Lesbók Morgunblaðsins - 29.12.1972, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 29.12.1972, Blaðsíða 9
texfcair I aMs tecm'ar teiir'kjiutóinilist. Eitthvert mjög virðulegt tón listarþing var haldið í London ekki íyrir löngu og þar sam- þykkt áskorun á allan kaþólsk an almenning — að fella ekki latínuna alveg úr messunni. Því að ef fólk hœtti að skilja þessa latnesku texta, þá yrði þröngt fyrir dyrum um skiln- ing á ýan-iuim helztiu tcinvieirkum vexaWar. Þó að imiaður sé ekki latínulærður, þá eru þýðingar í messubókum almennings og engum er ofvaxið að læra t.d. að Credo in unum Deum — þýðir: Ég trúi á einn Guð. — Þá er þess að geta hve latín an hefir verið mikið sam- einingartákn fyrir hina al- mennu heimskirkju. Hvar sem farið er um kaþólsk lönd, hef- ir til skamms tíma verið eins og að koma heim til sín, þeg- ar gengið er í kaþólska kirkju og hlýtt á kunnuglega latneska helgitexta. Hinn forni siður vor Islend- inga verður nærstaddur í sál- inni þegar hlýtt er sömu text- unum, sungnum á sömu tungu og þeir Isleifur Gissurarson, Þorlákur og Jón helgi kváðu yifir forfeðruim vor.um endur fyrir löngu. Að mínu áliti er algert afnám latneskrar messu óþurftarverk. Þegar dvalið er á slík- um stað sem Mellerayklaustri, gefuir auga 'leið að þar er gott tækifæri til að íhuga dauð ann, dómsdag og annað líf og athuga ástand sálar sinnar og tilgang lífsins. Sumir gestanna héldu þarna hugleiðingaviku með meira helgihaldi en aðrir gestir. Þeir sátu á tali við hina vígðu feður, ræddu við þá vandamál sín ýmisleg og þáðu góð ráð og leiðbeiningar. 1 lok þessa yfirbótartíma þágu gestir helgar skriftir og tóku aflausn hjá presti. Slíkar and- fegar liðkainir eru með íinum o'g öðrum kaþólskum þjóðum sjálf sagðir og eðlilegir hlutir, al- veg hliðstætt við hvað okkur hér á landi þykir sjálfsagt að leita læknis við líkamsmein- um. Árangur af þessum siðum kaþólskra manna er meðal annars sá að færri sjálfsmorð eru framin í kaþólskum lönd- um en viðast hvar annars stað- ar. — Ég 'sat oft á 'tali við imunk ana. Þeir voru einstaklega við- ræðugóðir og vissu þó nokkuð um Island. Þeir höfðu mikinn áhuga á fréttum héðan. Auðvit að töluðu þeir um skákeinvig- ið. Það gerði líka hver ein- asta manneskja, hvar sem ég fór. Munkarnir spurðu líka margs um landhelgismálið. Þeir héldu auðvitað með Islending- um. Það gerðu allir Irar sem ég hitti og oft voru greinar um landhelgisdeiluna í írskum blöðum, allar skrifaðar Islend- ingum í vil. írar eru sem kunn- ugt er langþreyttir á nábýlinu við Bretann, að ekki sé meira sagt. Munkarnir voru furðu vel heima um sjálfstæðisbaráttu íslendinga og vissu nokk- uð um forna sögu okkar fyrir siðaskipti. Þeir vildu fræðast um trúbræður sina kaþólska á Islandi og furðuðu sig á að ekki skyldi vera búið að skipa hér kaþólskan biskup af ís- lenzíkiu þjóðeT'ni,. úr þvi að hér byggju lærðir kaþólskir prest- air ísfenzikir. Endaði isiaimtaJdð um ástand hins forna siðar á íslandi með því að við hétum í 'Siaimeiningu á hi'nn heilaga Kól- luimt'a o'g ibiless'aðain Jón brak- up Arason að íslendingar fengju innlendan kaþólsk- an biskup við fyrsta tækifæri. Heiti sumra munkanna voru skemmtileg og komu manni kunnuglega fyrir. Ábótinn heit ir John Hennesy. Datt mér þá í hug koníak með þessu nafni, sem frægt er úr Alþingisrím- um og spurði hví ábóti héti svo. Var svarað að Hennesy- ættin væri írsk en grein þeirr- ar ættar fluttist fyrir löngu til Frakklands og stundaði þar vínyrkju. Ábótinn er írskur Hennesy. Þá heitir príor klaustursins Kólumba. Það nafn minnir á Landnáma- bók. — Örlygur hinn gamli byggði á Esjubergi á Kjalarnesi. Þar reisti hann kirkju og helgaði hana Kól- umba. Gripir úr henni, járn- klukka og plenaríum voru enn til á biskupsárúm Staða-Árna. Niðjar Örlygs, Esbergingar, trúðu á Kólumba, þó að þeir væru óskírðir. Þá heitir einn merkisklerk- ur þarna faðir Kilian. Hann vissi vel um hinn fræga nafna sinn á Islandi. Ég gat sagt föð- ur Kilian að Halldór Laxness hefði á yngri árum skrifað ein stæða bðk í ís'lienz'k'um bó'k- menntum, þar sem lýst er and- leguim viðbrögðuim nútima ís- lendings, sem gerist kaþólskur. Var þar átt við Vefar- ann mikla frá Kasmír. Sömu- leiðis að Halldór Laxness bæri á ýmsan hátt þess merki í rit- iitm islinuim að hann hefð'i kynnt sér kaþólska trú og menningu, — og að 'viisisu feyti hefði hanin orðið mér andlegur leiðtogi í kaþólskum fræðum, — og hefði vel diugað. F'öðu.r Kilia.n þótbu þetta góðar fréttir. Veðurlag var milt þessa dval ardaga, þótt talið sé að ágúst sé einna miestuir iriigniingaimáin- uður á Irlandi. Oftast skein sól í heiði og loftið var hreint og tært og skyggni ágætt. Gestirnir dvöldu mestan hlu'ta daigs 'aininaðlhviorit í klaustrinu eða þá gengu um skrúðgarðana. Margar setustof ur voru í klaustrinu og ein þeirra ætluð sem lesstofa fyrir konur. Þar voru góðir stólar og bókaskápur allmyndarleg- ur, troðfullur af kaþólskum bókum. — Bænakver og Bona- ventura og Biblían helga, allt er hér borðinu á, — allt er ég búinn með það. — Sagði Gröndal I Kevelaerklaustri forðum. En það var langt í frá að ég gæti lesið allt þetta safn bóka úr öðrum menningarheimi en hér 'á landi 'ræður. Þvi varð að láta sér nægja að skrifa hjá sér bókartitla og forlag, ef seinna tækist að komast yfir þessi forvitnilegu fræði. Biblí- an var ensk útgáfa frá þvi um 1830, gyllt í sniðum og i al- skinni. Varð ég satt að segja hálfhissa á að þvílíkt dýrindi 'skyldi 'látið 'liiggj'a fyrir gesti og gangandi. En kannski eru enskar biblíur ekki eins verð- mætar og isteinzkar, — eða þá að hér birtist enn ein fögur hlið á einlægri gestrisni þess- ara merkilegu manna. Annan sunnudaginn þarna var ég kölluð inn í aðra dag- stofu, þar sem fyrir voru nokkrar konur og unglingar. Ein ung kona þarna var nunna í inýtízku 'reigiiubúTOnigi, sem er með pilsasidd um hnéð, blá- grátt pils og hvít blússa og blár höfuðdúkur, snotur bún- ingur. Þarna kom lika Tadde- us gestafaðir og hafði ,með sér fiðluna sína. Faðir Jóan hinn ungi kom með plötuspilara og lék fyrir okkur poppmessur, sálmasöng með gítarundirspili og ýmislegt sem Irar eru að gera tilraunir með í endurnýj- un helgisöngsins. Var þá ýmist sungið á írsku, ensku eða lat- ínu. Mikið af þessari tónlist minnti á þjóðlög. Þá var farið að tala um pré- dikunina frá því um morgun- inn. Heilagur Bernhard frá Clairvaux átti daginn. Ræðu- textinn var úr Spekinnar bók, eitthvað á þessa leið: Hinn réttláti fer snemma á fætur að leita spekinnar og mun enga fyrirhöfn hafa, þvi hann finn- ur hana sitjandi við sínar hús- dyr. Það áreiðanlegastá upp- haf hennar er löngun eft- ir uppfræðingu, en viðleitni að fræðast er elska. Þegar búið var að spjalla dálítið um prédikunina tók fað ir Taddeus fiðluna og fór að spila írskan þjóðdans. Gengu iþá 'unglm.ganniir hver á ifæbur öðrum fram á gólfið og döns- uðu eindans til skiptis. Jafn- vel nunnan unga tók sporið og dansaði af mikilli fimi. Hún var þarna í fríi en starfaði ann- aris auður d G'hana. Þegar dains inn hætti, stóð faðir Jóan á fætuir og söng iljóð á ínsiku. Var iaif Iþessu öíl'u hiin bazta iskem'mtun, — svo Biam seg- ir í Ritningunni: Hressið hver annan með andlegum ljóðum og söngvum. Verið ætíð glaðir. Prúðmannleg glaðværð er bæjarbragiur á þesisiuim ágæiba stað. Hugurinn hvílist við þetta fagra mannlíf, þar sem allir virtust vilja hver öðrum vel. Seinasta kvöldið, sem ég gekk niður skógarstíginn á leið í náttstað, var veður blítt og bun'glskin im'ikið. Kyrrðin vair næstum alger, nema hvað ein- stakt fuglskvak heyrðist. Svo kvað Stephan G. Stephanson: 1 slikri ró ég kysi mér að kveða eins klökkvan brag, og rétta heimi að siðustu sáttarhendi um sólarlag. o

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.