Lesbók Morgunblaðsins - 21.10.1995, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 21.10.1995, Blaðsíða 8
SANDVATNséð úr lofti., Nú hefur verið stíflað við frárennslið íÁsbrandsá Ljosm.Morgunbiaðið/RAX. og Sandá og vatnið nær nú yfir leirur sem áður rauk úrþegar þornaði. árangursríkt starf á heiðinni í nærri þrjá áratugi og þar féll hann frá fyrir aldur fram haustið 1990. Við starfi landvarðar tók þá ekkja Greips, Kristín Sigurðardóttir, og gegnir því enn. Hún tók að sér að vera mér til leiðsagnar í sumar, þegar meðfylgjandi myndir voru teknar á einum fegursta degi sumarsins; litskrúð hvert sem litið var og víða ilmur í lofti af blómgresi. Við Línuveginn á miðri heiðinni, þar sem fyrist var gerð tilraun með heybagga, stend- ur nú hlaðinn minnisvarði um Greip í Haukadal. Fóru þeir Greipur og mágur hans, Bjöm í Úthlíð, með vélbundna heybagga og voru þeir settir í röð á svæði þar sem sandur- inn var á sífelldri hreyfingu. A þennan hátt er hægt að flytja íjölbreytt lífríki í dauða jörð og baggamir mynda ákjósanleg skilyrði fyrir melgresið, sem síðan var sáð. Er skemmst frá því að segja að þessi hryggur er nú orðinn um það bil tvær mannhæðir. Til skamms tíma hefur einhver sandur fokið í hann, en melgresið hefur alltaf yfirhöndina. Heybaggarnir reyndust mun árangursrík- ari en skjólborð sem reist voru þvert á ríkj- andi vindátt á fyrstu árum uppgræðslunn- ar. Fyrir 1970 var byrjað var á því að ýta niður rofabörðum, sem vom sem óðast að eyðast, og síðan var sáð í sárin og borinn á áburður. Nú er þar vel gróið land. Þegar eftir 1963 var farið að sá melgresi, einkum í Moldimar, sem fyrr era nefndar, og á vesturhluta heiðarinnar. Nær árvisst hefur melgresi verið sáð í heiðina síðan og talið að um 2000 hektarar séu grónir melgresi, þó ekki samfellt. Fyrir aldarfjórðungi, árið 1970, var byrj- að að bera á úr lofti og til þess notuð lítil flugvél, sem flaug frá framstæðum flug- velli við Haukadal og bar hún hálft tonn. Síðar kom svo til sögu Douglasvélin Páll Sveinsson, sem Flugleiðir gáfu Landgræðsl- unni og er hún enn notuð. Lúpínan Er b jargvættur „Fyrstu árin vann Greipur einr. því Qárveit- ingin leyfði' ekki meiri mannafla", segir Kristín. „Síðar var hann með 4-6 stráka með sér, bæði við sáningar og í girðingun- um. Þá var allt melfræ herfað niður með herfi sem sett var aftan í traktor. Á síðustu ÞANNIG leit verkefnið út - og raunar ennþá, því mikið er óunnið á Hauka- dalsheiði. Að ofan: Hér er mold að eyðast af völdum vatns og vinda. Að neðan: Gersamlega örfoka svæði eins og þetta eru látin bíða. Þar getur ekkert versnað. STARFSFÓLK íslandsbanka á stiflugarðinum við Sandvatn. árum hefur aftur á móti verið sáð með raðs- áningarvél sem Hagkaup gaf Landgræðsl- unni. Þetta er afkastamikil vél sem sett er aftan í traktor og gefur áburð um leið. En hún nýtist ekki á grjóti eða þar sem dráttar- vélin kemst ekki yfír. Fyrirtæki og samtök hafa stutt upp- græðslu á Haukadalsheiðinni. Þar á meðal er „Átak í landgræðslu“ undir forystu Árna Gestssonar í Globus, Olís, íslandsbanki og starfsfólk bankans, Rotaryklúbbar á ís- landi, Lionsklúbbur Biskupstungna og Li- onsklúbburinn Freyr í Reykjavík. Á árunum 1988-91 stóð hópur fyrirtækja og einstakl- inga að söfnun til uppgræðslu á heiðinni og gaf hún af sér 27 milljónir króna. Það má því segja að margir séu á bak við þann árangur sem náðst hefur.“ Á leiðinni niður af heiðinni liggur vegar- slóðinn yfir grýtta fláka og þar sést að lú- pínan er búin að nema land. í ljósi þess að reynt hefur verið með ákafa sem minnir á trúarofstæði að líta á þessa plöntu sem ill- gresi og sérstakan varg meðal innlendra plantna, lék mér forvitni á að heyra álit landvarðarins í Haukadal. „Lúpínan er bara bjárgvættur hérna“, segir Kristín. „Hún vex þar sem enginn jarð- vegur virðist vera, bæði í farvegum og á grýttum flákum þar sem enginn annar gróð- ur er til. Og reynslan hér sýnir að hræðsla við hættulega útbreiðslu hennar er óþörf. Það era áratugir síðan lúpínu var sáð í rof og farvegi, sem náðu niður í skóg. Lúpínan dafnar þar en breiðist alls ekki út og lætur annan gróður í friði. Við sáum lúpínu í svæði sem era svo grýtt og ill yfirferðar að raðsáningarvélin kemst þar ekki um. Til þeirrar sáningar er notað áhald sem heitir plöntustafur. Lúpínan er alin upp í gróðurhúsi í Haukadal; að vísu við lítinn hita. Síðan era plöntumar hertar með því að hitinn er tekinn alveg af húsinu og um leið og hættir að fijósa á vorin, eru þær bornar út.“ Landgræðsluáætlun fyrir Haukadalsheiði fram til ársins 2000 hefur verið gerð og verður unnið eftir henni. Þar er tilgreint hvað gert verður á hveiju ári og hljóðar áætlunin svo fyrir næsta ár: Nýsáningar: Sáð verður mel með raðs- áðvél í 30 ha. sunnan Sandvatns. Ber- ingspunti og áburði verður dreift í rofa- börð í Skyggnisheiði, um 50 ha. Beringsp- unti og túnvingli verður dreift við eldri sáningar sunnan Línuvegar í 50 ha. Lúp- ínu verður sáð í vatnsrásir í Sandfelli, um 24 ha. Lúpínu verður sáð við Sand- vatn, í um 40 ha. Styrkingar: Rofabarð- asáningar á Skyggnisheiði, um 50 ha. Eldri sáningar á Moldum, um 50 ha. Eldri flugsáningar við Línuveg, um 300 ha. Eldri sáningar við Sandvatn, um 130 ha. Annað: Plantað verður lúpínu í um 1100 ha. á svæðinu sunnan Fars og suður fyr- ir Línuveg. Um 50 þús plöntum verður plantað út með 15 metra millibili. Einnig verður plantað um 10 þús. plöntum af baunagrasi, birki og víði. Unnið verður að slóðalagningu, almennu viðhaldi girð- inga auk þess sem endurnýjaður verður 5 km. kafli eldri girðinga. Lífrænir sand- vamargarðar verða gerðir sunnan Sand- vatns. En hvað skyldi stór hluti heiðarinnar núna vera örfoka og ógróinn? Kristín segir að ekki sé til nákvæm mæling á því, en gizkar á að það sé fjórðungurinn. „Ennþá verður uppblástur ef hvessir.", segir hún, „einkum á Skyggnisheiði, austanvert á Haukadals- heiðinni. Þar er mjög viðkvæmt svæði og það er næst á dagskrá að stöðva allt fok þaðan. Þar era bæði börð og ávalar moldar- bungur sem gott er að sá t Aðaláherzlan er alltaf á að stöðva uppblástur; vinna þar sem landið er að eyðast. Alveg örfoka land er þá látið bíða.“ Það sem umfram allt þarf þó að gera er að stífla þröngan farveg Farsins, þar sem það skar sér leið úr Hagavatni. Allri upp- græðslu á Haukadalsheiði stafar enn hætta af leirunum við Hagavatn. Þetta er tiltölu- lega einföld framkvæmd, en hér verður enn að treysta á þjóðholl fyrirtæki. Á leið okkar vestur í Moldir lá vegarslóð- inn yfir flæmi vaxið svo háum Beringsp- unti, að hann tekur manni í mitti. Kristín sagði að breytingin þarna á fáeinum árum væri kraftaverki líkust. Allt var þar örfoka áður. Og hvað eftir annað var sáningin unn- in fyrir gíg. En tvö síðastliðin sumur hafa alveg ráðið úrslitum, segir hún. Engin norð- an áhlaup, en alltaf hlýtt og vel rakt, eink- um nú í sumar. Mér fannst ég í rauninni vera að koma á ókunnugt land, með breiðum af súra og blómgresi; land vaxið grasi og punti sem var skriðinn og búinn að taka á sig litblæ haustsins og bylgjaðist eins og kornakur fyrir golunni. Ótrúleg sjón og eftirminnileg.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.