Lesbók Morgunblaðsins - 17.12.1990, Qupperneq 4
Portret Gunnlaugs Blöndals af Eggert Stefánssyni.
Þeir sáu Ágústus
keisara endurborinn
Ajólanótt 1914 er ungur íslendingur staddur á
jámbrautarstöð í Svíþjóð, nýkominn frá Dan-
mörku. Hann er einn á ferð og hefur verið
ráðinn til að syngja á hóteli í Dölunum. Nafn
i hans er Eggert Stefánsson. Fjómm ámm áður
Aldarminning
EGGERTS
STEFÁNSSONAR,
söngvara, rithöfundar og
ættjarðarvinar, f. 1.
des.1890, d. 29. des.
1962.
Eftir GUNNLAUG
A. JÓNSSON
— á afmælisdaginn sinn er hann stóð á
tvítugu — hafði hann haldið út í heiminn
til að freista gæfunnar, „félaus og fátæk-
lega úr garði gerður", eins og faðir hans,
Stefán Égilsson múrari, orðar það í dagbók
sinni. Leið Eggerts lá þá í söngnám til
Danmerkur, en nú var hann búinn að fá
nóg af dvölinni þar. Það rann listamanns-
blóð í æðum þessa unga og hrifnæma íslend-
ings. Löngu seinna lýsti hann skemmtilega
þeim hughrifum sem hann varð fyrir þessa
fyrstu jólanótt sína í Svíþjóð:
„Á járnbrautarstöðinni er framborið
„glögg“, jóladrykkur Svíanna. Stórt jólatré,
er nær til loftsins, er skreytt kertum og
brenna þau hægt niður. Það er 'seint um
nótt og fáir á brautinni. Lestin hefur tafízt
af snjóbylnum. Úti er hvít jörðin og hvítir
skógamir í hinu fegursta skrauti jólanna,
snjónum, er beygir greinar þeirra til jarðar.
Það er kyrrt, en mikið frost. Stjömur himins-
ins skína gegnum tijálimið, er breiðist yfir
veginn, og með ljósi þeirra sýnist koma
þessi friður, sem fjárhirðarnir fundu jóla-
nóttina — „og velþóknun guðs yfir mönnun-
um“. Ég halla mér aftur í sleðann og breiði
ábreiðuna yfir mig og horfi á þessa vetrar-
dýrð, er umlykur mig. Allt í einu heyri ég
klukkurnar hringja frá einhverjum kirkju-
turni í fjarska. Eg spyr ökumanninn, hvað
það sé, og segir hann mér það sé ,jólaott-
an“, sem byiji kl. 5 á morgnana jóladaginn
í Svíþjóð, og þangað komi Dalafólkið. Ég
segi honum að keyra á hljóðið. Á leiðinni
sé ég fjölda sleða, er koma brunandi út úr
skóginum og er blys kveikt á hveijum sleða
— og mynda rauða línu við bláan himininn
og hvítan snjóinn. Þetta er Dalafólkið á leið
til kirkjunnar. Fjöldi sleða er í kringum kirkj-
una. Koma út úr þeim menn og konur, er
sýnast afar tröllsleg og stór í hinum þykku
^skinnfeldum sínu. Það er eins og æfintýrið
gangi inn í kirkjuna. Ég geng inn í kirkj-
una. Þar inni situr allt fólkið klætt þjóðbún-
ingi sínum, gamalt og ungt. Ég átta mig
ekki á, hvar ég er. Er ég kominn aftur í
söguna, aftur í fornöldina? Kirkjan er full
af þessum söguanda — maður hverfur úr
sjálfum sér til fornra æfíntýra, er fylgir
þessu fólki, er fyllir kirkjuna. Og þegar
presturinn talar um föðurlandið, konunginn
og guð — þá verður hljótt þarna inni — því
það snertir í þeim hjartarætur föðurlands-
ástarinnar. Hér var ég því kominn til heim-
kynna fórna og föðurlandsástar. Einhverra
nýrra kennda varð ég var hjá mér, hugur
minn samlágast þessu andrúmslofti, og það
er eins og eitthvað rísi upp og rifni í hjarta
mínu, sem streymir út til þessara afkom-
enda hinnar söguríku þjóðar — hvers hreysti
sýnist mér skráð í andlitum gamalla og
ungra í kringum mig. Mér hefur alltaf þótt
vænt um þessa jólanótt í Dölunum. Hún
hefur haft þýðingu fyrir mig og innritað sig
í hjarta mitt. íslendingurinn í mér reis þarna
upp aftur!“
1. desember síðastliðinn voru liðin hundr-
að ár frá fæðingu Eggerts Stefánssonar.
Af því tilefni verður hér bnigðið á loft nokkr-
um svipmyndum úr lífi þessa umdeilda
söngvara og rithöfundar, og er byggt á við-
tölum við nokkra samferðamenn hans, ýms-
um sendibréfum hans, einnig á dagbókum
hans, sem Kristján Karlsson skáld hefur
undir höndum og var svo vinsamlegur að
leyfa mér afnot af, og loks byggi ég að sjálf-
sögðu á útgefnum bókum Eggerts því hann
skrifaði ekki færri en fjögur bindi undir
hinum lítt hógværa titli „Lífíð og ég“.
KÓNGUR KEMUR í HEIMSÓKN
Nafnið Eggert Stefánsson hefur alltaf
haft yfír sér sérstakan ævintýraljóma í huga
mínum. Bréfin og kortin sem bárust frá
honum til foreldra minna voru skrifuð á
fínum hótelum víðs vegar um heim, en flest
komu þau þó frá bænum Schio á Ítalíu. Var
sá bær raunar meðal fyrstu útlendra bæja
sem ég heyrði getið um. Eggert var afabróð-
ir minn, og það duldist mér ekki að móður
minni þótti vænt um þennan víðfræga
frænda sinn og mótmælti ýmsu því sem
sagt var um hann og haft að gamanmálum.
Sjálf hefur hún lýst honum þannig í útvarps-
viðtali: „Það var einhver heimsborgaralegur
andi sem kom með Eggert, og það var allt-
af eins og veisla í kringum hann, fullt af
fólki og mikil glaðværð. Hann var glæsileg-
ur og mjög skemmtilegur, og mér þótti allt-
af værit-am hann.“
Margar sögur heyrði ég í bernsku af
Eggert Stefánssyni, og allar götur síðan
hef ég sífellt verið að heyra af honum ævin-
týri enda var hann þjóðsagnapersóna þegar
í lifanda lífí. Fyrsta sagan, sem ég heyrði
af honum var um skeyti, sem barst frá
Eggert til Sigvalda Kaldalóns bróður hans
eftir velheppnaða tónleika hins fyrrnefnda
í einhverri stórborginni erlendis: „Hélt tón-
leika í gærkvöldi. Gerði stormandi lukku.
Sendu peninga strax!“ Og margar sögurnar
tengdust einmitt bágbornum fjárhag Egg-
erts, sem aldrei kom þó í veg fyrir að hann
bæri sig eins og þjóðhöfðingi.
Ég man eftir einni heimsókn Eggerts til
foreldra minna á Selfossi, og hef ég þá
líklega ekki verið nema sex ára. Engu að
síður man ég eftir þessum viðburði því þarna
var ekki um neina venjulega heimsókn að
ræða. A.m.k. hafði ég fengið það á tilfinn-
inguna að kóngurinn í Danmörku væri kom-
inn heim til okkar, og lenti ég í orðasennu
um það við leikfélaga minn, sem trúði ekki
að kóngurinn væri í heimsókn hjá foreldrum
mínum. Man ég að mér þótti mjög miður
er ég fékk að vita að ég hefði haft rangt
fyrir mér. En hvað um það: Eggert kom
og hann var a.m.k. með kónganef og að
útliti eins og kóngur.
Hann Var Alltaf Með-
HÖNDLAÐUR ElNS OG ÞJÓÐ-
HÖFÐINGI
Síðar hef ég víða séð að ég var fjarri því
að vera einn um að telja Eggert kóng.
Nóbelsskáldið Halldór Laxness, vinur Egg-
erts, talar um „keisaralega skaphöfn og
framgaungu" Eggerts, og segir margar
skemmtilegar söguí af honum í Skáldatíma
m.a. hvernig ítalskir burðarkarlar göptu í
forundran á eftir Eggert — í því landi þar
sem menn vita hvað mikilmenni er — og
létu sér nægja brosið eitt frá honum sem
greiðslu eftir að hafa burðast með töskur
hans, því þeir höfðu séð Ágústus keisara
endurborinn! Eggert var þannig maður að
allir rýmdu til fyrir honum og hneigðu sig
djúpt. Um hann segir Laxness að-.hann
hafí gert aðra frægðarmenn bleika og daufa
og hefur jafnframt lýst því hvernig öll þjón-
usta á hótelum og veitingastöðum hafi orð-
ið önnur og betri þegar Eggert Stefánsson
var með í för. Og Ragnar Þórðarson lög-
fræðingur, sem oft var með Eggert erlend-
is, staðfestir að einmitt þannig hafí þetta
verið: „Það var stórkostlegt að fara með
honum inn á hótel eða veitingahús. Hann
var alltaf meðhöndlaður eins og þjóðhöfð-
ingi. Ég kom með honum á marga fína
staði, eins og t.d. Hotel Ritz í London og
Hotel Intercontinental í París. Alls staðar
var sama sagan. Eggert var þannig persónu-
leiki. Hann var eins og sjálfkjörinn amb-
assador eða þjóðhöfðingi og fékk þjónustu
í samræmi við það.“
Frá Flórens Til Flateyjar
Sumarið 1986 var ég í fríi á Ítalíu ásamt
fjölskyldu minni og vinafólki okkar, Pétri
Þór Sigurðssýni, lögmanni, og fjölskyldu
hans. Þá datt mér í hug að gaman væri að
hafa upp á gröf Eggerts og húsi hans.
Gallinn var sá að ég vissi ekki einu sinni í
hvaða borg hann var jarðaður. Eftir símtöl
til íslands tókst þó að fá það upplýst um
síðir, og var það Oddur Ólafsson, alþingis-
maður og góðvinur Eggerts sem það gerði.
Eggert var jarðaður í Flórens, háborg menn-
ingar og lista, að sjálfsögðu! Það hefði ég
átt að geta sagt mér sjálfur. Eggert dvaldi
oft í Flórens, enda bjó systir Lelju þar.
Gröf Eggerts með lágmynd Ríkharðs Jóns-
sonar af honum og áletruninni „Patriota,
cantante, scrittore" (ættjarðarvinur, söngv-
ari, rithöfundur) fundum við Pétur Þór í
útjaðri Flórens og húsið hans við aðalgötuna
Via Maraschin í Schio, smábæ á Norður-
Ítalíu, skammt frá Vicenza. Um leið fædd-
ist hjá mér hugmyndin að skrifa bók um
Eggert (sem því miður á enn langt í land).
En sú hugmynd gleymdist að mestu þar til
í fyrrasumar. Þá var ég enn á ný á ferða-
4