Alþýðublaðið - 30.05.1990, Blaðsíða 8
MWDUtMÐIfl
Miðvikudagur
30. maí 1990
RITSTJÓRN
27 681866 - 83320
FAX 82019
•••• •••• • •••••••••• ••••
••• •••• ••
•••• •••• • • • •••• ••••
• •• •••• ••
• • •••• ••• • •••• • •
MOSKVA — Róttæki umbótasinninn Boris Yeltsin var í
gær kjörinn forseti lýðveldisins Rússlands. Kjör Yeltsins
mun vera áfall fyrir Mikhail Gorbatsjov, forseta Sovétríkj-
anna og er talið geta orðið stefnu stjórnar hans í efnahags-
málum skeinuhætt.
MOSKVA — Forseti Litháen, Kazimiera Prunskiene,
hefur varað sovésk stjórnvöld við því að skortur á eldsneyti
vegna efnahagsþvingana muni leiða til þess að loka verði
kjarnorkuveri því sem sér helstu flotastöðvum Sovét-
manna fyrir orku. Mjög er nú tekið að þrengja að Litháum
vegna efnahagsþvingana Sovétmanna og hefur talsmaður
litháískra stjórnvalda farið þess á leit við Bush Bandaríkja-
forseta að hann fari fram á við Gorbatsjov að slakað verði
á efnahagsþvingunum gagnvart Litháum.
PARIS — Fjörutíu ríki, þar
á meðai Bandaríkin, Japan
og Sovétríkin skrifuðu í
gær undir samkomulag um
stofnsetningu Evrópu-
banka sem stuðla mun að
uppbyggingu og fram-
kvæmdum. Undirskrift
samningsins bindur enda á
átta mánaða samningavið-
ræður sem oft á tíðum hafa
verið mjög erfiðar.
Francois Mitterrand sagði
þetta samkomulag marka
tímamót, nú fyrst hefðu ríki Austur-Evrópu tækifæri til að
velja sér framtíð.
CAPE-CANAVERAL — Bandaríkjamenn hugðust
skjóta á loft geimferjunni Columbíu í gær ef veður leyfði.
Sjö manna áhöfn verður um borð í geimferjunni. Hafa
áhafnir slíkra fara ekki verið fjölmennari síðan Challenger
flaugin fórst viö flugtak árið 1986. Að sögn vísindamanna
er nú unnið aö viögerð á hilunum í tölvubúnaði geimferj-
unnar.
HÖFÐABORG - f.w de
Klerk, forseti Suður-Afríku
hefur aflýst fyrirhuguðum
fundi sínum með George
Bush Bandaríkjaforseta
sem vera átti í næsta mán-
uði. De Klerk sagði fundin-
um aflýst um ófyrirséða
framtíð, eða þar til Banda-
ríkjamenn stigju skref til að
bættri sambúð ríkjanna.
Andstæðingar aðskilnaðar-
stefnu suður-afrískra stjórnvalda í Bandaríkjunum hafa
gagnrýnt Bush, Bandaríkjaforseta, mjög fyrir þá ákvörðun
taka á móti de Klerk áður en hann ætti fund meö Nelson
Mandela, leiðtoga Afríska þjóðarráðsins.
0SL0 — Norðmenn felldu í gær niður lög sem kveða á
um að konungstign skuli erfast í karllegg. Með þessu hafa
Norðmenn fellt síðasta vígi karlaveldisins. Norðmenn hafa
lengi stært sig af því að vera leiðandi í jafnréttisbaráttu
kvenna. Þrátt fyrir þetta mun norska prinsessan Martha
Louise ekki taka við norsku krúnunni heldur yngri hróðir
liennar prins Hákon Magnús, þar sem löginn gilda aðeins
umþaubörnsemfæðast eftir 1990. Aðeinssjöaf 165þing-
mönnum greiddu atkvæði gegn frumvarpinu.
PARIS — Forsætisráð-
herra Póllands, Tadeusz
Mazowiecki, leitar pólit-
ískra lausna á bágu efna-
hagsástandi landsins en
Pólverjar eru skuldum
vafnir við Vesturlönd.
Mazowiecki fór þess á leit
við Francois Mitterrand
Frakklandsforseta að
Frakkar afskrifuðu skuldir
Pólverja við þá.
TAIPEI — Þing Taiwans samþykkti í gær tilnefningu Hau
Pei-tsun, varnarmálaráðherra landsins í embætti forsætis-
ráðherra eftir að miklar óeirðir hafa geisaö þar síðustu
daga.
LISSABON — Forsætisráðherrar Portúgals og Grikk-
lands lýstu því yíir í gær að ríkin tvö myndu vinna sameig-
inlega að því aö vernda hagsmuni smærri ríkja efnahags-
bandaiags Evrópu.
ERLENDAR FRÉTTIR
Umsjón: Laufey E. Löve
Leidtogafundur stórveldanna:
Bjartsýni ríkir um
árangursríkan fund
Búist var við að þúsundir Kanadamanna mótmæltu stefnu Gor-
batsjovs í málefnum Eystrasaltsríkjanna við komu hans til Kan-
ada í gær.
(WASHINGTON, Reuter)
Mikhail Gorbatsjov, forseti
Sovétríkjanna, hélt í gær
til fundar vid forsætisráð-
herra Kanada á leið sinni
til Washington þar sem
hann mun hitta George
Bush Bandaríkjaforseta
að máli dagana 30 maí tii 3
júní. Bush kvaðst bjart-
sýnn á að leiðtogafundur-
inn myndi skila árangri
þrátt fyrir þá staðreynd að
sovésk stjórnvöld eigi nú
við vaxandi efnahags og
pólitísk vandamál að
stríða.
Mikil ólga ríkir nú innan-
lands í Sovétríkjunum. Al-
menningur hefur gripið til
þess ráðs að hamstra mat-
væli vegna fyrirhugaðra
breytinga á efnahagskerfi
landsins í átt til markaðsbú-
skapar, en búist er við að
breytingarnar leiði til stór-
felldra hækkana á verði mat-
væla. Þessi viðbrögð almenn-
ings hafa leitt til mikils vöru-
skorts og hafa verslanir grip-
ið til skammtana. Þá hafa
miklar óeirðir ríkt að undan-
förnu í suöurhluta landsins
milli Armena og Azera um yf-
irráðarétt yfir héraðinu Nag-
orno-Karabak. Sjálfstæðis-
kröfur lýðveldanna í norðri
hafa sömuleiðis gert sovésk-
um stjórnvöldum erfitt fyrir.
Bæöi stórveldin eru þó
bjartsýn á að leiðtogafundur-
inn veröi árangursríkur.
„Gorbatsjov mun ekki láta
vandatnál heima fyrir aftra
sér í viöræðum við Bush
Bandaríkjaforseta, staða
hans heima fyrir er þrátt fyrir
allt sterk," var haft eftir sov-
(BAGDAD, Reuter) Fundur
leiðtoga 16 arabaríkja
hófst í Bagdad, höfuðborg
Iraks, á mánudag. Á fund-
inum ræða ieiðtogarnir
hinn mikla straum sov-
éskra gyðinga til ísraels-
ríkis. Arafat, leiðtogi
Frelsissamtaka Palestínu,
krafðist þess á fundinum
að hann tæki sameigin-
lega afstöðu gegn land-
námi sovéskra gyðinga í
Israel. Þá lagði hann til að
þau ríki verði beitt efna-
hagslegum refsiaðgerðum
sem greiði götu þeirra sov-
ésku gyðinga sem hyggj-
ast setjast að á hernumdu
svæðunum. Arafat segir
landnám gyðinga ógn við
samkomulag Palestínu-
manna og Israela um land-
svæði til handa Palestínu-
mönnum.
Þrjú ríki, Algería, Öman og
Marokkók, sendu fulltrúa síná
til fundarins en Sýrland og
Líbanon hunsuðu hann al-
gjörlega. Ákvörðun þessara
éskum embættismanni í gær.
Hann sagði jafnframt að
fundurinn væri vel undirbú-
inn og ætti að geta skilað
miklum árangri.
Búist er við að eitt helsta
umræðuefni leiðtoganna á
fundinum verði fækkun lang-
drægra kjarnorkuvopna og
efnavopna ríkjanna. Telja
stjórnmálaskýrendur likur á
að slíkt samkomulag takist
miklar. Þá er búist við að leið-
togarnir ræði hernaðarlega
stöðu sameinaðs Þýskalands.
Einnig mun að sögn sovéskra
embættismanna liggja fyrir
talsverður fjöldi smærri sam-
komulaga sem leiðtogarnir
munu undirrita á fundinum.
Þá munu leiðtogarnir
reyna að komast að sam-
komulagi um viðskipti rikj-
anna en enn sem komið er
hafa Bandaríkjamenn ekki
viljað ganga frá slíku sam-
komulagi. Munu Sovétmenn
hafa hug á að komast í hóp
þeirra ríkja sem fá svo nefnd
hagstæðustu kjör í viðskipt-
um við Bandaríkjamenn. Slík
kjör myndu fela í sér lækkun
á tollum á innfluttum varn-
ingi. Bandaríkjamenn hafa
nýlega veitt Kínverjum
áframhald slíkra kjara til eins
árs. Sú ákvörðun vakti tals-
verða athygli þar sem senn er
liðið ár frá blóðbaðinu á Torgi
hins himneska firðar.
Nikolai Shishlin, ráðgjafi
miðstjórnar sovéska komm-
únistaflokksins, sagði sjálf-
stæðiskröfur Litháa vera mál
yfirvalda í Moskvu en ekki
þeirra í Washington. Hann
varaði jafnframt við því að
klofningsöfl í Eystrasaltsríkj-
fimm ríkja að senda ekki leið-
toga sína til fundarins er talin
veikja mjög einingu Araba-
rikjanna.
Á fundinum ítrekaði Sadd-
Yasser Arafat, leiðtogi PLO,
krefst þess að Arabar beiti þau
ríki efnahagslegum refsiað-
gerðum sem greiði götu sov-
éskra gyðinga sem hyggjast
flytja til hernumdu svæðanna.
unum gætu raskað valdajafn-
vægi í Evrópu og í víöara
samhengi.
Ráðgert er að leiðtogarnir
ræði einnig málefni Miðaust-
urlanda. Mikill straumur sov-
éskra gyðinga til hernumdu
svæða ísraelsmanna hefur
komið miklu róti á leiðtoga
Arabaríkja.
(BEIJING, Reuter) Kín-
versk stjórnvöld hafa lýst
am Hussein, forseti iraks, við-
vörun til ísraelsmanna um að
vopnuðum árásum verði
svarað í sömu mynt, hvort
sem kjarnorku eöa efnavopn-
um yrði beitt.
Leiðtogarnir biðu komu
Muhammar Gaddafis, leið-
toga Lýbíu frá Damaskus
með eftirvæntingu, en þar
hafði hann eytt tveim dögum
til að reyna að telja Hafez
al-Assad, forseta Sýrlands
hughvarf. Allt kom þó fyrir
ekki og mætti Gaddafi einn
síns liðs til fundarins.
Forsetar Sýrlands og íraks
liafa átt í deilum síðan árið
1979 og segir Assad fundinn
nú vera illa undirbúinn og
áróðursherferð af hálfu Hus-
seins, forseta íraks. Mat Sýr-
lendinga er að nauðsynlegt
sé að leysa deilur Sýrlend-
inga og Iraka áður en hægt
verði að setjast niður og ræða
önnur mál.
Næsti fundur leiðtoga ar-
abaríkja verður haldinn í Ka-
író í nóvember á þessu ári.
Búist var við að þúsundir
Kanadamanna myndu mót-
mæla stefnu sovéskra stjórn-
valda í málefnum Eystrasalts-
rikjanna við komu Gorbat-
sjovs til Kanada í gær. Forset-
inn heldur síðan til Banda-
ríkjanna í dag til fundar við
Bush Bandaríkjaforseta.
því yfir að sósíalismi geti
verið ófullkominn og að
Kommúnistaflokkur
landsins sé mistækur, að
sögn Yuan Mu, talsmanns
stjórnarinnar. Þá segja
stjórnvöld að hluti þeirra
stúdentaleiðtoga sem reis
upp á Torgi hins himneska
friðar í maí í fyrra hafi haft
jákvæð sjónarmið að leið-
arljósi og einungis ætlað
að auka veg lýðræðisins.
Erlendir sendifulltrúar
segja þessar yfirlýsingar
stjórnvalda til þess ætlaöar
að sýna Vesturlöndum fram á
aukið frjálslyndi kínverskra
stjórnvalda og til að milda
þau öfl sem voru í forystu fyr-
ir uppreisninni í fyrra. Það sé
von kínverskra stjórnvalda
aö meö þessu megi fá vest-
ræn ríki til að létta af efna-
hagsþvingunum gegn Kín-
verjum og opna fyrir lánafyr-
irgreiðslur.
„Markmið flestra með þátt-
töku í mótmælunum á Torgi
hins himneska friöar var að
vinna að framgangi lýðræðis-
ins,“ sagði Mu. „Litlum hópi
byltingarsinna tókst hins veg-
ar að nota fjöldann í sína
þágu,“ bætti hann við.
Nýlega voru 211 látnir laus-
ir af þeim sem hnepptir voru
í fangelsi eftir stúdentaóeirð-
irnar. Þá hafa kínversk stjórn-
völd opinberlega lýst því yfir
aö fræðimönnum sé frjálst að
gagnrýna flokkinn.
Fundur leiötoga sextán Arabaríkja:
Ræða straum sovéskra
gyðinga f/l ísrael
Breytt afstaöa kínverskra stjórnvalda:
Sósíalismi ófullkominn og
kommúnislaflokkurinn misfækur