Alþýðublaðið - 02.09.1989, Blaðsíða 8
MMUMMHI
Laugardagur 2. sept. 1989
Innganga Borgaraflokks í ríkisstjórn
Reykjavíkurhöfn:
Nýr
hafnar-
stjóri
Hannes Valdimarsson
byggingarverkfræðingur
hefur tekið við stöðu hafn-
arstjóra í Reykjavík af
Gunnari B. Guðmundssyni
hafnarstjóra, sem gegnt
hefur embættinu frá árinu
1965, en lét nú af störfum
að eigin ósk.
Hannes hefur verið aðstoð-
arhafnarstjóri frá árinu 1986
og starfað í náinni samvinnu
við fráfarandi hafnarstjóra að
verkefnum tengdum yfir-
stjórn og framtíðaruppbygg-
ingu hafnarinnar. Jafnframt
hefur hann verið fulltrúi í
ýmsum samstarfsnefndum
borgarstofnana á sviði skipu-
lags- og atvinnumála.
Frá upphafi hafa hafnar-
stjórar höfuðborgarinnar
verið fjórir og eiga þeir það
sammerkt að hafa allir lokið
verkfræðiprófi frá Danmarks
Tekniske Hajskole í Kaup-
mannahöfn. Hafnarstjórar
hafa verið þeir Þórarinn
Kristjánsson, Valgeir Björns-
son, Gunnar B. Guðmunds-
son og nú Hannes Valdimars-
son.
Guömundur J. Guömundsson um hœkkanirnar á búvörum:
Landbúnaðarkerfið með
dauðann I brjósti sér
11—15% hækkun er ekkert annad en alvar-
leg bilun hjá ríkisstjórn og bœndasamtök-
unum, segir formaöur Verkamannasam-
bands íslands.
„Það stefnir beint í tor-
tímingu landbúnaðar-
kerfisins. Það ber dauð-
ann í brjósti sér,“ sagði
Guðmundur J. Guð-
mundsson, formaður
Verkamannasambands
íslands, þegar Alþýðu-
blaðið ræddi við hann í
gær um 11—14% hækk-
un á mjólkurvörum sem
tók gildi í gær.
Guðmundur sagði að
þótt bændur væru stritandi
fólk stæðist landbúnaðar-
kerfið ekki lengur. Síhækk-
andi verð á dilkakjöti kæmi
fram í minni neyslu og
sama hlyti gerast með
mjólkina. Neyslan hlyti að
stórminnka.
,,Ég býst alveg eins við
stórsprengingum enda
vinnubrögðin út í hött.
11—15% hækkun er ekkert
annað en alvarleg bilun af
hálfu stjórnvalda og
bændasamtakanna," sagði
Guðmundur aðspuröur um
viðbrögð verkalýðshreyf-
ingarinnar.
„í stað þess að auglýsa
„mjólk er holl“ ráðlegg ég
Mjólkursamsölunni ein-
dregið að auglýsa „mjólk
er dýr". Það væri heiðar-
legra," sagði Guðmundur J.
Guðmundsson, formaður
Verkamannasambands Is-
lands.
SIS selur Samvinnubankann
Landsbanki keypti 52% hlut
Samband íslenskra sam-
vinnufélaga og Lands-
bankinn hafa komist að
niðurstöðu um að Lands-
bankinn kaupi allt hlutafé
SIS og dótturfyrirtækja
þess í Samvinnubankan-
um. Viðræður milli aðil-
anna hafa staðið yfir í allt
sumar og nú virðist sjá fyr-
ir endann á þeim.
Landsbankinn kaupir með
þessu meirihluta í Samvinnu-
bankanum, 52%, en verðið
hefur ekki verið gefið upp.
Samningurinn er gerður með
fyrirvara um samþykki
stjórnar SÍS og bankaráðs
Landsbankans. Stjórn SÍS
kemur saman á sunnudaginn
og tekur ákvörðun í málinu
en bankaráð Landsbankans á
fimmtudaginn.
Endanleg dkvörðun í dag
Nú lítur út fyrir að end-
anleg ákvörðun um það
hvort Borgaraflokkurinn
gengur til liðs við ríkis-
stjórnina verði tekin í dag.
Aðalstjórn fiokksins kem-
ur saman til fundar í dag
og tekur endanlega
ákvörðun um hvort sagt
verður já og gengið til liðs
Skattar á f jármagn
Fjármagnsskattanefnd,
sem m.a. hefur fjallað um
skatta af fjármagnstekj-
um, leggur til breytingu
sem feli í sér 1—1,5 millj
arða tekjur, sem verði not
aðar til að lækka eigna
skatta. Samkvæmt tillög
um nefndarinnar yrði
skatturinn innheimtur
staðgreiðslu.
Jafnframt gerir nefndin ráð
fyrir að arðgreiðslur fyrir-
tækja verði skattfrjálsar en
einstaklingar greiði arð sem
fenginn er af hlutafjáreign.
En til að greiða fyrir viðskipt-
um með hlutabréf leggur
nefndin til aö sett verði
ákvæði um skattafrádrátt.
Þrátt fyrir breytingarnar
leggur nefndin m.a. til að
vextir af sparisjóðsbókum og
öðrum svipuðum reikningum
verði áfram skattfrjálsir.
við ríkisstjórnina eða
hvort sagt verður nei og
Borgaraflokkurinn fylli
hóp stjórnarandstöðú-
flokka á þingi í vetur.
Formenn stjórnarflokk-
anna áttu fund með þing-
mönnum Borgaraflokksins í
gær og þar var þeim gerð
grein fyrir að ekki yrði lengra
gengið til að fá þá til liðs við
stjórnina.
Eftir því sem næst veröur
komist er enn rætt nokkuð
um matvælaverð í viðræðun-
um, en ljóst jafnframt að rík-
isstjórnin er ekki tilbúin að
ganga að þeim kröfum Borg-
araflokks að lækka matar-
verð með auknum niður-
greiðslum. Ríkisstjórnin hef-
ur sömuleiðis ekki á stefnu-
skrá sinni að hækka skatta
miðað við þjóðarframleiðslu
umfram það sem nú er.
Guðmundur Árni Stefánsson fagnar hafnfirskum polia, Jóni H. Jónssyni fjög-
urra ára, sem fékk þann heiður að klippa á borðann í Flensborgarhöfn í gær.
Hafnarfjöröur:
A-mynd/Björg
Bætt úr aðstöðu
fyrir smóbátana
Flensborgarhöfn í
Hafnarfirði var formlega
tekin í notkun í gær en
mikill uppgangur hefur
verið í höfninni í Hafnar-
firði. Má þar nefna að á
síðustu árum hafa risið
fiskmarkaður, frysti-
geymsla, saltbirgðastöð
og fleira. Með Flens-
borgarhöfn hefur verið
bætt úr þörf smábátaeig-
enda fyrir legupláss.
í Flensborgarhöfn hafa
VEÐRID
í DAG
Ailhvasst eða hvasst og
rigning sunnan- og vest-
anlands undir hádegið, en
hægara og þurrt fram eftir
degi á norður- og austur-
landi. Fer hlýnandi. Hiti
7—9 stig.
ISLflND
Hitastig
i borgum
Evrópu
kl. 12
í gær
að islenskum
tima.
1 r*
Hitastig í nokkrum landshlutum kl. 12 í dag
verið settar út þrjár flot-
bryggjur og hefur á tveim-
ur þeirra verið komið fyrir
örmum sem afmarka bása
fyrir báta. Básarnir sem nú
hafa verið teknir í notkun
eru 55 talsins og er langur
biðlisti eftir plássum.
Vegna mikillar fjölgunar
smábáta stefnir í að eftir-
spurn eftir föstu plássi í
Flensborgarhöfn verði
langt umfram framboð.
Framkvæmdir við höfn-
ina hófust síðastliðið vor.
Dýpkunarfélagið hf. á
Siglufirði annaðist dýpkun
og fjarlægði tæplega 25
þúsund rúmmetra af botn-
efni. Heildarkostnaður við
dýpkunina nam um 10,2
milljónum króna.
Að sögn hafnaryfirvalda
er unnið að hönnun um-
hverfis Flensborgarhafnar
með það fyrir augum að
hún geti orðið staður sem
allir Hafnfirðingar og gestir
þeirra hafi gaman af að
heimsækja.