Alþýðublaðið - 12.05.1990, Side 1
jmUBLMfi
70. TÖLUBLAÐ 71. ÁRGANGUR
BHBBBBBHflBBHBHBBBHBHBBBI^BBflHBI
LAUGARDAGUR
12. MAÍ 1P90
TÆP 2% MANNAFLA ATVINNULAUS: sam-
kvaemt upplýsingum vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðu-
neytis voru atvinnuleysisdagar á landinu öllu 51.400 í apríl
og skiptast nokkuð jafnt milli kynjanna. Jafngildir þetta
því að 2400 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysis-
skrá í mánuðinum, — 1.9% af mannafla. Verst var ástandið
á Noröurlandi og Austurlandi 5.4 og 5.5%, — í Reykjavik
1.5% og á Vestfjörðum aðeins 0.4%. Siöasta dag mánaðar-
ins kom fram að fyrsta skólafólkið var að koma á virinu-
markaðinn, þá voru á atvinnuleysisskrá 2700 manns.
SAS 0G FLUGLEIÐIR í SAMEININGARHUG-
LEIÐINGUM: Eins og Alþýðublaöið greindi frá fyrst fjöl-
miðla hefur SAS áhuga á að vinna að vissri sameiningu við
Flugleiðir, á svipaðan hátt og flugfélög í Evrópu gera nú.
Viöræöur eru þegar hafnar milli aöilanna um gagnkvæma
eignaraðild. Kann þetta að breyta mjög munstri Flugleiöa
í framtíðinni og trúlega verða til þess aö starfsmönnum
þess fækki enn, þegar söluskrifstofur félaganna sameinast.
Siguröur Helgason, forstjóri Flugleiöa, sagði í sjónvarpi í
gærkvöldi aö „engin hætta væri á að Flugleiðir yrðu étnar
upp til agna".
HEILDSALAR KÆRA GRUNDARKJÖR: Heildsalar
munu tapa tugum milljóna króna á viðskiptum viö Grund-
arkjör, sem virðist, eftir öllu að dæma, gjaldþrota fyrir-
tæki, enn eitt ævintýrafyrirtækið, sem heildsalar hafa ekki
varaö sig á. Taliö er að óeðlileg birgðasöfnun hafi átt sér
staö, og sala þessara birgða í kjölfariö til annarra aöila,
jafnvel á verði langt undir heildsöluveröi. Heildsalar hafa
nokkrum sinnum áður lent í svipuöum málum, en ekki
uggaö að sér. Alþýðublaðið hefur það eftir góðum heimild-
um að Kjötiönaðarstöð KEA eigi mest inni hjá fyrirtækinu
og nemi sú upphæð tugum milljóna, — ennfremur Mjólk-
ursamsalan nokkrar milljónir, en venjan er sú aö mjólk er
staðgreidd af kaupmönnum.
DAGUR ÞRENNRA
VERÐLAUNA: Dagurinn
í gær var sannarlega dagur
mikilla verölauna. Sveinn
Einarsson var heiðraður
fyrir menningarlega starf-
semi á Norðurlöndum. Fyr-
irtækiö Marel hf. var
heiðrað af Utflutningsráði
eins og lesa má á bls. 5 í
blaöinu í dag — og loks var
Hjálmar R. Bárðarson
fyrrum skipaskoðunar-
stjóri heiöraöur af Ferða-
málaráði fyrir bókina
Vatnasvæði Hvítár.
LEIÐARINNIDAG
Málefnastaða jafnaðarmanna er til umræðu í
leiðara Alþýðublaðsins í dag. Alþýðublaðið er
þeirrar skoðunar að Alþýðuflokkurinn njóti
þess um land allt að hafa byggt upp sterka og
víðfeðma málefnaskrá og það geti nýst sveitar-
félögunum ef jafnaðarmenn nái sterkum áhrif-
um að loknum sveitarstjórnarkosningum. Al-
þýðublaðið nefnir sem dæmi húsnæðisfrum-
varp Jóhönnu Sigurðardóttur sem samþykkt
var rétt fyrir þinglok og sem opnar sveitarfélög-
um leið að skynsömum lausnum í húsnæðis-
málum.
SJÁ LEIÐARA Á BLS. 4: ALÞÝÐUFLOKKURINN
BÝR í HAGINN
Valdiö til
hverfanna
Viðtal við Bjarna
R Magnússon
borgarfulltrúa Al-
þýðuflokksins á
nýjum vettvangi.
Verðbólgu-
draugur
klofinn
í herðar
niður
Sjá fréttaskýringu
Jóns Daníelssonar.
BYKO / Húsasmidjan losna viö ,,höfudverk“
Landsvirkjun vill
kaupa Krókháls 7
Viðræður standa yfir um
kaup Landsvirkjunar á
húsinu Krókháls 7 í
Reykjavík þar sem áður
var Byggingavöruverslun
Sambandsins til húsa.
BYKO og Húsasmiðjan
keyptu Krókháls 7 af Sam-
JÓHANNES i Bónus ánægður.
Bóiws
greinilega
belur
Verðlagsstofnun gerði
verðkönnun í marslok í 55
matvörubúðum á höfuð-
borgarsvæðinu á 50 al-
gengum vörutegundum.
Athygli vekur að verslanir
Bónus bjóða í nær öllum
tilvikum mun lægra vöru-
verð en aðrar matvöru-
verslanir. Sé verslun með
meðalverð látin hafa töl-
una 100 sem vísitölu er
Bónus með 80.7. Næst
Bónusbúðunum kemur
Fjarðarkaup með 89.2,
Hagkaup í Kringlunni
91.8. Þess skal getið að í
verðkönnuninni voru
kannaðar 22 vörutegundir
hjá Bónus í Faxafeni, en 27
í Skútuvogi. Hjá stórmörk-
uðum fannst meira af við-
miðunarvörunum, 42—50
atriði.
Jóhannes Jónsson kaup-
maður í Bónus sagði í gær að
niðurstaðan væri vissulega
gleðiefni fyrir sig og starfs-
fólk Bónus. Hann sagði aö
„galdurinn” við lágt vöru-
verð verslananna væri að hjá
þeim ynnu aðeins 10 manns,
innkaupin væru tiltölulega
einföld og allri vinnuhagræð-
ingu beitt. Jóhannes sagði að
velta verslana hans væri nú
80—90 milljónir á mánuði.
Veltan á hvern starfsmann
væri því 8—9 milljónir á mán-
uði.
bandinu og líkur benda til
að gengið verði frá sölu
hússins til Landsvirkjunar
á næstunni.
Halldór Jónatansson, for-
stjóri Landsvirkjunar stað-
festi í samtali við Alþýöublaö-
iö að samningaviðræður
stæðu yfir. Hann sagði að
Landsvirkjun heföi hug á að
eignast húsið til nota undir
línulager og fyrir véla- og
tækjamiöstöð sem nú væri til
húsa í gufuaflstöðinni við Ell-
iðaár. Landsvirkjun leigir þar
en hefur verið gert að rýrna
húsnæðið.
Aö sögn Halldórs hentar
húsið að Krókhálsi 7 mjög vel
fyrir þessa starfsemi Lands-
virkjunar. Hann vildi ekki
nefna tölur um mögulegt
kaupverð, en sagði að þessi
mál skýrðust i næstu viku.
Aðilar í viðskiptalífinu
tjáöu Alþýöublaðinu að sala
hússins kæmi sér vel fyrir nú-
verandi eigendur — þessi
stóra eign hefði veriö orðin
„höfuðverkur" fyrir starí-
semi risanna tveggja í bygg-
ingavörusölu. Hinsvegar
væru nú líkur á aö þeir los-
uðu sig við húsiö á góöu verði
— og væru lausir við aöal-
keppinautinn, Sambandið.
I sól og sumaryl
Þessi ungi kappi er í sól og sumaryl á suðlægum slóöum i Evrópu. Þangað munu íslendingar fjöl-
menna i sumar, treysta ekki allskostar veðurfarinu okkar. Um helgina ættum við þó að upplifa hið
besta vorveður, — Veðurstofan spáði i gærkvöldi allt að 12 stiga hita á vestanverðu landinu og
hægri átt og björtu veðri. Við vonum það besta.
A-mynd E. Ól