Lesbók Morgunblaðsins - 23.05.1965, Page 2
Snemma á þessu ári bárust
þau tíðindi frá Haítí, að ein-
ræðisherra landsins, dr. Fi ancois
Duvalier, sem kallaði sig forseta,
hefði útnefnt sjálfan sig keisara.
Duvalier hefur setið að völdum síð-
an 1957 og kornið á einni mestu ógn-
arstjórn, sem nú er við lýði, í því
ríki Ameríku sem verst er á vegi
statt efnahagslega og siðferðilega.
Haítí er vestari og frjósamari hluti
eyjarinnar Hispaniola í .Karíbahafi
(austurhlutinn er Dóminíska lýð-
veldið). Haítí er að flatarmáli á
stærð við Wales og landslag ekki ó-
svipað. Þar búa á að gizka 4 milljón-
ir manna, en reglulegt manntal hef-
ur aldrei farið þar fram.
Meginhluti Haítí-búa dregur fram
lífið á íandbúnaði; útflutningur er
sáralítill og hefur dregizt mjög sam-
an síðustu árin. Meira en 90% íbú-
anna eru ólæsir og óskrifandi. Jafn-
vel í höfuðborginni, Port-au-Prince
(íbúar 250.000), sem er hrörleg á-
sýndum þegar kemur út fyrir hinar'
fáu aðalgötur í miðborginni, búa
íbúarnir í hreysum og kofaskriflum
og eru algerlega ómenntaðir.
Hin opinbera tunga ríkisins er franska
en langflestir Haítí-búar tala einhvers
konar blending af mállýzkum frá Norð-
ur-Frakklandi og Afríku. Hreina
frönsku tala einungis menntamenn og
embættismenn, en menntamönnum hef-
ur farið hríðfækkandi í landinu siðustu
árin vegna vaxandi ofbeldishneigðar og
gerræðis Duvaiiers og nánustu fylgis-
manna hans. Sem dæmi má nefna, að
nú starfa fleiri læknar frá Haítí í Frakk
landi og Bandaríkjunum en í heima-
landinu.
D uvalier, sem oft er nefndur
„Papa Doc“, er blökkumaður í húð og
hár. Hann ólst upp i Fort-au-Prince í
miðstéttafjölskyldu, var námfús ungling
ur en eignaðist fáa vini. Hann lagði
stund á læknisfræði og mannfræði í há-
skóla, en réðst síðan til heilbrigðisstjórn
arinnar á Haítí. Starfaði hann að lækn-
ingum úti á landsbyggðinni, þar sem
hann hlaut viðurnefnið „Papa Doc“.
Hann þótti duglegur læknir, ljúfmann-
legur í framkomu, föðurlegur, en nokk-
uð viðutan. Hann átti þátt í að stofna
námsflokkinn „Les Griots", sem hafði
að markmiði að vekja þjóðernistilfinn-
ingu blökkumanna, m.a. með frumstæð-
um og dularfullum helgiathöfnum. Þessi
hópur beitti sér fyrir andstöðu gegn
ráðamönnum landsins, sem voru litill
og vellauðugur minnihluti kynblend-
inga, og gegn áhrifum fransk-mennt-
aðra rithöfunda og listamanna á menn-
ingarlífið.
Duvalier hóf afskipti af stjórnmálum
. sem fylgismaður hins látna flokksfor-
ingja Dumarsais Estimés, sem taldi sig
vera talsmann og leiðtoga hinna hrein-
ræktuðu blökkumanna. Þegar Paul E-
Magloire hershöfðingi náði völdum
taldi Duvalier heppilegast að fara í fel-
ur, en árið eftir fall hershöfðingjans
varð hann hlutskarpastur þeirra stjórn-
málamanna sem bitust um völdin og
sviku hver annan eftir nótum. Yfirmað-
ur herforingjaklíkunnar, Antonio Kehr-
eau hershöfðingi, studdi Duvalier sem
sigraði í forsetakosningunu-m 1957, en
þær eru almennt taldar hafa verið fals-
aðar.
JLfuvalier hóf stjórnmálaferil sinn
sem menntamaður og átti í upphafi vís-
an stuðning menntaðra blökkumanna,
en hann hefur smám saman rofið öll
tengsl við fyrrverandi samherja sína og
ofsótt marga þeirra. Nú er svo komið,
að varla er að finna einn einasta mennt
aðan negra í þjónustu hans. í stað þeirra
hefur hann safnað um sig hópi trúnaðar-
manna úr lægri stéttunum, sem hafa
liíla eða alls enga menntun. Þar við
bætist, að hann hefur í sífellt ríkari
mæli lagt stund á galdralækningar og
galdrakukl, en þá íðju hóf hann strax
í upphafi stjórnmálabaráttunnar til að
vinna á sitt band hina frumstæðu og
hjátrúarfullu bændur landsins. í raun-
inni er- Duvalier algerlega einangraður
maður. Þegar frá eru talin kona hans,
sonur og þrjár dætur, á hann enga trún-
aðarvini, einungis skutilsveina og þræla.
Kennari Duvaliers í læknaskólanum
hefur sagt sögu sem varpar skýru ljósi
á skapgerð einræðisherrans. Á skólaár-
unum deildi hann herbergi með öðrum
læknastúdenti og féll vel á með þeim.
Dag nokkurn kom bóndi úr nágrenninu
og sagði honura eitthvað miður fallegt
um herbergisfélagann. Án þess að kanna
málið nánar eða spyrja herbergisnaut-
inn um málsatvik tók Duvalier saman
pjönkur sínar, flutti úr herberginu og
talaði aldrei framar við hinn stúdentinn.
„Hann heldur að enginn, sem er minna
menntaður en hann sjálfur, geti blekkt
hann; þess vegna trúir hann þeim,“
sagði kennarinn. „Og nú er svo komið
að hann hefur einungis ómenntað fólk
í kringum sig.“
E inangrun Duvaliers veldur því,
að margt sem sagt er um hann verður
hvorki sannreynt né afsannað. Menn
eru t.d. ekki á einu máli um, hvort hann
raunverulega stundi galdrakukl sjálfur
eða hvort hann ýti einungis undir þá
trú að hann geri það, til að vekja lotn-
ingu og ótta þegna sinna. Margir sem
átt hafa tal við hann efast um að hann
sé heill á geðsmunum. Læknir sem hef-
ur þekkt hann um alllangt skeið held-
ur því blákalt fram, að hann sýni ým-
is einkenni geðveilu. Hann minnist þess
að eitt sinn ræddu þeir saman um heilsu
vernd, og þá gat Duvalier þess eins og
ax hendingu, að nóttina áður hefði hann
einmitt rætt sömu vandamál við Ilenri
Christophe (1767-1820), þrælinn er
gerði uppreisn gegn Frökkum, ríkti sem
keisari með mikilli viðhöfn í norður-
hluta landsins og réð sér loks bana.
Með því að gera sjálfan sig að keisara
fyrr á þessu ári var Duvalier eflaust að
minna Haítí-búa á þessa frægu sögu-
hetju. Hann náði völdum eftir að þræl-
unura hafði verið gefið frelsi og hin
svarta hetja þeirra, Toussaint E’Over-
ture, hafði hrakið Frakka úr landi.
Fram að þeim tíma hafði Haítí verið
„stærsti gimsteinninn í frönsku krún-
unni“. En það voru einungis frönsku
sykurplantekrueigendurnir sem þrifust.
Þeir lifðu í vellystingum praktuglega á
kostnað hins ódýra vinnuafls, þrælanna,
sem sættu verstu meðferð. Bylting
Haítí-búa átti rætur að rekja til frönsku
stjórnarbyltingarinnar. Hún er blóðug-
asta en jafnframt athyglisverðasta skeið
ið í sögu þjóðarinnar, því Haítí varð
fyrsta frjálsa blökkumannariki heims.
En fljótt seig á ógæfuhliðina. Hið nýja
negraríki staðnaði og mannvíg voru tíð.
Forsetar tóku við hver af öðrum með
örskömmum millibilum. Þeir voru ýmist
framtakslitlir menntamenn eða heimskir
og óhæfir herforingjar. Þjóðin sökk ae
dýpra í niðurlæginguna.
-A. árunum 1915-1934 var landið
undir stjórn bandaríska sjóhersins, en
hann lét sér nægja að halda uppi lögum
og reglu. Framfarir urðu litlar sem eng-
ar. Þegar yfirráðum Bandaríkjamanna
lauk var þjóðarstolti íbúanna fullnægt,
en fátt hefur breytzt síðan. Eftir að Du-
valier tók við völdum hefur hrein ógn-
arstjórn ríkt í landinu. Óánægjuraddir
og andstöðu hefur hann bælt niður með
fádæma hörku. Til þess notar hann eins
konar lögreglusveitir, sem skipaðar eru
einvalaliði þorpara og fanta. Þeir hafa
víðtækt umboð til að lumbra á lands-
mönnum, féfletta þá, ræna, drepa eða
limlesta. Sjálfur hefur Duvalier um sig
500 manna lifvörð.
„Lögreglusveitirnar". sem nefndar eru
Stóru Tontónar (í höfuðið á eins konar
Bola í þjóðsögum Haítíbúa), eru snar
þáttur í opinberu lífi Haítí því í þeim
eru ekki einungis „löggæzlumenn", held
ur einnig pólitískir ævintýramenn og
arðræningjar. Þessir menn geta hvenær
sem þeim þóknast ráðizt inn á heimili
manna, handtekið þá eða pyndað án
nokkurs tilefnis. Duvalier keisari, sem
gortar af því að hann þekki þepna
sína, álítur greinilega að handahófs-
kennd ógnarstjórn eigi betur við þá en
skipulögð harðstjórn. Kannski er það
þess vegna sem margar svæsnustu sög-
urnar um grimmdaræði Tontónanna
eiga upptök sín í keisaralhöllinni. Það
er svo til daglegur viðburður að menn
séu skotnir á almannafæri og líkin síð-
an höfð til sýnis, íbúunum til viðvörun-
ar.
D uvalier byggir völd sín á Tont-
ónunum og 8000 manna þjóðvarnaliði.
Þessir aðilar halda íbúunum í stöðugum
ótta, en bæði Tontónarnir og þjóðvarn-
aliðið láta stjórnast af innbyrðis ótta
og skefjalausri græðgi. Duvalier þolir
Framhald á bls. 14.
Framkv.stj.: Sigíus Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vicur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arnl Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Utgefandi: H.f. Arvakur, Reykjavfk.
19. tbl. 1965
2 LESBÓK MORGUNBLAÐ SINS