Lesbók Morgunblaðsins - 12.07.1997, Blaðsíða 10
ERLENDAR
BÆKUR
UPP-
SPRETTUR
DYGGÐAR-
INNAR
Matt Ridley: The Origins of Virtue.
Viking 1996.
ÞRÁ til lífs, til lífs í lægsta
ormi... “ Einar Bene-
diktsson: Kvöld í Róm -
Einkenni „genanna" er
vart skýrar tjáð en með
þessum orðum Einars
Benediktssonar. Richard
Dawkins segir í bók sinni
„The Selfish Gene“ Oxford 1976 - frá
áhrifum genakenninga George Willimans
og Williams Hamiltons. „Við erum mót-
aðir fyrirfram til þess að halda lífi í og
framlengja líf erfðavísanna - genanna -
sem marka líf manna og mannheima.
Þótt ég hafi vitað þetta svo árum skipt-
ir, gengur mér illa að venjast kenningun-
um.“ Svo er um fleiri.
Genakenningarnar eru nýjustu kenn-
ingar um hver sé og hvar sé að fínna
þá kveikju og það mótunarafl sem marki
mannlega viðleitni. Er þetta verk mann-
anna sjálfra, guðanna, umhverfísins,
samfélagsins? Er „fastmótað mannlegt
eðli“ staðreynd? Meðfæddir og erfiðir
eiginleikar af mismunandi gerðum stang-
ast á við aðrar kenningar um áhrif um-
hverfís og jafnvel gjörlegar breytingar á
„mannlegu eðli“. Kenningar Rousseaus
og Hobbes um hinn vammlausa villimann
og eigingirnina sem kveikju að mennsku
hátterni hafa löngum verið deiluefni.
„Maðurinn er fæddur fijáls, en alls stað-
ar sé ég hann í hlekkjum." - Rousseau.
Þessu var svarað af Hobbes-geiranum -
De Maistre o.fl.: „Sauðkindin er fædd
kjötæta, en hún er alls staðar á beit.“
Ridley skrifar þessa bók til þess að
leita útskýringa á þeirri þverstæðu að
hugmyndir okkar séu „programmeraðar"
af genum, kveikju hegðunar og skoðana
sem leitast við að tryggja eigin hag og
byggist á eigingirni, en þessu fylgja eig-
inleikar sem eru þvert á eigingirnina,
aðstoðarhvati og tillitssemi við aðra. Það
þýðir að maðurinn er gæddur hvötum til
samfélagslífs. Maðurinn getur ekki lifað
án samfélags við aðra menn. Ridley leit-
ast við að útskýra þessa þverstæðu í bók
sinni með tilvísunum til lifnaðarhátta
ótal dýrategunda og allt niður í bakter-
íur. Sem sagt tillitssemi við aðra er ein-
staklingnum lífsnauðsyn og einnig að sjá
hag sínum sem best borgið. Menning
mannheima á sér langa sögu, efnahags-
leg og andleg. Höfundur skrifar: „Sið-
fræðikröfur voru einkenni mannheims
löngu fyrir stofnun kirkjunnar, verslun
löngu fyrir myndun ríkja, vöruskipti fyr-
ir daga peninga, samkomulag um lög
og venjur löngu fyrir daga Hobbes, vel-
ferðarstefna löngu fyrir mannréttindakr-
öfurnar, fégræðgi og hagsmunabarátta
löngu fyrir daga Adams Smiths og fyrir
daga „kapítalismans". Maðurinn er æði
gamall og hann ber í sér nákvæmlega
sama eðli og í árdaga. Lionel Trilling
skrifar: „Maðurinn virðist eiga einhvern
varasjóð í gervi mennskunnar, sem
þvinganir og harðstjórn nær ekki til.“
Þessvegna misheppnast framkvæmd
allra hugmyndafræða, sem vinna að því
að umbylta manninum í þægt og hannað
vinnudýr, sem lifír með hag heildarinnar
fýrir augum, og sem markmið.
Verkaskipting, stéttaskipting, verkleg
og andleg menning byggist á því leiðar-
hnoða eða kveikju sem felst í erfðavísun-
um. Maðurinn er einstaklingur og jafn-
framt hæfur til að lifa með öðrum ein-
staklingum en sem hrein samfélagsvera,
aðeins gæddur samfélagslegri virkni,
verður hann afskræmi, þokukennd vera,
meðvitundarlítill fáráðlingur. Tilraunir
til slíkrar sköpunar hafa alltaf mistekist
og munu mistakast. Staðhæfíng Lionels
Trillings stenst.
SIGLAUGUR BRYNLEIFSSON
NY STJARNA
FRÁ SKOTLANDI
KOSKI leikarinn Ewan
McGregor annar ekki eftir-
spurn enda virðist hann geta
leikið hvað sem er. Á síðasta
ári var hann í myndunum „Tra-
inspotting“ og Emmu, einnig
„The Pillow Book“ eftir Peter
Greenaway, „Brassed Off“ var
frumsýnd í Bretlandi fyrir síðustu jól en í
henni leikur hann kolanámumann, Næturvakt-
in er nýr tryllir með honum og Nick Nolte
endurgerð samnefnds dansks tryllis og Ewan
mun væntanlega leika Obi Wan Kenobi í næstu
Stjörnustríðsmynd. Hann hefur lokið við að
leika í tveimur myndum til viðbótar, önnur
gerist í London á áttunda áratugnum en hin
fjallar um skoskan draumóramann á ferð um
Bandaríkin.
Kameljón
Sagt er að Ewan McGregor sé athyglisverð-
asti skoski kvikmyndaleikarinn sem fram hef-
ur komið síðan Sean Connery steig sín fyrstu
spor á hvíta tjaldinu. Líkt og Daniel Day-Lew-
is og Gary Oldman er hann sannkallað kame-
Ijón kvikmyndanna sem breytt getur sér í allra
kvikinda líki; framleiðendur og leikstjórar
segja að hann sé efni í stórstjörnu. Sjálfur er
McGregor undrandi yfir velgengni síðustu
tveggja ára og skrifar hana á einfalda heppni.
„Eg hef verið mjög heppinn“,_ segir hann
nýlega í The New York Times. „Ég hef alltaf
fengið eitthvert verkefni upp í hendurnar þeg-
ar öðru hefur lokið. Og núna hef ég meira
að segja tækifæri til þess að velja á milli verk-
efna. Það getur ekki orðið betra.“ Ewan er
frá bænum Crieff í Skotlandi og fékk áhuga
á leiklist þegar hann var níu ára. Frændi hans
er leikarinn Denis Lawson og hafði hann nokk-
ur áhrif á hvaða stefnu Ewan tók í lífinu.
Dawson lék á sviði og í kvikmyndum og er
kannski eftirminnilegastur sem kráareigand-
inn í mynd Bill Forsyths, „Local Hero“, frá
árinu 1983 (hann fór einnig með lítið hlutverk
í öllum þremur Stjörnustríðsmyndunum).
„Hann var alltaf allt öðruvísi en annað
fólk í kringum mig og á þessum aldri
vildi ég vera öðruvísi eins og hann,“
segir McGregor. „Þannig að ég ákvað
að gerast leikari og lét engann aftra
mér frá því.“
Skoskwr dóphaws
Hann hætti í skóla þegar hann var
16 ára og vann um tíma við leikhús í
Perth-skíri, aðallega baksviðs. Hann hóf
leiklistarnám í London og var þar í þijú
ár en árið 1992 fékk hann sitt fyrsta
stóra hlutverk í sjónvarpseríu Dennis
Potters, „Lipstick on Your Collar", eink-
ar skoplegri tónlistargamanmynd sem
ríkissjónvarpið sýndi á sínum tíma. Ewan
hefur ekki stoppað síðan. Eftir tvö minni-
háttar hlutverk, annað var í vondri mynd
Forsyths, „Being Human“, þar sem leikar-
inn fór með eina setningu, „Ég skal gera
það, don Parlo", var hann ráðinn af framleið-
andanum Andrew Macdonald og leikstjóranum
Danny Boyle til þess að fara með eitt aðalhlut-
verkanna í mynd sem þeir höfðu í undirbún-
ingi og hét „Shallow Grave". Myndinni var
tekið fagnandi í Bretlandi og víðar þegar hún
var frumsýnd jafnt af gagnrýnendum sem al-
menningi enda var hún velheppnuð sem mein-
hæðin glæpakómedía og uppasatíra. Ewan
átti stóran þátt í velgegni hennar en hann var
í hlutverki blaðamanns frá Edinborg er fann
lík í íbúð sem hann leigði með tveimur öðrum.
„Ég hélt að þetta gæti orðið athyglisverð bíó-
mynd,“ er haft eftir honum, „en það var ekki
fyrr en ég hafði séð grófklippta útgáfu henn-
ar sem ég hugsaði með mér, guð minn almátt-
ugur, gerðum við virkilega þessa mynd?“
Hann hélt áfram samstarfinu með Macdon-
ald og Boyle í myndinni „Trainspotting" og
hefur eflaust orðið jafnundrandi yfír þeirri
útkomu. í henni lék hann nauðasköllóttan
eiturlyfjafíkil að nafni Renton en Ewan
þurfti að létta sig um ein 15 kíló áður en
hann lék hann. „Renton var á heróíni,"
segir leikarinn, „svo hann var engin buff-
kaka“. „Trainspotting" varð einhver vin-
sælasta og ábatasamasta bíómynd sem
óháðir framleiðendur höfðu gert í mörg
ár. Hún kostaði 210 milljónir króna í fram-
leiðslu en hefur aflað meira en fjögurra millj-
arða króna um heim allan.
Trygglyndwr
Ewan hefur lokið við að leika í þriðju mynd
félaganna (handritshöfundurinn John Hodge
er þriðji maðurinn í samstarfinu). Hún heitir
„A Life Less Ordinary" og er fyrsta myndin
sem þríeykið gerir í Bandaríkjunum. Um er
að ræða svartkómíska rómantíska gaman-
mynd sem tekin er í Utah og verður frumsýnd
nú í haust. Ewan leikur Skota sem rænir dótt-
ur ófyrirleitins kaupsýslumanns en með hlut-
verk dótturinnar fer Cameron Diaz.
Ein af nýrri myndunum með Ewans var
frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í
vor. Hún heitir „The Serpent’s Kiss“ og segir
af fjölhæfum garðarkítekt í Gloucester-skíri
árið 1699 og samsærum og svikum honum
tengdum. Ewans leikur garðarkítektinn sem
nýríkur uppskafningur, leikinn af Pete Post-
lethwaite, er einnig leikur á móti honum í
„Brassed Off“, fær til þess að koma upp lysti-
garði á landareign sinni ef það mætti verða
til þess að gleðja daufgeðja eiginkonu hans,
en Greta Scacchi leikur hana. Þetta er fyrsta
myndin sem franski kvikmyndatökumaðurinn
Philippe Rousselot leikstýrir. Hann hlaut ósk-
arsverðlaunin fyrir tökuna á mynd Robert
Redfords, „A River Runs Through It“. Rousse-
lot á ekki nógu sterk orð til þess að lýsa
Ewans. „Hann hefur frábært útlit og smell-
passaði í hlutverkið; hann var sá fyrsti sem
var ráðinn.“ Framleiðandinn, Robert Jones,
hælir leikaranum unga fyrir trygglyndi. „Það
tók langan tíma að koma þessari mynd í fram-
leiðslu," er haft eftir honum, „og hann hefði
getað hætt við hvenær sem er en hann fór
hvergi. Allir vilja vinna með honum.“
Fyrir tveimur árum fóru tökur fram á nýj-
ustu mynd Peter Greenaways, „The Pillow
Book“. Myndin gerist í Hong Kong og fer
Ewan með hlutverk tvíkynhneigðs túlks frá
Bretlandi sem kemst í kynni við rithöfund
er notar líkama hans fyrir handrit. Rit-
höfundurinn, sem er kona, skrifar með
skrautskrift á nakinn líkama túlksins
og sendir hann síðan til útgefanda
síns, sem er samkynhneigður. „Þegar
tökur stóðu yfir á atriðunum þar sem
ég var með skrautskriftina á líkaman-
um fór ég inn í þetta ískalda upptöku-
ver klukkan fjögur á næturnar og lá
útaf uppi í rúmi með hitablása á hvora
hlið,“ segir McGregor. „Ég lá í rúminu
í tvær klukkustundir á meðan þeir
máluðu framan á mig og sofnaði iðu-
lega á meðan á því stóð. Eftir það
varð ég að standa upp á endann í tvær
stundir í viðbót á meðan þeir máluðu
aftan á mig, sem varð þreytandi til
lengdar. En það var stórkostlegt að
gera þá mynd“.
Það kom honum í góðar þarfir þegar
hann lék kolanámumann í „Brassed Off“
að hann hafði tónlistarmenntun. Persóna
hans í myndinni leikur á blásturshljóðfæri en
Ewan hafði lært það í skóla. Það sem þó höfð-
aði mest til hans og gerði það að verkum að
hann ákvað að leika í myndinni var sú sam-
úðarfulla lýsing sem myndin gefur af hnignum
breska kolaiðnaðarins. „Þetta er ákaflega
ástríðufull mynd um eyðileggingu samfélags."
Þá lauk hann nýlega við að leika í mynd Todd
Haynes, „Velvet Goldmine", sem tekin var í
London og gerist á áttunda áratugnum. Og
fljótlega hefjast tökur á Stjörnustríði I þar sem
hann mun væntanlega feta í fótspor Alec
Guinness sem Obi Wan ungur.
„Ég held ég yrði skelfing leiður á því að
leika alltaf sama karakterinn," segir þessi
ljölhæfi leikari. Eins og sjá má af upptaln-
ingu þeirra hlutverka sem Ewans hefur
farið með á stuttum ferli, hann er aðeins
26 ára gamall, er ljóst að hér er á ferð-
inni sjaldgæflega gott efni í kvikmynda-
leikara framtíðarinnar. Hann hefur þegar
sýnt og sannað að hann getur leikið
hvað sem er.
LÉTTI sig um 15 kiló; sem fíkillinn
Renton í„Trainspotting“.
Fáir kvikmyndaleikarar
hafa vakió eins mikla
athygli upp á síókastió
og Skotinn Ewan
McGregor, segir
ARNALDUR INDRIÐA-
SON, og fáir hafa meira
að gera. Hér segir af
hinum unga leikara sem,
eins og Daniel Day-Lewis
og Gary Oldman, er
sannkallaó kameljón
kvikmyndanna
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 12. JÚLÍ1997