Alþýðublaðið - 12.05.1990, Síða 11
Laugardagur 12. maí 1990
11
ÞÆTTI
STÓR SÓKN
Rœtt viö Lárus Þ. Guömundsson sendiráösprest í Kaupmannahöfn
Síðastliðið haust hóf nýr prestur, Lárus Guð-
mundsson, störf hér i Kaupmannahöfn. Hann hafði
þó komið hér áður, bæði i afleysingum fyrir fyrrver-
andi sendiráðsprest, Ágúst Sigurðsson, og til
þriggja mánaðar dvalar i fræðimannsibúðinni.
Við hittumst í prestsíbúðinni í
Jónshúsi eitt kvöldið og á móti
mér tók afskaplega notalegt fólk,
Lárus og eiginkona hans, Sigur-
veig Georgsdóttir. Lárus klæddur
skyrtu og gallabuxum útötuðum í
smurningu. Mér brá létt við. Ég
veit eiginlega ekki hvort ég hafði
gert mér í hugarlund að prestur-
inn kæmi til dyranna í jakkafötum
með prestkraga.
,,Ég var að gera við bílinn, var
svo heppinn að komast í bílskúr
úti í Charlottenlund," sagði Lárus.
Friðarmál
Hann kemur beint að vestan,
nánar tiltekið frá Holti í Önundar-
firði, þar sem Brynjólfur biskup
Sveinsson sleit barnsskónum. Þar
sinnti Lárus prestsstörfum frá því
að hann lauk guðfræðinámi og
þar til hann kom hingað, eða í tæp
26 ár. Það voru þó ekki eingöngu
hin hefðbundnu prestsstörf, sem
Lárus sinnti á Vestfjörðum, þar
sem hann hefur ætíð verið áhuga-
samur um ýmiss konar félagsstörf,
því má skjóta hér inn í að Lárus
var m.a. framkvæmdastjóri Al-
þýðuflokksins 1958 til 1961. En
förum aftur vestur. Þegar áhuga-
mál prests verða pólitísks eðlis,
telst það oft til tíðinda, sérstaklega
þegar skoðanir eru viðraðar op-
inberlega.
,,Það var fyrir nokkrum árum
heit umræða um uppsetningu rat-
sjárstöðvar á vegum bandaríska
hersins í námunda við Bolungar-
vík. Ég var afskaplega á móti þess-
ari stöð ásamt flokki annarra
manna. Skoðanabræðrum mínum
fannst ekkert sjálfsagðara en að
ég hefði skoðun á þessum málum,
en öðrum fannst jrað kannski ekki
alveg við hæfi. I minni sókn var
mikil samstaða í þessu máli og gáf-
um við m.a. út blað um málefnið,
sem við dreifðum um alla Vest-
firði. Þetta var mikið rætt í fjöl-
miðlum á sínum tíma og endaði
með þvi að stöðin var sett upp.
Ýmis vandamál hafa síðan komið
upp í sambandi við stöðina eins og
kunnugt er, t.d. olíuleki og meng-
un. Ég veit eiginlega ekki hvaða
hlutverki þessi stöð hefur að
gegna, þegar allt er að verða svo
friðvænlegt í heiminum."
En á kirkjan sem slík að vinna
að friðarmálum í heiminum eða
birtist hún meira sem hlutlaus að-
ili í þeim efnum?
„Kirkjan vinnur að öllu því sem
lýtur að mannlegum samskiptum.
Eg hef verið tiltölulega flæktur inn
í friðarmálaumræðuna, bæði í
sambandi við ratsjárstöðina og að
einhverju leyti innleitt þá umræðu
á kirkjuþingi."
Stór sókn_____________________
Sem sendiráðsprestur í Kaup-
Viðtal:
Guðbjörg Kristín Arnardóttir
Ljósmyndir:
Hrafnhildur Skúladóttir
mannahöfn er Lárus prestur Is-
lendinga búsettra á Norðurlönd-
um, en þeir munu vera 12—13.000
talsins.
„Þessu starfi er engan veginn
hægt að sinna fullkomlega, bara
rétt fleyta ofan af. A íslandi gerast
sóknir ekki stærri en 4.000 og það
þykja stórar sóknir ef þær telja
2—4.000 manns. Það var, eða er
að hætta, prestur með aðsetur í
Uppsölum, en hann sinnti Uppsöl-
um og Stokkhólmi. Hvernig því
máli lyktar er ekki útséð um enn-
þá. En að öllum líkindum bætist sú
sókn við mitt starfssvið."
Hérna í Kaupmannahöfn eru
haldnar messur síðasta sunnudag-
inn í hverjum mánuði og deginum
áður er kirkjuskóli fyrir börn og
foreldra þeirra.
,,Ég vil taka það fram, að mér
finnst mikið atriði að foreldrar séu
með börnum sínum í kirkjuskól-
anum og að úr þessum degi geti
orðið eins konar fjölskyldudagur.
Einnig er hér starfandi ákaflega
öflugur kirkjukór með fyrirmynd-
arfólki."
í Óðinsvéum, Árósum og Ála-
„Það væri sannarlega þörf á fleiri islenskum prestum á Nordurlöndum,"
segir séra Lárus Þ. Guðmundsson.
borg hefur verið venjan að halda
íslenskar messur tvisvar á ári og
það sama gildir um aðrar stórar
borgir í Svíþjóð og Noregi. í Einn-
landi hefur sendiráðspresturinn
ekki messað hingað til, þarsem fá-
ir íslendingar eru búsettir þar.
„Það væri sannarlega þörf á
fleiri íslenskum prestum á Norður-
löndum," „Ég ég gæti engan veg-
inn sinnt þessu starfi sem skyldi,
nema ég ætti svo ágæta konu, sem
vinnur við hlið mér i sjálfboða-
vinnu. Einnig hef ég verið hepp-
„Þessu starfi er ekki hægt að sinna fullkomlega, bara rétt fleyta ofan af," segir séra Lárus Þ. Guðmundsson sendi-
ráðsprestur í Kaupmannahöfn en söknin hans telur 12—13 þúsund íslendinga. Meðalsökn á Islandi er um 3000
manns.
inn með að allir þeir íslendingar,
sem ég hef leitað til hér í Kaup-
mannahöfn, hafa sýnt mér hjálp-
semi. Það er einnig ómetanleg
hjálp, ekki síst á meðan ég er að
komast inn í starfið. Einnig hef ég
mætt afskaplegri velvild af hálfu
sendiráðsfólksins."
Sálusorgarastörl______________
En það eru ekki eingöngu mess-
ur, sem tilheyra prestsembættinu.
Mikið er leitað til prestsins hvað
varðar mannleg vandamál.
„Það er töluvert mikið leitað til
mín með margskonar vandamál,
sem ég reyni að hjálpa til með eftir
bestu getu. Því fylgja mikil ferða-
lög, þar sem vandamálin eru ekki
eingöngu hér í Kaupmannahöfn.
Það er að sjálfsögðu ýmiss konar
mannlegur vandi, sem upp getur
komið og oft gerist það að fólk
kemur út með vandamálin á bak-
inu og þarf að leysa þau í nýju
landi. Einnig er töluvert um, að
ungt fólk hafi þörf fyrir að tala við
fullorðna manneskju. Það er
óhætt að fullyrða, að sálusorgara-
störf mín sem prests séu marg-
slungnari hér en í minni gömlu
sókn, sem orsakast m.a. af því, að
sóknin er mun stærri. Þar sem
heimili mitt er jafnframt vinnu-
staður minn hefur mér dottið í hug
að æskilegt væri, að ég hefði skrif-
stofu á öðrum stað í borginni, þar
sem ég hefði ákveðinn símatíma.
Án þess að ég sé beinlínis að
kvarta yfir því að mikið sé leitað til
mín, verð ég að viðurkenna að lít-
ið er um frítíma í starfi minum."
Hafaalög______________________
Þeir íslendingar sem hafa eign-
ast börn hér í Danmörku, þekkja
allir það vandamál að fá börnin
skráð samkvæmt íslenskum venj-
um.
„Ég hef unnið mikið í þessu máli
frá því að ég hóf hér störf. Nu er ég
að vonast til að þetta fari að
skýrast, svo að foreldrar þurfi ekki
að ganga í gegnum alla þá skrif-
finnsku, sem að þessu lýtur. Fólk
hefur leitað til mín með þetta mál
og er skiljanlegt að það sé orðið
þreytt á skilningsleysi yfirvalda.
En allt bendir til að þetta fari end-
anlega að leysast," segir séra Lár-
us Þ. Guðmundsson.
Það var langt iiðið á kvöld, þeg-
ar ég yfirgaf prestshjónin t húsi
Jóns Sigurðssonar. Þau er gott
heim að sækja.
AISLANDI