Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.1988, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.1988, Blaðsíða 10
Hjá Manólí. Krístjón heldur & Rúfógali. Jóbanna I tveimur húsum, í okkar húsi ... og við. Niðjatalið á ævintýra- veiðum í sól og sjó Garpur: Hvað er sjónvarp á grísku? Jökull: Mótorhjól. Garpur: Rétt! En hvað er munnur á grísku? Jökull: Bátur. Garpur: Alveg rétt, en mamma hvemig segir þú stóll á grísku? Ég: Ég veit það ekki. Garpur: Ávextir. Krist- jón: Þið eruð ruglaðir. Við erum á leið til Castelorizo, þarsem blái litur heimsins er falinn og bergmáiið býr inní helli; ljóð i litlum fiskum og skútur sem varðveita ferðalög. Ég ákvað að fara með niðjatalið til Grikklands, að leika í sól og sjó og veiða krabba. Það er ég, matríark- inn, og strákamir Kristjón, 12 ára, og tvíburamir Garpur og Jökull, 4 ára. Og reyndar er ritvélin með í ferðinni. Við ætlum ■ að vera í tvo mánuði á lítilli eyju, þar sem aldrei gerist neitt. Eftir átta tíma siglingu dugir þrekið rétt fyrir kókfiösku og við förum í háttinn. Ég syng um gimbilinn og bíumbambaló. Daginn eftir eiga krabbaveiðamar að hefjast. Krist- jón verður að vera inni vegna brunasára sem hann hlaut á Rhodos. Hann ætlar að lesa og tefla við sjálfan sig. Ég og tvíburamir ætlum í sjóinn. En það tók hins vegar viku að venja þá ofan í sjóinn. í fyrstu trúðu þeir því að allt þetta bláa væri grimm og blá ófreskja sem myndi gieypa þá í sig, ef þeir dirfðust að stinga svo mikið sem litlu tá ofani. en eftir nokkrar vikur slepptu þeir kútunum og syntu og köfuðu af hjartans lyst Veiddu kuðunga og steina af botninum, seinna krabba og ígulker. Jökull var meira að segja svo glúrinn að fanga lítinn fisk og varð svo glaður að hann hljóp um allt þorp- ið með fískinn í litla lófanum sínum og vakti óskipta aðdáun gamalreyndra fiskimanna á Með Garpi, Jökli og Kristjóni á grísku eyjunni Castelorizo þar sem ekkert gerist. Samt er hver dagur ævintýri. Myndir og textí: ELÍSABET JÖKULSDÓTTIR eyjunni. Þessir litlu fískar synda hraðar en auga á festir. Þegar við komum heim úr fyrsta túmum með froskalappir, kafaragleraugu, kaf- arapípur og kúta, allt ónotað, er Kristjón búinn að veiða engisprettu. Þetta er vinur minn, segir Kristjón kotroskinn. Engisprett- an virðist á sama máli, er sallaróleg hvort sem Kristjón stillir henni upp á nefið á sér eða lætur hana spásséra eftir handleggnum. Kristjón tínir handa henni laufblöð að éta. Jökuíl og Garpur eiga ekki orð og líta með lotningu á stóra bróður sinn, sem getur veitt svona grænt dýr með langar lappir og ósýnilega Vængi. DOTTIÐÍSJÓINN Við föram út að borða um kvöldið og á meðan við bfðum eftir að sverðfískurinn grillist skoða þeir fískalífíð. Þeir fara í torf- um eða einir á ferð. í ótrúlegum litum. Búbí og Skúbf, rytjulegir hvolpar mæta á svæðið og kynna sig f von um bita af borð- inu okkar. Hér era engir bílar, bara þessi eini sem keyrir til og frá flugvellinum. Niðja- talið hleypur því um óáreitt og engin mamma sem kallar á eftir þeim: Passið ykkur. Passið ykkur á bílunum. Auðvitað er hægt að detta f sjóinn, hrafla sig á þvf að klifra í rústuðu húsi, vera bitinn af sporð- dreka eða drukkna í sjónum. Hafíð hefur ótrúlegt aðdráttarafl eftir að þeir hafa kynnst skrfmslinu og fengið svolftið vald yfir þvf. En svo dettur Garpur f sjóinn. Hann hefur verið að teygja sig eftir priki, en fer á bólakaf. Kristjón sýnir mikið snar- ræði og kastar sér á eftir litla bróður og heppnast að draga hann upp úr. Þeim er svo hjálpað upp á hafíiarbakkann en í flýtin- um hoppaði Kristjón með væna melónu. Melónan varð eftir á hafsbotni og það varð töluverð sorg. Þetta var sfðasta melónan í ávaxtabúðinni og skipið kemur ekki aftur með melónur fyrr en eftir þijá daga. í nokkra daga minnir Kristjón Garp á vel unnin björgunarstörf, en Garpur skilur ekki alvöru málsins. Fyrstu vikumar er of heitt, yfír 40 gráð- ur hvem dag. Sólin er einsog glóandi óvinur á himinhvolfinu. Við tökum fjórar kaldar sturtur á dag, smurð í olíu og brynjuð hött- um og sólgleraugum. Við drekkum milljón lítra af vatni og ávaxtasafa og melónur ein- sog vínber. Þegar hitinn er að sliga Garp og Jökul eða randaflugur verða of ágengar, hreyta þeir í móður sína: Ég bað sko aldrei um að fá að fara til Grikklands! Þá höfðum við nefnilega ekki náð nógu mikilli leikni í krabbaveiðum, sem gat réttlætt þennan óskaplega hita. Um tíma er ég farin að halda að ég sé á röngum stað í tilveranni — og svo bætast við moskítópiágur. Heit- asta tímabilið er „ísöldin mikla". Ekki duga minna en Qórir fsar á mann á dag. Líka vegna þess að á botninum liggur lítill Svona er maður & svipinn í spíttbát. gúmmíkall. Niðjatalið safnar 70 svona ísköllum. Stundum læt ég tilleiðast að kaupa fleiri ísa en hitinn krefur. En mömmur era nú einu sinni til þess að hægt sé að plata þær af og til. HALLÓ PRINSESSA Kristjón má fara í sjóinn eftir tvær vikur og gleðin hefst fyrir alvöru. Það er ævin- týri að eiga svona stóran bróður, sem kafar svona djúpt og getur veitt öll þessi ígulker og krabba. Þegar fram í sæltír dregur Krist- jón ýmsa furðuhluti úr undirdjúpunum. Gömul leirker og áhöld og við leikum fom- leifafræðinga. Það era skór, bjórkassar og ljósakrónur. Ég ligg f sólbaði en Garpur og Jökull hjálpa til við fenginn. Svo koma þeir upp úr kafinu og smfða geimskip. Halló, prinsessa, segir Jökull. (Það er víst ég.) Halló geimmaður, segir prinsessan. Viltu koma með í eldflaugina okkar. Ég er geimmaður og þetta er elddrekinn. En gaman, hvert föram við, segir prins- essan aldeilis hugfangin. Á aðra sljömu að hitta litla prinsinn, segja elddrekinn og geimmaðurinn. Við leggjum af stað út í buskann og blá- inn, til Ameríku, Ástralíu, til stjamanna, Tyrklands og stundum alla leið til íslands. Oft dæsir fólk hástöfum og vill fá skýr- ingu á því, hvemig ég fari að því að vera með þijá svona fyrirferðarmikla en skemmtilega stráka ein í brennandi heitu landi. — Það er ekkert mál, segi ég. Þegar ég vakna á morgnana fæ ég prinsessubún- ing og við morgunverðarborðið sitja elddrek- ar, eiturslöngur og geimálfar og ræða há- stöfiim. Við förum í ferðalag og inn í því er annað ævintýri. ímyndunaraflið á sér engin takmörk og hægt að leika leik úr hveiju atviki og andartaki. Það gerast ótrú- leg ævintýri á þessari eyju, þarsem aldrei gerist neitt og sumum túristum er svo nóg boðið að þeir flýja burt. En þeir kynnast Panajótu, sem málar með minnsta pensli í heimi og á fugl sem étur úr lófa, Áleskos sem hefur gert sér hús undir beram himni, Chico er með plathönd en sveiflar þeim í kringum sig og kann leiki með andlitinu, þeir sigla f tyrkneskum flóttamannabátum, búa til brúðuleikhús, það er blindur maður í tóbaksbúðinni, Agis, sem býr í yfírgefíiu húsi og er með sólbrot á veggnum hjá sér, hægt er að tína vínber, ferskjur og plómur, það er meiraðsegja gaman að hjálpa mömmu að þvo f höndunum, einn daginn kemur bogin gömul kona í heimsókn, en næsta dag þykjast þeir sjá hana í líkkistu f líkgöngu. En „dána konan" lætur ekki að sér hæða og birtist seinna með nammi f bleikri blúndu. Það er alltaf eitthvað að gerast og „þama er servíetta sem fauk“... Að Borða marga LitlaFiska Dag einn býður Manólí okkur í mat. Hann er sagður besti fískimaðurinn á eyj- unni. Býr í húsi við aðalgötuna, situr þar fyrir utan, gerir að netum og hlustar á tón- list Manólí gefur strákunum nöfíi á gríska vísu, Kristjó, Garpó og Jökló, og með þeim takast miklir kærleikar. Manólf á kettling sem heitir Rúfógali. Það útleggst á íslensku sá sem drekkur mikla mjólk. Manólf sýður foriáta fiskisúpu og veit að litlir menn vilja borða litla físka. Stundum fara þeir í sjóinn hjá Manólf og klifra upp í bátinn hans. Dag einn er ég að koma af pósthúsinu og segi Jassú, þegar ég fer framhjá húsinu hans Manólí, sé útundan mér að hann er með mataigesti en Manóií hefur gaman af að bjóða fólki í mat og býður þvf líka gjarna að búa hjá sér. Manólí kemur þá hlaupandi út og leiðir mig inn. Og viti menn: Niðjatal- ið er mætt. Þeir sifja eins og fyrirmyndar- böm í matarboði og háma í sig marga litla fiska. Svo fáum við senda spólu með Bubba, Megasi og Sykurmolunum. Manólí er hrifínn af Bubba, hlustar lengi í vasadiskóinu og segir: Gut stimme. Manólf talar nefíiilega bæði þýsku og ítölsku en enga ensku. TÖFRASÚPA OG GÆJAHÚS Við verðum vinir læknisins. Hann verður að vera ár á Castelorizo og er ekkert hrif- inn af þvf að vera svo fjarri heiminum, þar sem aldrei gerist neitt. Krisljón þarf að fá nýjar umbúðir á branasárin. Doktorinn fóm- ar höndum og trúir ekki eigin augum. Þetta era ljót sár. En vefur Kristjón á nýjan leik, er nærgætinn og bamelskur. Smátt og smátt fara heimsóknir til læknisins að verða fleiri er góðu hófí gegnir. Ég hef nefnilega aldrei átt veik böm og veit ekki hvaðan á mig stendur veðrið þegar þeir fá hita, niður- gang og útbrot Kristjón er sprautaður gegn blóðeitran en fyrst keyrir um þverbak þegar Jökull fær munnangur, ljótar bólur á varir, tungu og góm. Doktorinn segir að þetta sé herpis og Jökull fær krem sem hann þolir ekki. Þó er mynd af ljóni á túbunni sem er huggun harmi gegn. Jökull getur ekki borðað f viku, sýgur jógúrt í gegnum strá, djús og kók. Prassar út úr sér súpum og er hinn versti sjúklingur. Öskrar lengi eftir hveija meðferð af ljónakreminu. Það svíður svo. Kremið dugar eitthvað, en við eram orðin langþreytt og Jökull mjór og mátt- farinn. Þá kemur gömul kona, Maria Lazar- akis, til sögunnar. Ég kem til hennar með pakkasúpu, sem ég bið um að fá að elda ofan í bamið. Maria tekur við pakkanum, gefur mér f skyn að þetta kalli hún ekki súpu og hefst sfðan handa. Hún sker niður grænmeti út í sjóðandi vatn, bætir við pasta og kryddjurtum. Hrærir lengi og hlýtur að hafa farið með töfrasúpuþuluna, því súpan reyndist betur en nokkurt krem. Kristina,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.