Alþýðublaðið - 16.05.1987, Page 8
MM9UBLMB
m&i
Laugardagur 16. maí 1987
Fyrsta gjaldþrot í Sovétríkjunum
— Verktakafyrirtæki í Leningrad hefurveriö lýst gjaldþrota og starfseminni hætt.
Gjaldþrotið er eitt af dæmunum
um þá nýju efnahagsstéfnu sem
Gorbatsjov flokksleiðtogi hefur
boðað. Hagkvæmni í rekstri og arð-
semi eru skilyrði fyrir því að fyrir-
tækin fái að starfa og á því byggist
hvort áætlanir um umbætur og ný-
sköpun í efnahagslífi landsins geta
orðið að veruleika.
Verktakafyrirtækið, sem hafði
um 2000 manns í þjónustu sinni,
var gert upp m.a. vegna þess að
tímaáætlanir stóðust ekki, vegna
þess að reksturinn var kostnaðar-
samari en áætlað hafði verið og
verkefnin sem það tók að sér ekki
nægilega vel af hendi leyst.
Að sögn fréttastofunnar er lengra
síðan en elstu menn muna, að fyrir-
tæki hafi orðið að hætta starfsemi
sinni af þessum sökum. Gjaldþrot
fyrirtækja hafa verið allt að því
óhugsandi í Sovétríkjunum og öðr-
um Austur-Evrópulöndum fram til
þessa, þar eð þau hafa jafnan feng-
ið alla þá fyrirgreiðslu sem þau
þurftu enda þótt reksturinn væri
ekki sérstaklega til fyrirmyndar.
Ungverjaland og Pólland
til fyrirmyndar
Ungverjaland, sem oft hefur
gengið á undan með góðu eftir-
dæmi þegar efnahagsumbætur
hafa verið annars vegar í austan-
tjaldslöndunum og Pólland sömu-
leiðis, hafa opnað þann möguleika
að gera fyrirtæki gjaldþrota ef þau
standa sig ekki nógu vel.
Sovésk lög um ríkisrekin fyrir-
tæki, sem koma til framkvæmda
síðar á árinu, gera einnig ráð fyrir
þessum möguleika. Lögin gera
einnig ráð fyrir því að yfirmenn og
starfsfólk fyrirtækjanna fái meira
sjálfstæði og meiri ábyrgð á þeirri
starfsemi sem fer fram á viðkom-
andi vinnustað.
Samkvæmt lögunum mun það
verða ákveðið í fyrirtækjunum
sjálfum hve margir starfsmenn
verða ráðnir og hve mikið þeir fá í
kaup. Fyrirtækin munu einnig sjálf
velja sína yfirmenn — þó þannig að
val þeirra sé staðfest og viðurkennt
af æðstu embættismannastjórn
landsins.
Samkvæmt upplýsingum frétta-
stofunnar hafa flest fyrirtæki í
Leningrad tekið upp umbótatillög-
ur Gorbatsjovs alvarlega og haga
rekstrinum af langtum meiri raun-
sæi en áður, en fyrirtækið sem fór á
hausinn var enn fast í gamla stjórn-
fyrirkomulaginu sem tíðkast hefur
um margra áratuga skeið.
Verktakasambandið í Leningrad
ákvað því að starfsemi fyrirtækis-
ins skyldi hætt og verkefnunum
skipt niður á önnur og betur rekin
fyrirtæki á svæðinu.
AHir fá vinnu
Allir 2000 starfsmennirnir sem
missa vinnu sína við lokun fyrir-
tækisins, fá önnur atvinnutilboð og
þurfa því ekki að óttast atvinnu-
missi. Hins vegar óttast sovéskir
launþegar að nýju lögin verði til
þess að laun þeirra lækki. í þeim
eru ákvæði sem leyfa allt að 50%
lækkun launa, ef viðkomandi starf-
semi skilar ekki nægum hagnaði.
•
Sovéskir meðalborgarar bera nokk-
urn kvíðboga fyrir þessari nýju til-
högun og hafa orðið talsverð blaða-
skrif um það í sovéskum blöðum að
undanförnu.
JBfl
*.'. r;-> H| '.l 1, íi-'"
Það er auðvitað ekki útséð með endanlega upphæð
vinningsins,en allt bendir til þess að hann verði
einn stærsti happafengur sem um getur á fslandi.
LITLAR 25 KRÓNUR
GETA FÆRT ÞÉR
12.000.000,- KRÓNA
Par sem þátttakan í landsleiknum er óhemju mikil að þessu sinni,
er ekki ráðlegt að bíða með það fram á síðustu stundu að fá
afgreiðslu á sölustað.