Lesbók Morgunblaðsins - 29.12.1972, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 29.12.1972, Blaðsíða 13
yfir það Hafna að skoða sýningar lítið þekktra málara eða byrjenda. Eða kannski nenna þeir því ekki. Þetta barst einhverju sinni í tal við einn af nýgræðingunum, sem þá hafði nýlega haldið sína fyrstu sýningu í Bogasalnum. Hann sagði: „Þegar ég kom á staðinn til að opna, stórlega kviðafull- ur, hver heldur þú þá að hafi beðið við dyrnar? Enginn annar en Jón Engilberts og Tove kona hans. Samt þekkti ég Jón alls ekki mikið. En þetta, að sjálfur Jón Engilberts skyldi bíða við dyrnar, það var mesta uppörvun, sem ég hef fengið. En aðrir, sem ég hafði þó boðið, létu aldrei sjá sig.“ Þegar þetta er skrifað, stendur enn yfir sýning á nokkrum myndum, sem Jón átti, þegar hann féll frá. Sumar voru stórbrotin og eftirminnileg lista- verk og allar voru þær fleytifullar af karlmann- legum anda Jóns Engilberts. Listasafn Islands keypti þarna venk á 200 þúsumd krcnur, en það hefði í rauninni átt að kosta mun meira. Það kynni að verða bið á því, að meiri háttar verk Errgilberts verði iboðin1 til sölu. Það er vitaskuld gott og blessað — og kannski það albeztia — að lisitasafindð eigndst verk eins og Madame eftir Engilberts. En það var synd, að safnið skyldi ekki sjá sér fært að verzla svona myndarlega við Jón, meðan hann var enn ofar moldu. Hann sagði stundum, þegar dimmt var yf- ir: „Æ, hvað Iþað væri giamam að vera nú kominn suður að Miðjarðarhafi; synda í Miðjarðarhafinu. Ef ég hefði aura, þá mundi ég drífa mig strax. En nú verður maður bara að nota sér jógakunn- áttuna og hugmyndaflugið og ímynda sér að mað- ur sé á sunidi i b’Jáu Miðjarearhafinu." Svo fcr Jón að rifja upp gami’.'a, sóMka daga, frá því ihann vair urngur g'iawmgosi með Kristmijnni í OsC:ó. Hann miundi' vel og mim.i't'iSt oft á kvenhylli Kristmanns. „Það voru ekki bara ungu stúlkurn- ar,“ siagði Jón, „hanni haifði ekiki einiu simni frið fyrir imæðrum þeirra." Mér fannst, að ef Jóm hefði öfundað nokkurn mann um dagana, þá væri það Kristmann — vegna kvenhyllinnar. Ég sá Jón Engilberts síðast á spítalanum, það- an sem hann átti ekki afturkvæmt. En þótt sýni- lega væri af honum dregið, neytti hann þeirra litlu krafta sem hann átti eftir til þess að vera skemmtilegur; til þess að standa meðan stætt var, sjálfum sér samkvæmur. Þannig lifa eldsálir — og deyja. Það mátti heita, að þeir yrðu samferða, Jón Engilberts og Jóhannes Kjarval. Báðir enduðu sína daiga í Fos'svoig'sbrekkunni; Jciru i febnúar, Kjarval i apríl. Kannski hefur Jón verið alþjóð- legri málari; viðfangsefni hans var fyrst og síð- ast manneskjan sjálf, myndir sem allir skilja, hvort sem þeir búa á norðlægum eða suðlægum breiddargráðum. Kjarval varð landið aftur á móti svo hugstætt, þetta beinabera land. Grjót og meira grjót. Sérstæð náttúra þess frá smæsta blómi til stærstu jökla. Það er spurning, hvort þeir sem alls ekki þekkja landið sjálft, geti til fullnustu metið list Kjarvals. Að þvi leyti er hann ef til vill séríslenzkara fyrirbrigði en Jón Engilberts. En vilðfamgisefm Jóhanraesar Kjarvalls voru svo víðtæk, að þar var einnig rúm fyrir manneskj- una. Andlitsmyndir af alþýðufólki eru með því bezta, sem eftir hann liggur; rúnum ristir erfið- ismenn á gulnuðum pappír. Og ævinlega stutt í skáldskapinn og ævintýrið, huldufólkið eða þá vorið, sem stillir upp hörpunni sinni á bæjar- vegginn. Engum manni hef ég kynnzt með svo fjölskrúðuga og óútreiknanlega skapgerð sem Jóhannesi Kjarval. Það bjuggu í honum margir menn og maður vissi aldrei, hver réð ferðinni í það og það skipt- ið. Haran var eiras og veðrið, þegar blæs úr öil- um áttum sama daginn. Þar af leiðir, að verk Kjarvals voru ótrúlega misjöfn. Það bezta er svo innblásið og frábært, að ég hef tilhneigingu til að setja það skör hærra en nokkuð annað eftir íslenzka myndlistarmenn. En því miður voru að- dáendurnir of iðnir við að sópa upp moðið, sem alltaf fylgir kjarnfóðri. Það hefði mikið af því betur farið aðra leið. Álíka misjöfn eru margvísleg portret, sem eft- ir hann liggja. Þegar bezt lætur, hremmir hann nnsta kjarna fórnarlambsins með fimi, sem minn- i.r á ol'ympskam meistara. í önraur s.kipti er hanra svo langt úti að aka, að á léreftið eða pappírinn kemur allt annað andlit en þar á að vera. Og það sem merkilegast er: Hann virðist ekki taka eftir þvi sjáifur, eða lætur það að minnsta kosti slarka. En hvort sem rétt svipmót hefur náðst eða ekki, eru andlitsmyndir Kjarvals merkur þátt ur í list hans og stórkostleg listaverk, þegar hann er á réttu róli. Hannes Jónsson á Ásvallag-ötunni. Vínur minn Egdll. Teikning eftir Kjarval. Og hann, sem var skarp- héðnastur alira: Jó- hannes Kjarval. Teikn- ing eftir greinarhöfund- inn. Nálega tuttugu ár eru síðan fundum okkar bar fyrst saman. Það var á Selfossi; Kjarval var þá hjá vini sínum, Agli Thorarensen í Sigtúnum og það var eftirminnilegt að hlusta á þessar höfuð- kempur ræðast við. Þar lenti tveimur eldsédum saman svo neistaflugið stóð í allar áttir. Sjálfur átti Egill prýðilegt safn málverka, ekki aðeins eftir Kjarval, en einnig eftir Ásgrim og Jón Stef- ánsson. Hann hafði miklar mætur á Jóni Stefánssyni og við urðum eitt sinn illilega ósam- mála um eina mynd Jóns, sem Egill hélt mjög fram. Líkt og títt er um unga menn, hafði ég mjög ákveðna skoðun á Jóni; taldi hann heldur stirðlegan í teikningu og leiðinlegan málara. Þetta snerist einkum og sér í lagi um handleggina á einhverju módeli, sem Jón hafði málað. Mér fannst þeir lafa utaná búknum eins og pulsur eða bjúgu og þau heldur í ljótara lagi. En Agli var ekki úr að aka; hann var alveg viss um, að Jón væri hörkumálari og það væri ekki útí bláinn, að hann hefði þessa tilteknu handleggi svona. „Kannski er Jón beztur af þeim öllum,“ bætti hann við. Verk Egils standa á Seifossi og víðar, þótt hann sé farinn til feðra sinna. Og upp við Ing- ólfsfjall stendur Sængurkonusteinn ennþá með fullri reisn og minnir á, að Jóhannes Kjarval var gestur Egils á þessum slóðum og málaði þá meðal annars stórfenglega mynd af þessum steini. Löngu seinna spurði ég Kjarval, hvort ég mætti koma með honum út í hraun og sniglast í kringum hann — ásamt ljósmyndara — meðan hann mál- aði eina mynd. Ég átti vitaskuld ekki von á neinu öðru en neitun, og jafnvel að hann ræki mig út, því viðkvæmni hans gagnvart áhorfendum var al- kunn. En það sýnir, hvað Kjarval var fullkom- lega óútreiknanlegur, að hann samþykkti þetta. Líklega hefur það bjargað málinu, að ég hitti á hann einan. Og hann var í rólegu skapi. Þá var gott að ræða við hann og hann gerði fínt grín að formúlunum, sem ungu myndlistarmennirnir voru að koma með hieim frá útiöndium. Ein var til dæmis þannig, að fjarvídd mátti ekki koma fyrir í mynd; önnur á þann veg, að forðast bæri að marka form og fleti með útlínum. Kjarval ræddi þetta fram og aftur í einskæru háði og sagði, að svona uppgötvanir mundu liklega ai- veg bjarga listinni frá þvi að farast. Svo varð hann alvarlegur og bætti við: „Nei, við skulum ekki banna neitt, ekki í listinni." Kæmi inn til hans þriðji maður, að ekki sé tal- að um fleiri, var alveg vonlaust að ræða nokkuð í alvöru við hann. Þá fór hann óðar að leika — leika Kjarval. En ég tók hann á orðinu og einn góðviðrisdag renndum við Kristján Magnússon, ljósmyndari uppað vinnustofunni í Sigtúninu og buðum góðan daginn; nú væri stundin runnin upp og út í bíl með trönurnar, takk. Okkur til mikill- ar furðu sagði Kjarval já og amen og tók saman alilt nauiðsynfegt hiaifurtask. En ailt í einu varð bakslag á jákvæðu viðhorfi hans: „Ljósmyndar- iran,“ sagðii Kjarval, „hanni er svo Ijótur, að ég get flkki farlð mieð.“ Kominn í hlutverkið sitt, hugsaði ég með mér og reyndi að sannfæra hann um, að Kristján Magnússon þætti almennt með fallegustu mönn- um i bænum. „Hann er svo helvíti svartur," sagði Kjarval og hristi höfuðið. Ég reyndi hvað ég gat, og sagði að ljósmyndarar þættu þeim mun betri sem þeir væru svartari. Og svo fór eftir talsvert jamll og jaipl og fuðlur, að Kjarvail settist inn í bílinn. Á miðri leið brá hann sér aftur í hlut- verkið; taldi þá öll tormerki á að halda áfram. En við sinntum því ekki og báðum bílstjórann að hallda Síniu striiki suðlur á K'rfsuivi'lkurileið. Þaðan var gengið drjúgan spöl og staðnæmzt i fallegri laut með fölgrænum hraunmosa og sprungnum hól. Kjarval laut niður I eina sprung- uina ag tók þar rapp ldti og toerpentímiu: „Ég geymi þetta hér,“ sagði hann. Og svo hófst hann handa með verkið: Bólaði léreft niður á krossviðar- plötu í stað þess að strengja það á blindramma eins og venjulegast er. Þarna var dálítill blett- ur, troðinn niður i mold. Hann var búinn að mála margar myndir á þessum stað; nákvæmlega á þessum bletti. Kristján skildi, að hann hafði komizt í feitt og myndaði ósleitilega. „Er eitthvað verið að læðast?“ tautaði Kjarval líkt og við sjálfan sig. Að öðru leyti fékkst hann ekki um og kvartaði ekki yfir nærveru okkar. Oft síðar hef ég gengið þarna um hraunið; farið útaf hjá vörðubrotinu við veginn og síð- an í suðvestur svo sem hálfan kílómetra út í hraunið. En lautina hef ég ekki fundið aftur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.