Lesbók Morgunblaðsins - 07.07.1968, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 07.07.1968, Blaðsíða 5
Vissulega kemur okkur Hjalta Geir Kristjánssyni, framkvæmdastjóra, sam- an um, að fyrirtæki föður hans Krist- jáns Siggeirssonar, þurfi vart að kynna gamalgrónum Reykvíkingum, svo Lengi hefur vierzLunin við Laugaveg verið snar 'þáttur í umhverfi og átthögum bæjar- búa. En alltaf er að vaxa upp nýtt fólk og raunar hefur fyrirtæki Kristjáns Siggeirssonar tekið allmiklum stakka- skiptum frá stofnun þess fyrir tæpum fimm áratugum — það er eitt þeirra fyr irtækja, sem staðið hafa af sér mikla umbrotatíma og vaxið og eflzt með ár- unum. Og það eru ekki aðeins húsgögn- in, sem vekja athygli okkar, þegar geng ið er inn í verzlunina — þar er líka Listlðnaður hvers konar á boðsttófliufm, fag urlega unnir trémunir, finnskur krist- all auk íslenzkra leirmuna. En þótt margt hér gleðji augað, þá var erindi blaðamanns fyrst og fremst að inna framkvæmdastjórann sagna um sögu fyrirtækisins og starfsemi þá, er 'þar fer fram. — Faðir minn stofnaði fyTÍrtækið ár- ið 1919, segir Hjalti Geir, og byrjaði að vísu smátt. í upphafi verzlaði hann miest með innflut't húsgögn frá Danmörku, Svíþjóð og Þýzkalandi, en hann hóf framleiðslu á húsgögnum sjálfur, þegar fór að gæta gjaldeyrisvandræða og innflutningshafta. Fyrirtæki hans varð brátt leiðandi á þessu sviði, starfsemi jókst smám saman, það var byggt við verkstæðið gamla og ný verkstæði byggð. Upphaflega unnu 5-10 manns við fyrirtækið, en nú starfa hér um 40, og af þeim vinna 30 við sjálfa framleiðsluna. Fyrir um það bil þrem árum ffliuátuim við í nýtt húsnæði mieð framteiðsluna, sem er 2100 fermetr- ar að sbærð og fengum Sænsku hagræðingastöfnunina til að endiurskiipu- leggja framleiðslufyrirkomulagið sam- tímis sem við fluttum í hið nýja hús- næði, í því skyni að fá meiri afköst út úr hverjuim manni með þeim árangri að nú, eftir að við fluttum á nýja verk- stæðið, skilar hver maður þriðjungi meiri afköstum en áður, og í mörgum tilfellum mun meiri. Framleiðsluhættir gerbrieyttuist við þetta nýja fynirkomiu- lag. Það var að vísu skýrt frá þessari breytingu á sínum tíma í blöðum, en aðalbreytingin var fólgin í því að sér- hæfing jókst. Áður smíðaði sami smið- urinn hlutinn allan, fylgdi honum eft- ir þar til hann stóð fullgerður. Núna er þessu öllu skipt niður, hver maður vinnur vissan hluta úr stykkinu. Undir búningsvinna verður því að vera miklu nákvæmari en áður, því að allt verður þetta að passa saman og þessu fylgir auðvitað aukin vélvæðing líka. — Kostuðu þessar umbætur ekki geysilegt fé? — Jú, það gerðu þær auðvitað, en við höfum með þessu móti getað haldið verði á húsgögnum stöðugu, úr því ár- angur af þessum úrbótum var svona já- kvæður. — Veistu dæmi þess, að önnur fyrir- tæki hafi keypt aðstoð sérfræðinga í vinnuhagræðingu? — Ég held, að það fari vaxandi, að fyrirtæki hérlendis notfæri sér sérfræð inga í vinnuhagræðingu. Hins vegar gerði það okkur breýtinguna mun hag- stæðari, að við fluttum samtímis í alveg nýtt húsnæði. En erlendis er slík að- stoð sérfræðinga talin alveg sjálfsagð- ur hlutur. — Er nokkur sérstök gerð húsgagna sem þið teggið aðalláherzlu á að fram- leiða? — Framleiðslan hjá okkur er ákaf- lega blönduð og 'það er vissulega að sumu leyti til óhagræðis í sambandi við Framnlhald ábls. 13 TILHJVEKam/ AÐ ItL t XItt GtímLM OG NYíJlM STÍL Segir Hjalti Ceir Kristjánsson, húsgagnaarkitekt Hjalti Geir skoðar teikningar og hluta af nýjum stól. ásamt Erlendi Jóhannssyni, einum eizta starfsmanni fyrirtækisins, og Hafsteini Ágústssyni, sem hefur nýlokið húsgagnasmíðanámi. Nýar hillu og skápasamstæður, sem Hjalti Geir hefur teiknað og fyrirtækið framleiðir. Hluti af hillu- og skápasamstæðu. 7. júlí 1968 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.