrsti brezki togarinn leitaði hafnar hér á landi frá því fiskveiðitakmörkin voru færð út í 12 mílur (1.) Lélegur íslenzkur togarafiskur vek- ur athygli í Hull og Grimsby (4.) Samkvæmt sumaráætlun Flugfélags íslands verður innanlandsflugið aukið nokkuð (5.) Kaupmenn óánægðir með lækkaða álagningu (5.) Niðurgreiðsla neyzluvara áætluð 287,4 millj. kr. á þessu ári (5.) Útsvör í Hafnarfirði áætluð 17,3 millj. kr. (5.) Hitaveitugjöld hækka í sama hlut- falli og olía til upphitunar húsa (6.) Þá hækka og strætisvagnagjöld vegna hækkunar á reksturskostnaði (6.) Ákveðið hefir verið að gamla „Hótel Hekla“ skuli rifin (6.) 10. maí voru liðin 20 ár frá hernámi íslands (10.) Hagnaður varð af utanlandsflugi Flugfélags íslands sl. ár, en tap af inn- anlandsflugi (10.) Björn Pálsson, flugmaður, hefir flutt 1000 sjúklinga í sjúkraflugvél sinni (10.) Lögreglan hefir óskað eftir því við kennara, að þeir starfi í lögreglunni yfir sumarmánuðina (11.) Stærsta tjónið, sem Samvinnutrygg- ingar greiddu sl. ár nam rúml. 14 millj. kr. (12.) Aðfaranótt 10. maí var Elíasi Hólm, Bergstaðastræti 19, misþyrmt í svefni (12.) t Sparifjáraukning í bönkunum var meiri í apríl-mánuði en nokkrum öðr- um mánuði fram til þessa (13.) Efnt var til fyrsta sjóstangaveiði- mótsins hér á landi með þátttöku 50— 60 útlendinga. Gert var út frá Vest- manneyum (14. og 20. Hörgull er mikill á fólki til sveita- starfa. Um 200 færri útlendingar koma í ár en í fyrra (14.) Smyglað áfengi fannst í Jökulfelli (17.) Vísitala framfærslukostnaðar reynd- ist 105 stig (20.) Uppvíst er orðið, að 80 þús. dollarar af innstæðura Olíufélagsins hf. í

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.