Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1998, Qupperneq 11
*
IRINAS nya liv eftir Nils Gredeby og í leikstjórn Suzanne
>sten kemur hingað til lands frá Borgarleikhúsinu í Stokk-
hólmi og leikhópnum Unga Klara.
s og Virgin. Hann hefur fast aðsetur í Royal College of Music
Lundúnum og hefur haldið tónleika um allan heim. Kvartett-
in er 25 ára gamall en frá árinu 1995 hefur Asdís Magnús-
óttir gegnt þar stöðu víóluleikara. Gestaleikari á tónleikunum
Listahátíð verður Einar Jóhannesson klarinettuleikari. Tón-
ikarnir verða í íslensku óperunni 27. maí og á efnisskrá eru
»rk eftir Haydn, Janacek og Mozart.
Aðalsópransöngkona Kirovóperunnar í Sankti Pétursborg,
alina Gorchakova, heldur tónleika í Háskóla-
íói 2. júní. Þar syngur Gorchakova rússneska
starsöngva við undirleik Larissu Gergievu.
orchakova sló fyrst í gegn á Vesturlöndum í
lutverki Renötu í óperunni Eldengillinn eftir
rokofiev í Lundúnum árið 1991. Eftir það hefur
ún komið fram í öllum virtustu óperuhúsum
eims; Covent Garden og Royal Albert Hall í
undúnum, Metropolitan í New York, Bastillu-
penmni í París, Þjóðaróperunni í Vín, Kölnar-
perunni, La Scala í Mílanó, ofl. Hún er talin í
•emsta flokki sópransöngkvenna og í The Her-
Id var skrifað um tónleikadagskrána sem flutt
erður á Listahátíð að þar hafi fengist „einstakt
ekifæri til að hlýða á eina mikilfenglegustu
ingrödd samtímans."
Með aðstoð franska sendiráðsins hefur Lista-
átið tekist að fá hinn heimsþekkta franska
ljómsveitarsjóra Yan Pascal Tortelier, aðal-
.jórnanda Fílharmóníusveitar BBC, til að
jórna tónleikum með Sinfóníuhljómsveit ís-
mds í Háskólabíói 5. júní. Einleikari á fiðlu
erður hin tvítuga Viviane Hagner sem þegar
efur haslað sér völl sem einleikari og leikið
íeð þekktum hljómsveitum og hljómsveitar-
tjórum, s.s. Zubin Mehta og Daniel Barenboim.
efnisskrá eru verk eftir Gabriel Fauré, Alban
erg, Maurice Ravel og Paul Hindemith.
Voces Thules flytja Þorlákstíðir í fimm hlut-
m og á fornum eyktatímum í Dómkirkju Krists
onungs, Landakoti, á Hvítasunnu, 31. maí og 1.
INDVERSKI dansarinn Archana kemur fram í sýningu sem nefnist Seiður Indlands.
IVIUI yui iuiuuiui UUIII
OPNUNARHÁTÍÐ Listahátíðar fer fram í miðbæ Reykjavíkur og við gömlu höfnina þar sem Listasafn
Reykjavíkur vígir nýja sýningaraðstöðu í Hafnarhúsinu.
ViðamikHir myndlistarviðburðir
Myndlistarviðburðir á listahátíð verða bæði
viðamiklir og margvíslegir. í upphafi var getið
um sýningu á úrvali verka úr Errósafni Lista-
safns Reykjavíkurs í Hafnarhúsinu en sýn-
ingin ber yfirskriftina Konur. Erró sýnir
einnig Vasamyndir á samsýningu með Guð-
jóni Bjarnarsyni í Galleríi Sævars Karls,
Bankastræti. Kirkjutextíll Margrétar Þór-
hildar Danadrottningar verður til sýnis í
Þjóðminjasafninu og í Listasafni íslands
verður opnuð sýning á um 60 höggmyndum
eftir súrrealistann Max Ernst. Hlið sunn-
anvindsins nefnist sýning þriggja þekkt-
ustu myndlistarmanna Mósambík sem
verður opnuð í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Odella - að lifa af og Sópaðu aldrei síð-
degis eru tvær sýningar sem verða opnaðar
í Gerðubergi á Listahátíð. Með ljósmyndum
og texta, og fyrir milligöngu ljósmyndarans
Carlotu Duarte, veitir hin 67 ára gamla
Odella frá Bandaríkjunum áhorfendum innsýn
í líf sitt sem markað er af ofbeldi, einmanaleik
og þjáningu. Carlota Duarte hefur einnig sett
saman sérstæða sýningu á ljósmyndum sem
indíánakonur úr Maya þjóðflokknum frá
Chipas í Mexíkó tóku. Frumbyggjar í Chiapas
hafa mátt lifa við stöðugar ofsóknir og
skemmst er að minnast fjöldamorðanna sem
þar voru framin um síðustu áramót. Þessar
konur verða staddar hér á landi við opnun sýn-
ingarinnar.
Listamennirnir Inga Svala Þórsdóttir og Wu
Shan Zhuan sýna Grænmetisleik í Galleríi Ing-
ólfsstræti 8. Tilraun með tilgerðarleysi nefnist
sýning á mannamyndum Agústs Petersens og
portrettum úr listasmiðju barna í Listasafni
Alþýðu, Asmundarsal. Hafsteinn Austmann
sýnir Akvarellur í Stöðlakoti og á sýningunni
Skjáir veruleikans í Norræna húsinu sýna
saman 10 evrópskir listmálarar.
Flögð og fógur skinn er heitið á umfangs-
miklum myndlistarviðburði á vegum íslensku
menningarsamsteypunnar art.is á Listahátíð.
Sýningin verður haldin í Nýlistasafninu og í
tólf búðargluggum á Laugavegi með verkum
hátt á fimmta tugar íslenski’a listamanna. Um
leið verður gefin út vegleg 400 blaðsíðna bók
með greinum eftir fjölda íslenskra fræði-
manna. Verk fjögurra erlendra gestalista-
manna verða á sýningunni, þeirra Barböru
Krúger, Louise Bourgeois, Orlan og Matthew
Barney. Viðfangsefni verkefnisins er mannslík-
aminn eins og hann birtist í menningu okkar.
Nánar verður fjallað um myndlistaiviðburði á
Listahátíð í Morgunblaðinu á næstunni.
Miðasala á Listahátíð hófst 15. apríl hjá Upp-
lýsingamiðstöð ferðamála að Bankastræti 2.
júní. Þessi forna helgitónlist, sem varðveitt er í
íslenskum handritum verður hér flutt í heild
sinni í fyrsta skipti eftir siðaskipti. Þorlákur
biskup Þórhallsson er eini dýrlingur Islend-
inga og í ár eru 800 ár liðin frá því að bein Þor-
láks helga voru tekin úr jörðu. Voces Thules
hafa unnið að efnisöflun og rannsóknum á Þor-
lákstíðum í tvö ár. Verkið hefur verið endurrit-
að með fornri nótnaskrift og sérfræðingur í
miðaldalatínu hefur veitt meðlimum Voces
Thules ráðgjöf um þann framburð sem Islend-
ingar hafa hugsanlega notað á þeim tíma er
Þorlákstíðir urðu til.
A miðnæturtónleikunum Straumar í Iðnó
flytja Martial Nardeau og félagar ásamt Tríói
Reykjavíkur tónlist frá ýmsum heimshlutum. I
tilefni 10 ára afmælis Tríós Reykjavíkur verð-
ur frumflutt verk eftir Jón Nordal. Þá verða
leikin verk eftir Antonín Dvorák, Aaron
Copland, Ravi Shankar, Arthur Piazolla og
Yoshihisha Taira.
Af tónlistarviðburðum á Listahátíð ber loks
að nefna rokk-, salsa og popp-óperuna Carmen
Negi-a sem sýnd verður í Islensku óperunni.
Frumsýnt verður 29. maí. Leikgerð þessi sem
byggist á óperunni Carmen eftir Bizet var gerð
fyrir Kammeroper í Vínarborg árið 1988. Hún
hefur einnig verið sýnd í Tampereen Teatteri í
Finnlandi. Sögusviðið er Santa María, dulúð-
ugt ríki í Suður-Ameríku, í skugga kúgunar,
uppreisnar - og heimsmeistarakeppni í fótbolta.
Klúbbur Listahátíðar ber yfirskriftina Þar
m draumar rætast og verður til húsa í Iðnó.
Þar verður staðið íyrir margvíslegum upp-
ákomum, tónleikum, danssýningum og
fyrirlestrum. Klúbburinn verður sam-
komustaður listamanna og gesta hátíðar-
innar og þar verður rekinn veitingarstað-
urinn Iðnó við tjömina. Viðburðum á
Listahátið lýkur á sjómannadaginn, 7. júní,
en þá verður opnuð sýning á útilistaverk-
um meðfram suðurströnd Reykjavíkur á
vegum Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík,
RUSSNESKA
sópransöngkon-
an Galina
Gorchakova.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 18. APRÍL 1998 1 1