Alþýðublaðið - 30.05.1990, Síða 3
Miðvikudagur 30. maí 1990
iNNLENDAR FRETTIR
3
FRÉTTIR
Í HNOTSKURN
Siguröur Helgason, formaður Landssambands hjartasjúk-
linga afhendir Halldóru Eldjárn, fyrrum forsetafrú, fyrsta
merkið. Viðstaddir vom nokkrir forustumenn samtakanna.
HJARTAÐ Á RÉTTUM STAÐ: Yfir 40% dauðsfalla hér
á landi stafa af hjartasjúkdómum. Landssamtök hjartasjúk-
linga vinna aö forvarnarstarfi og kaupum á ýmsum tækj-
um og búnaði sem koma að góðum notum á sjúkrahúsum
landsins, þegar læknaskal hjartasjúkdóma. Gjafir samtak-
anna á umliðnum árum munu vera 40—50 milljón króna
virði og hafa án efa bjargað mörgum mannslífum. Á morg-
un, fimmtudag, hefst sala á Rauöa hjartanu, merki sem
menn munu eflaust fúsiega kaupa á 500 krónur og bera á
barmi sér. Kjöroröfjáröflunarinnarí ár er: Er hjartað árétt-
um stað? Merkjasaian stendur til laugardags.
KRINGLUT0RG: Skipulagsnefnd borgarinnar hefur
samþykkt nafn á torgið sem koma skal við Borgarleikhús-
ið. Mun það bera nafnið Kringlutorg. Á þessum slóðum
er heldur sóðalegt umhver'fi, allt frá bakdyrum verslan-
anna að leikhúsinu. Nú á aö gera bragarbót á þessu.
FÉ ÞJÓÐARBÓKHLÖÐU í ANNAÐ: ,,Sá óhóflegi
dráttur sem orðinn er á byggingu Þjóðarbókhlööu stafar
aö mestu leyti af þeim ákvörðunum ríkisins að nota í ann-
að þá fjármuni sem til hennar áttu að renna" segir í álykt-
un ársþings Bókavarðafélags Islands, sem mótmælir harö-
lega þessum vinnubrögðum. Bókavarðaþingið fagnaði því
aö VSK verður felldur niður af íslenskum bókum en segist
bíöa eftir ákvörðunum um aðflutningsgjöld af erlendum
bókum. Er eindregið hvatt til þess að aðflutningsgjöld af
erlendum bókum og öðru safnefni verði felld niður.
TAKIÐ ÞATTIATAKINU: Skógræktarfélag Reykjavíkur
hefur Átak 1990 á föstudaginn kemur, 1. júni. Plantað
verður trjám við Grunnuvötn í Heiðmörk og Ölfusvatn í
Grafningi. Sjálfboðaliðar eru velkomnir til starfa frá kl. 9
til 21 alladaga. Allt sem til þarf verður á staðnum, auk þess
sem sérfrótt fólk gefur leiðbeiningar.
FÆREYSKIR GESTIR: Sendinefnd frá færeyska Lög-
þinginu er hér í heimsókn í boði Alþingis, alls 8 manns.
Heimsóknin hófst í gær og stendur til laugardags. Fariö
veröur vítt og breitt um með gestina og j^eim sýndur marg-
ur sómi. Munu þeir m.a. hitta að máli Vigdísi Finnboga-
dóttur, forseta Islands og snæða hádegisverð með Guð-
mundi Árna Stefánssyni, bæjarstjóra Hafnarfjarðar.
0FÆRIR FJALLVEGIR: Vegagerð ríkisins gefur út
ásamt Náttúruverndarráði Iitprentað kort með reglulegu
millibili þar sem sjá má ástand fjallvega landsins á hverjum
tíma. Síðasta kort er einfaldlega þannig að nánast allir fjall-
vegir eru lokaðir þar til annað verður auglýst.
NÝR F0RMAÐUR UMFERÐARRÁÐS: Guðmundur
Ágústsson, alþingismaður Borgaraflokksins, hefur verið
skipaður formaður Umferðarráðs til næstu þriggja ára.
Hann tekur við formennsku af Valgarði Briem, hæstarétt-
arlögmanni. Ólafur Walter Stefánsson hefur verið skipað-
ur varaformaður ráðsins til sama tíma. Á myndinni er Óli
H. Þórðarson, framkvæmdastjóri Umferðarráðs að bjóða
nýjan formann velkominn á skrifstofu ráðsins.
BÖRNUM HLÍFT VIÐ HÆTTULEGRI VINNU:
Börn og unglingar 14 og 15 ára, má ekki ráöa til hættu-
legra starfa, sem svo eru flokkuð. Hér er um að ræða til
dæmis uppskipunarvinnu, vinnu við vélar sem slysum
geta valdið og við ýmsar hættulegar aðstæður. Eftir að Al-
þingi samþykkti ýmsar breytingar á lögum um aðbúnaö,
hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum telur Vinnueftirlit
ríkisins aö skýrari línur gildi um þaö hvers konar vinnu
megi bjóða börnum og ungmennum. Áður hafði ekkert
veriö kveðið á um þessi mál í lögum. Vinnueftirlitið segir
að alvarlegustu vinnuslysin á börnum og unglingum und-
anfarin ár hafi verið í vinnu á landbúnaðarvélum og viö
fiskvinnsluvélar.
Framkvœmdastjórn Alþýdubandalagsins:
Formaður gagnrýndur
en ekkert ályktað
Ekki var búist við því að
framkvæmdastjórnar-
fundur Alþýðubandalags-
ins í gærkveldi myndi
samþykkja opinberar
ákúrur á formann flokks-
ins, Ólaf Ragnar Gríms-
son, heldur yrði látið
nægja að „ræða niðurstöð-
ur kosninganna." And-
stæðingar Olafs Ragnars
eru í meirihluta innan
Nýir meirihlutar:
Framsóknarmenn fengu
allvíða oddaaðstöðu í bæj-
arstjórnum í kosningun-
um á laugardaginn. Á
flestum þessum stöðum
standa þeir að viðræðum
um nýjan meirihluta nema
á Akureyri, þar sem þeir
urðu höndum seinni að
hefja viðræður. Á Akra-
nesi ræðast við Framsókn-
arflokkur og Alþýðuflokk-
ur en í Kópavogi var í gær
að ganga saman með fram-
sóknar- og sjálfstæðis-
mönnum. I Keflavík verða
viðræður trúlega hafnar í
dag milli framsóknar-
manna og Sjálfstæðis-
flokks öllu fremur en Al-
þýðuflokks.
Á Akureyri urðu framsókn-
armenn höndum seinni aö
hefja viðræður við Sjálfstæð-
isflokkinn. Ákvörðun um það
var tekin á fundi framsóknar-
manna í fyrrakvöld en þegar
haft var samband við sjálf-
stæðismenn á aðfaranótt
mánudagsins, hafði þegar
verið ákveðinn fundur milli
Sjálfstæðisflokks og Alþýðu-
bandalags. Sá fundur var
haldinn í gær og sagði Sigríð-
framkvæmdastjórnarinn-
ar en ekki er fyllilega vit-
að hversu sterkur sá
meirihluti er, enda hefur
fram að þessu ekki reynt á
það.
Átök virðast fyrirsjáanleg
innan Alþýðubandalagsins í
sumar og haust. Miðstjórnar-
fundur verður að líkindum
haldinn i júní og þar stendur
ur Stefánsdóttir, oddviti Al-
jjýðubandalagsins, að annar
fundur væri ákveðinn í dag.
Sigríður sagði að af hálfu Al-
þýðubandalagsins hefði ver-
ið ákveðið að ræða við Sjálf-
stæðisflokkinn eftir að ljóst
var að engra undirtekta varð-
.andi vinstra samstarf væri aö
Engar líkur eru á að íbú-
ar þeirra staða sem kusu
sér áfengisútsölu sam-
hliða sveitarstjórnarkosn-
ingunum fái útsölu í sína
heimabyggð á þessu ári.
Ekki er gert ráð fyrir opn-
un fleiri útsölustaða í bráð
til viðbótar þeim er fyrir
eru.
Höskuldur Jónsson for-
stjóri ÁTVR sagði í samtali
við Alþýðublaöið að það væri
fjármálaráðuneytið sem tæki
ákvörðun um hvar og hve-
nær nýjar útsölur væru opn-
aöar. Það sem sneri að útsölu-
til að ræða niðurstöður kosn-
inganna. Meðal andstæðinga
formannsins voru uppi raddir
um það fyrir sveitarstjórnar-
kosningar kalla saman lands-
fund sem fyrst, til að skipta
um formann í flokknum. Svo
virðist sem dregið hafi úr
þessum áformum eftir kosn-
ingarnar.
Stuðningsmenn Ólafs
Ragnars telja að sú gagnrýni
vænta frá framsóknarmönn-
um.
Á Eskifirði fara nú fram við-
ræður milli Framsóknar-
flokks og Alþýðubandalags
og til greina mun koma að Al-
þýðuflokkur komi inn í þaö
samstarf.
í Keflavík hafa framsóknar-
málum á þessu ári væri helst
að gera bragarbót á útsöiunni
á Seltjarnarnesi sem væri nú
rekin í síberískum anda í
óinnréttuðu húsnæði. í Kefla-
vík væri starfsemin rekin í
tveimur húsum en rýma
þyrfti annaö húsið fyrir ára-
mót þegar leigusamningur
þar rennur út. Það kallaöi á
að koma rekstrinum öllum
fyrir í liinu liúsinu. Lengi
hefði verið á áætlun að opna
útsölu á Egilsstöðum en það
yrði varla gert fyrr en búið
væri að ákveða hvernig
rekstri útsölunnar á Seyðis-
sem hann hefur orðið að
sæta að undanförnu, veiki
umboð formannsins og verði
framháldið svipað, geti jafn-
vel farið svo að Ólafur Ragn-
ar muni sjá sig knúinn til aö
kalla landsfund saman í haust
til þess að láta á það reyna
hvort hann njóti trausts til að
gegna áfram formennsku í
flokknum.
mönnum borist bréf bæði frá
Alþýðuflokknum og Sjálf-
stæðisflokknum. Dríía Sigfús-
dóttir, bæjarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins, sagði í sam-
tali við Alþýðublaðið í gær að
ákvöröun um svör við þeim
bréfum yrði tekin á fundi í
gærkveldi. Hún kvaðst að
vísu hafa ákveðna skoðun á
því við hvorn aðilann bæri að
tala fyrst en ekki vera reiðu-
búin að skýra frá henni fyrr
en á fundinum í kvöld. Sam-
kvæmt heimildum Alþýðu-
blaösins munu þó taldar
meiri líkur til að framsóknar-
menn hyggist ganga til samn-
inga við sjálfstæðismenn.
firöi yrði þá háttað.
Allmörg ár eru síðan Garö-
bæingar samþykktu opnun á
áfengisútsölu og einnig liggja
fyrir slíkar samþykktir frá
Kópavogi og Borgarnesi auk
Egilsstaða. Höskuldur Jóns-
son sagði að við ákvörðun
um opnun nýrra vínbúöa
væri tekið tillit til þess hve
langt væri í næstu útsölu.
1 kosningunum núna var
meirihluti fyrir opnun áfeng-
isútsölu í Mosfellsbæ, Grinda-
vík, á Húsavík og Blönduósi.
Hins vegar var útsölu hafnað
á Dalvík.
Framsóknarflokkur
viða í viðræðum
Höskuldur Jónsson ríkisstjóri:
Bið á fíeirí áfengisbúðum
Sjö snókerleikmenn til Ástraliu
Þeir verða ekki með kúluna í munninum þessir kappar, þegar
þeir mæta við grænu borðin suður i Brisbane í Ástraliu eftir
nokkra daga. Þeir taka þátt i Heimsmeistarakeppni í Snóker,
sem þar ferfram. Heimabæir keppendanna sjö hafa styrktferð
þeirra, en þeir eru 3 frá Reykjavík, 2 úr Garðabæ, einn úr Kópa-
vogi og frá Vestmannaeyjum. Strákarnir heita, talið frá vinstri
Eðvarð Matthíasson, Halldór M. Sverrisson, Gunnar Örn
Hreiðarsson, Jóhannes B. Jóhannesson, Fjölnir Þorgeirsson,
Gunnar Valsson og Atli Már Bjarnason. Viðóskum þeim góðr-
ar langferðar til andfætlinganna og góðs árangurs.
A-mynd E. Ól.