Lesbók Morgunblaðsins - 21.10.1995, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 21.10.1995, Blaðsíða 7
I v ' ' ■ . ‘‘ia'Vt»v. ■„’rf.íc.'í5 '■Í&&-4 ÍáSpi:ft3 I 3 0MgÍS iðlfep ms«ri WMÆM. Á HAUKADALSHEIÐI: Efst: Eins og „bleikir akrar og slegin tón“þar sem Fyrir skömmu var örfoka Iand. Næstefst: - Hér var fyrsta tilraunin gerð með heybagga og melsániugu og árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Bak við hólinn er minnisvarðinn um Greip Sigurðsson landgræðsluvörð í Haukadal. Næstneðst: Flæmi með súru á miðri heiðinni. Hún þykir afbragð og er undanfari víðisins. Þarna er margskonar blómgresi, geldingahnappur, músareyra, lambagras, holurt, melskriðnablóm og blóðberg. í baksýn eru Hagafellsjökull, Mosaskarðsfjall, Einifell og Jarlhettur. Neðst: Lúpína í þurr- um vatnsfarvegi - „bjargvætturinn" eins og Kristín Igndvörður nefnir hana. Hlaupin hafa borið milljónir tonna af jök- ulleir og sandi út í Sandvatn, norðaustan- vert við Haukadalsheiðina, og Farið hefur haldið þeim framburði áfram. Þar hefur verið annað vandræðasvæði; leirur sem tjúka í þurrki á gróðurlendi heiðarinnar. Lengi hefur þótt brýnt verkefni að hækka vatnsborð Sandvatns með stíflu þar sem Ásbrandsá og Sandá renna úr því og raun- ar er það alger forsenda þess að takist að vinna endanlegan sigur í baráttu við eyðing- aröflin á Haukadalsheiði. Þetta hefur nú tekizt fyrir tilstilli íslandsbanka; bæði starfsfólksins þar og bankans sjálfs. Byijað var á stífluframkvæmdum í fyrrahaust og stefnt að því að kaffæra leirurnar í svo nefndum Syðri-Flóa. Á loftmyndinni sem Ragnar Axelsson hefur tekið og hér fylgir með, sést hvemig vatnið lítur núna út. Grjót Þar Sem áður VAR MÝRI Skriflegar heimildir skortir og lýsingar í munnlegri geymd eru fáar um Haukadals- heiði eins og hún var, til að mynda á síð- BERINGSPUNTUR er ein hinna innfluttu tegunda sem reynzt hafa frábær- lega. Efst: Kristín Sigurðardóttir landvörður í puntunum við Sjónarhól. í miðju: Punturinn bylgjaðist eins og komakur vestur á Moldum; Kálfstindar og Högnhöfði í baksýn. Neðst: Ekið um götuslóða þar sem allt var örfoka fyrir fáeinum árum. ustu öld. En ömefni hafa geymst og þau segja sína sögu. Eitt þeirra er Grasdalir, kvos í heiðinni austan við Sandfell. Sandur- inn eyddi með tíð og tíma öllum gróðri þar. í Grasdölum var Norðlingatjörn. Hún fyllt- ist af sandi og hvarf. Um miðbik heiðarinnar var sá staður sem hét Stóra-mýri. Þar var heyjað á engjum fyrir rúmri öld, en uppúr 1930 hafði áfok nær þurrkað upp mýrina og síðan blés hún upp. Þegar aðgerðir hófust að snúa við þess- ari óheillaþróun eftir 1960, blés þar enn úr þurrum mó. Nú er þessi fyrrverandi mýri að gróa upp aftur; þar er komin fífa og starir. I Héðinsdæld, mýrardragi sunnan við Stóru-mýri, var sel og þar var heyjað fyrir 90 ámm. Þar er nú aðeins grýttur melur á illa blásnu svæði sem bíður aðgerða. Sama er að segja um Fögmflöt við Sandfell, þar sem áður var heyjað. Frá Sjónarhólum, á hrauninu norðan við Sandfell, og inn að Fari lágu fyrr meir þær götur sem kenndar vora við Norðlendinga, nefndar Norðlingagötur. Að sögn Sigurðar Pálssonar bónda í Haukadal, lagðist þessi leið af uppúr 1850. Þar var land allt gróið fram til 1929. Síðan byijaði þar verulegur uppblástur; vafalaust í tengslum við jökul- hlaupið 1929. Svæðið var þá nefnt Torfur vegna fjölda rofabarða. Um 1960 var svæð- ið nær allt örfoka og moldar- og sandmökk- urinn sem þessi skrifari man eftir úr æsku, hefur ugglaust átt upptök sín þar að vem- legu leyti. Svæðið hefur í seinni tíð verið nefnt Moldir og þar hefur mikill sigur unn- izt síðastliðin tvö ár. Nú blæs þar ekki leng- ur upp; aðeins örfá rofabörð standa eftir, sum ótrúlega há. Græn slikja var komin á Moldirnar í ágúst og uppúr þeim standa óteljandi dökkgrænir hólar þar sem melgres- ið hefur safnað að sér sandi og bundið hann. Sandurinn sem Ámi Magnússon nefnir í jarðabók sinni, hefur að öllum líkindum borizt frá Sandvatni fram á miðhluta heiðar- innar. Þar hófst uppblásturinn á svæði sem nú heitir Skersli og merkir gijót. Sá upp- blástur átti f tímans rás eftir að ná niður í byggð eins og blasir við þegar ekið er þjóðveginn frá Geysi að Gullfossi. Hinsveg- ar stendur eftir í fullum blóma ríkuega gró- ið svæði næst Tungufljóti; þar heita Fljóts- botnar og er þar sumstaðar erfitt yfirferðar í hvannstóði og háu grasi. FRIÐUN í 30 ÁR Upphaf friðunar Haukadalsheiðar var árið 1963, þegar Greipur Sigurðsson í Haukadal var ráðinn til starfa sem landvörður. Þá var girt norðanmegin úr skógræktargirðingunni í Haukadal og allar götur norður í Far. Heimalönd í Haukadal voru hinsvegar friðuð 1938 og stóð Skógrækt ríkisins fyrir því. Síðan var girt meðfram Sandvatni og Ás- brandsá árið 1967. Greipur vann mikið og i i \ i i i i i i l i : : LESBÓK MORGUNBLAQSINS 21. OKTÓBER 1995 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.