Lesbók Morgunblaðsins - 23.09.1995, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 23.09.1995, Blaðsíða 9
Kattarnef Eftir KRISTIN R. ÓLAFSSON Smásaga telpufíflið! Það væri sko réttast að koma þessum króga hennar fyrir kattarnef. Hann á ekki svo glæsilega framtíð fyrir höndum hvort eð er með móður sem hana ef maður getur þá kallað hana Betu svo virðulegu nafni.“ Margrét stendur hugsi við kaffivélina og er að hella vatni í hana úr glærri glerkönnu, brúnaþung og bijóstaþung, i bleikum slopp, með ljóst hárið í axlarsíðum svefnflóka. „Ég er búin að fá mig fullsadda af því að þurfa alltaf að vera að hugsa um þennan unga hennar fyrir hana, skipta á honum, klæða hann úr og í, baða hann, reka uppí hann snuðið þegar hann grenjar eða standa í því á þriggja, flögra tíma fresti að blanda í pela handa honum og gefa honum í svang- inn. Ég hef nú bara nóg með hana Mörtu litlu mína. Og svo lætur Beta aldrei sjá sig hérna heima nema rétt til þess að sofa úr sér brennivínsvímuna eða dóprússið, eða hvað það er nú sem hún gleypir ofaní sig með þessum kærastaræfli sínum.“ Vélin er farin að hitna, það heyrist orðið lágt hviss í henni og kaffiilmur fyllir smám- saman eldhúsið jafn mildilega og morgunskí- man sem smýgur innum gluggann. „Ég hefði nú bara hugsað mig um tvisvar áður en ég fór að búa með honum Jóhann- esi ef ég hefði vitað að ég yrði orðin heima- þrælandi húsmóðir tuttuguogfimm ára með tvö ungbörn uppá arminn og sautján ára stelpufífl sem þykist vera að vinna í sjoppu öll kvöld en kemur svo heim full eða dópuð undir morgun við fyrsta hanagal að hijóta úr sér vímuna langt frammyfir hádegi. Og meðan ungfrú Elísabet sefur á sínu græna eyra einsog prinsessan á bauninni má vonda fósturmóðirin hennar Mjallhvítar gjöra svo vel að þrífa óþverrann af dvergnum hennar og láta hann totta pela því að auðvitað er Margrét tók að brugga ráð til þess að koma þeim mæðginum fyrir kattarnef, eða réttara sagt, hugur hennar fylltist allskonar morðórum... Mynd:BjarniRagimr. jafnmikil horrengla og hún steingeld og þurr- bijósta." Margrét glottir yfir eigin fyndni um leið og hún grípur báðum höndum undir stór mjólkurþrungin bijóst sín og lyftir þeim örlít- ið líktog hún vegi þau í lófum sér. Síðan opnar hún skáp, tekur fram bolla og undir- skál og leggur hvorttveggja við hliðina á kaffivélinni. „Nei, þetta gengur bara ekki lengur. Ég verð að segja honum pabba hennar hvernig hún hagar sér þegar hann er á sjónum; ná úr honum í eitt skipti fyrir öll þessari fárán- legu sektarkennd sem spegiast í þessu dekri og eftirlátssemi við dótturina svo að hann þorir aldrei svo mikið sem að anda á stelpuna en horfir bara bláum sauðaraugum á hana og krakkagemlinginn; láta hann einusinni taka almennilega í lurginn á henni, siða hana til, koma vitinu fyrir hana. Þótt það sé ef til vill vonlaust að eggja hann til neins í þeim efn- um. Hann, þessi naglharði togarajaxl sem stýrir stærðarinnar frystitogara, stjórnar margra manna áhöfn styrkri hendi og rær hvernig sem viðrar, missir allan móð og mynd- ugleika þegar hann sér hana og gerir ekki annað en sleikja sig uppvið hana; sér hrein- lega ekki sólina fyrir henni, litla ljósinu hans pabba síns, og króganum, afastráknum, svo að Marta mín verður hálfgerð hornreka.“ Margrét er að setja tvær fransbrauðsneiðar í brauðristina þegar útidyrahurðinni heyrist skellt. Eftir stutta stund birtist horuð ungl- ingsstúlka í eldhúsgættinni: -Hæ! -Elísabet Jóhannesdóttir! Það er mikið að þú lætur sjá þig! Ertu nú að koma frá þessum kærastaræfli þínum? Þér væri nær að sofa hjá krakkagemlingnum þínum og reyna að hugsa einusinni um hann í staðinn fyrir að vera að þvælast með þessum auðnuleysingja. Elísabet lætur kaldar kveðjur Margrétar sem vind um eyrun þjóta en opnar ísskápinn, tekur fram mjólkurfernu, sækir síðan skaftpott uppí skáp framhjá fósturmóður- inni, hellir mjólkursjatta í hann, setur hann á eldavél- arheliu og kveikir undir. -Eða ertu kannski að reyna að verða tveggja bama móðir? Nei, hvemig læt ég? Þessi kærasti þinn hefur ekki | manndóm í sér til þess. Það þurfti einhvem huldumann úr Bænum, einhvern álf útúr hól, til þess að bama þig um verslunarmannahelgina í fyrra. Stúlkan sækir sér glas í annan skáp, hellir volgri mjólkinni úr pottinum í það, slekkur með snöggri handar- hreyfmgu á eldavélinni og sest á koll við matarborðið. Hún minnir á fugl á priki, hokin, hvassnefjuð, niðurlút, hugsi meðan hún fær sér langan sopa af mjólkinni sem skilur eftir örfínt garpa- skegg á efrivörinni. Loks rekur hún upp stór, brún augu, ögn þámuð í syfjulegu og langleitu andliti, tunglfölu í ógreiddu svartnætti hársins sem rammar það inn. Og skyndilega blossar upp eldur í þeim sem þurrkar burt þámið einsog gufu af gleri. Hún segir hvasst: -Þér ferst nú að vera að tala um barnanir. Lést þú ekki pabba bama þig í ferða- laginu sem þið fómð þessa sömu verslunarmannahelgi og ég varð ófrísk? Og bara til þess að ná í hann og þessi rosalaun sem hann þénar á sjónum því að ég er viss um að hann hefði aldrei tekið í mál að þú flyttist hingað inn til okkar fyrir fullt og allt nema af því að hann hefur sómatilfmningu og kann ekki við að vera að skilja kasóléttar kerlingar eftir á götunni. Og hvað ætli þig muni um að hugsa aðeins um hann Jóa litla minn meðan ég er í vinn- unni? Þú þarft hvort sem er að sjá um hana Mörtu þína. Hún er nú ekki nema þremur dögum eldri en hann og jafnmikið fyrir henni haft, ef ekki meira. Og þú hefur nú ekki svo mikið annað að gera hérna heima, alein með- an pabbi er í þessum löngu túrum sínum á togaranum og ég úti að vinna. Margréti svelgist á svörtu kaffinu við þessi orð og skellir bollanum á undirskálina við hlið kaffívélarinnar svo að svartur drykkurinn slettist í allar áttir. Aftanvið hana gægjast tvær ristaðar brauðsneiðar feimnislega uppúr brauðristinni og bíða þess í heitri eftirvænt- ingu að verða smurðar og etnar: -Hef ekki svo mikið að gera? Það er nú bara fullt starf, mín kæra, að sjá um fimm manna fjölskyldu og þetta stóra hús. -Stóra hús? Stóra hús? Þú sérð þá eftir því núna að hafa bolað mömmu burt; að hafa gabbað pabba uppá þig til þess að ná honum frá henni. Ég skil sko ekkert í honum að hafa látið hana fara frá sér með yngri systur mínar tvær. Og hvað fær hann í staðinn? Jú, ókei, unga gellu, helmingi yngri en hann, Ijós- hærða með gráblá augu, kyssilegan munn, stórar bobbingar, ekkert ólögulegt andlit og tilbúna í tuskið, en ósköp eitthvað rassbreiða og klossaða. -Svona þegiðu, fíflið þitt! Ég skal svo sann- arlega segja honum pabba þínum hvernig þú hagar þér; næst þegar hann er í landi; láta hann koma vitinu fyrir þig. Þótt það væri kannski réttast að ég gripi til eigin ráða núna strax og reyndi sjálf að troða einhveiju viti í þinn hænuhaus. Og kannski það lánaðist ef ég tæki frá þér krógann, kæmi honum fyrir kattamef, bikkjan þín! Síðustu orðin eru sögð skyndilegum haturs- ofsa og undirstrikuð misheppnuðum kinn- hesti. Höggið lendir á hönd og hnakka Elísa- betar sem hefur snúið sér snöggt undan, bor- ið hönd fyrir höfuð sér, hniprað sig saman einsog lítill fugl sem bælir sig í roki og verst því að vindhviða feyki honum burt. Barnsgrátur kemur í veg fyrir frekari löðr- unga og orðaskak. Margrét róast nokkuð, lík- tog gráturinn snerti huldar móðurtaugar: -Svona, Beta, greyið hugsaðu nú einusinni um krakkann þinn. Það er kominn pelatími fyrir hann. Skiptu nú á honum og komdu svo með hann. Ég skal blanda í pela handa honum á meðan. Elísabet hverfur fram og minnir enn á fugl, vængbrotinn fugl sem dregst burt. Margrét hirðir óhreint glasið vélrænt af borðinu og gengur að skáp við hlið eldhúsgluggans, opn- ar hann og tekur fram pela. Síðan stendur hún með glas og pela hvort í sinni hendi og starir hugsi útum gluggann útí föla dagrenn- inguna sem þreifar blíðum og vaxandi ágúst- höndum á húsunum í þorpinu í eftirvæntingar- fullri bið eftir morgunsól á gægjum. Síðarmeir vissi Margrét ekki hvort það var þá, þama við gluggann með glasið og pelann í höndunum, sem henni flaug fyrst í hug að gera alvöru úr hótunum sínum: að losa sig við krógann fyrir fullt og allt. „Og hví ekki stelpufíflið líka?“ Ifyrstu dagana var þetta aðeins óljós gran- ur, myrkur falið í dimmum hugarfylgsnum, skuggi í skúmaskotum sálarinnar; svartar hugsanir sem smámsaman gægðust uppúr djúpi dulvitundarinnar, skutu upp kollinum og gáraðu yfirborð hugans. Hún reyndi í fyrstu að færa þær strax í kaf aftur, kveða þær niður, stugga þeim burt en þeim óx ás- megin smátt og smátt eftir þvi sem sumrinu þvarr móður, sóttu að henni aftur og aftur, sí nærgöngulli, læddust að henni óvarri þegar hún átti sér einskis ills von, komu skyndilega á sálargluggann, fylltu uppí ’nann, þessi kols- vörtu óskepi, og störðu inn augnlausum tóft- um. Og stundum urðu þessir draugar nánast hlutkenndir, áþreifanlegir: stundum á kvöldin þegar hún sat á náttkjólnum á kolli fyrir fram- an spegilinn inní hjónaherbergi og greiddi sítt hárið og virti fyrir sér aðlaðandi ásjónu sína, fannst henni skyndilega gripið ísköldum hönd- um um nakinn hálsinn og hert að svo að hún tók andköf og sá kaldann svita og óttasvip spretta fram á fölnuðu andliti sínu í speglin- um. Og það brást ekki að sú litla ókyrrðist í rúminu, kveinkaði sér örlítið fyrst einsog henni væri illt, vældi einsog lítill hvolpur en brast síðan í skerandi grát. Og móðirin stóð uppaf kollinum, tók telpuna upp, settist á hjónarúm- ið, brá hlíra af öxl sér, lyfti þungu bijósti uppúr náttkjólnum og gaf henni að sjúga um leið og hún sönglaði sefandi rómi: -Svona prinsessan mín prúða, prinsessan mín prúða! Vertu ekki hrædd, mamma er hjá þér! Mamma er hjá þér! Margrét var hætt að geta sofið á nóttinni. Eftir því sem leið frammá haust og vetur, eftir því sem daginn stytti, varð henni erfið- ara um svefn. Það var einsog þessar aftur- göngur hefðu sest að í húsinu um leið og nóttin náði tökum á náttúranni, smogið innum gluggana með vetrarmykrinu, þröngvað sér undir útidyrahurðina. Hún fékk það á tilfinn- inguna að kjallarinn væri orðinn fullur af svartmyrkri; svartmyrkri sem skriði upp stig- LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 23. SEPTEMBER 1995 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.