Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.1980, Side 11
„Þaö var í blóöinu aö hafa
áhuga á byssum. Pabbi var
veiðimaöur og skaut sinn
fyrsta sel 11 ára gamall. Ekki
gat ég fetað í fótspor hans aö
því leyti, því ég var orðinn 17
ára, þegar ég banaöi mínum
fyrsta sel. En úr haglabyssu
skaut ég fyrst 12 ára og
fannst þá og finnst enn af-
skaplega spennandi aö um-
gangast og handleika byssur.
Síöan hef ég iökaö skotfimi
aö staöaldri, — en á hinn
bóginn notaö byssurnar sem
veiðimaður. Fyrsta byssan
mín var og er mikill upp-
áhaldsgripur; Husquarna
númer 12. Hún var upphafið
aö safninu."
Svo mælir Árni Logi Sigur-
björnsson, einn mesti byssusafn-
ari landsins, kirkjugarðsvöröur og
meðhjálpari á Húsavík. Þegar
hann er ekki aö skrýða prestinn,
ellegar að taka grafir í kirkjugarö-
inum, þá er hann annaðhvort á
skyttim eða aö handleika byssurn-
ar í safninu, gera við byssur og
hlaða skot.
Þeir sögðu mór á Húsavík, aö
reyndar heföi hann framan af
geymt byssusafniö einhvers staö-
ar bakatil í kirkjunni, eða hvort
það var í skrúðhúsinu. Eftir því
sem safnið og byssuástundun
kirkjugarðsvarðarins jókst, fóru
sumir pínulítið að gjóa hornauga
til þess arna. En nú hefur Árni Logi
komið safninu snyrtilega fyrir á
öörum stað. Þar inni er heimur
byssunnar; þær standa í sérstök-
um festingum og ná yfir heilan
vegg. Þar aö auki er um allar
tríssur ýmislegt smálegt, sem ein-
kennir þetta sport: Hvellhettur og
högl, tæki til aö hlaöa með hagla-
skot, allskonar patrónur; sumar
með kúlum, aðrar tómar. Þar eru
myndir uppi um veggi af veiöidýr-
um, skotbelti og töskur utan af
byssum, púöur á brúsum og bæk-
ur um aðskiljanlega leyndardóma
skotvopna, svo sem til dæmis
samanlagða framleiðslu Reming-
ton og Winchester.
Framhald á bls. 17.
Partur af ánægjunni er fólginn í að handleika
byssurnar, strjúka þeim og miða. Hér er Árni Logi með
þrjá eftirlætisgripi, tvo riffla og þýzka Mauser-
skammbyssu. Á myndinni að neðan er hann við
maskínuna, sem hann notar til að hlaða með bæði
haglaskot og riffilskot.