Alþýðublaðið - 12.05.1990, Blaðsíða 13
Laugardagur 12. maí 1990
13
RAÐAUGLÝSINGAR
óskilamunadeildar
lögreglunnar
er margt óskilamuna svo sem:
Reiöhjól, barnakerrur, fatnaður, lyklaveski, lyklar,
buddur, seðlaveski, kvenveski, skjalatöskur, úr, gler-
augu, o.fl.
Er þeim sem slíkum munum hafa glatað, bent á að
spyrjast fyrir um þá á skrifstofu óskilamuna, Hverf-
isgötu 113, (gengið inn frá Snorrabraut) frá kl.
14.00—16.00 virka daga.
Þeir óskilamunir sem eru búnir að vera í vörslu lög-
reglunnar ár eða lengur verða seldir á uppboði í
portinu að Borgartúni 7, laugardaginn 12. maí 1990.
Uppboðið hefst kl. 13.30.
Lögreglustjórinn í Reykjavík,
9. maí 1990.
w
I vörslu
Afgreiðslutími
Á tímabilinu 14. maí til 30. september er skrif-
stofa BSRB opin frá kl. 8 til 16.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Síöumúla 39 — 108 Reykajvík — Sírrii 678500
Laus staða í fjölskyldudeild
Staða félagsráðgjafa við Vistheimili barna er laus til
umsóknar. Æskilegt að viðkomandi hafi reynslu af
meðferðarstörfum.
Nanari upplýsingar gefur Gunnar Sandholt, yfir-
maður fjölskyldudeildar, eða Helga Þórðardóttir í
síma 678900.
Umsóknum skal skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 2. hæð á umsóknar-
eyðublöðum sem þar fást.
Umsóknarfrestur er til 25. maí nk.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Borgar-
verkfræðings í Reykjavík óskar eftir tilboðum í jarð-
vinnu vegna byggingu Hamraskóla við Dyrhamra í
Reykjavík.
Helstu magntölur:
Gröftur 7000 m3
Sprenging 600 m3
Fylling 1800 m3
Verkinu skal lokið 27. júlí 1990.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík. frá og með þriðjudeginum
15. maí gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 29.
maí kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
Tilboð óskast í að leggja til og setja upp fólkslyftu
í húsið Borgartúni 7, Reykjavík, ásamt lyftustokk
sem klæddur er gleri. Lyftan sé vökvadrifin og
gengur milli 4ra hæða.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri að Borg-
artúni 7, Reykjavík.
Tilboð merkt: „Lyftuútboð 3590/90" berist á sama
stað, þar sem þau verða opnuð í viðurvist við-
staddra bjóðenda, föstudaginn 25. maí kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
SVÆÐISSTJORN
MALEFNA
FATLAÐRA
AUSTURLANDI
Lausar stöður
Svæðisstjórn málefna fatlaðra á Austurlandi aug-
lýsir tvær stöður deildarþroskaþjálfa við Þjónustu-
miðstöðina Vonarland, Egilsstöðum, lausar til um-
sóknar frá 1. júní eða eftir samkomulagi.
Aðstoð við útvegun húsnæðis.
Allar nánari upplýsingar veitirforstöðumaður í síma
97-11577 eða framkvæmdastjóri svæðisstjórnar í
síma 97-11833.
Útboð
Svalbarðseyrarvegur
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint
verk.
Lengd kafla 960 metrar, fyllingar 10.600 rúmmetrar
og burðarlag 5.700 rúmmetrar.
Verkinu skal lokið 15. október 1990.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
Akureyri og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með
14. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 28. maí 1990.
Vegamálastjóri.
Innkaupastofnun ríkisins f.h. Ríkisspítala óskar eftir
tilboðum í akstur með sjúklinga og vörur fyrir Geð-
deild Landspítala að Kleppi. Ekið er alla virka daga
ársins frá kl. 8.00 f.h. til 17.00 e.h.
Bifreiðin þarf að hafa sæti fyrir a.m.k. 11 farþega.
Útboðsgögn afhendast á skrifstofu vorri að Borgar-
túni 7, Reykjavík og skal skila tilboðum á sama stað
merkt: „Útboð 3589/90" þar sem þau verða opnuð
í viðurvist viðstaddra bjóðenda föstudaginn 25. maí
kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
Aðalfundur
Steinullarverksmiðjunnar hf., verður haldinn í
Safnahúsinu á Sauðárkróki, mánudaginn 21. maí
1990, kl. 17.00.
Dagskrá samkvæmt 16. grein samþykkta félagsins.
Stjórn Steinullarverksmiðjunnar hf.
MYNDLISTA-
OG HANDÍÐASKÓLI
ÍSLANDS
í tilefni af 50 ára afmæli MHÍ býður skólinn þér,
fjölskyldu þinni og vinum á fjórar sýningar:
1) Sýning á lokaverkefnum útskriftarnemenda að
Kjarvalsstöðum 12.—20. maí. Opnun laugardag-
inn 12. maí kl. 14.00. Opið daglega frá kl.
11.00—18.00.
2) Sýning á hluta af lokaverkefnum fjöltækninema
að Vatnsstíg 3b, 12.—17. maí. Opið laugardag frá
kl. 15.00—18.00, aðra daga frá 14.00—18.00.
3) Kynning á starfsemi skólans í húsnæði hans á
horni Skipholts og Stórholts helgina 12. og 13.
maí. Opið frá 15.00—19.00 laugardag,
13.00—19.00 sunnudag.
4) Sýning á verkum nemenda barna og unglinga-
deildaraðSkipholti 1 helgina 12. og 13. maí. Opið
frá 15.00—19.00 laugardag, 13.00—19.00 sunnu-
dag.
Allir velkomnir.
IÐNSKÓLINNI REYKJAVfK
Kennara vantar
á tölvubraut, bæði í hugbúnaðar- og vélbúnaðar-
greinum.
Óskað er eftir verkfræðingum, tölvunarfræðingum,
tæknifræðingum eða mönnum með sambærilega
þekkingu.
Upplýsingar í skrifstofu skólans. Sími 26240.
ATVINNA
Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli auglýsir hér
með laus störf hús- og öryggisvarða í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar.
Umsækjendur skulu vera heilsugóðir og hafa lokið
grunnskólaprófi eða sambærilegri menntun.
Enskukunnátta og kunnátta í einu Norðurlandamáli
er æskileg.
Laun samkvæmt launakjörum opinberra starfs-
manna.
Skriflegum umsóknum skal skilað í skrifstofu flug-
vallarstjóra Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkur-
flugvelli fyrir 26. maí 1990.
Ómar Ingvarsson deildarstjóri (sími: 92-50600) veit-
ir nánari upplýsingar um störfin.
Keflavíkurflugvelli, 10. maí 1990.
Pétur Guðmundsson
flugvallarstjóri.
Aðalfundur
Kaupfélags Reykjavíkur og nágrennis, verður hald-
inn í Súlnasal Hótel Sögu, laugardaginn 19. maí kl.
10.00.
Dagskrá samkvæmt lögum félagsins, en auk þess
gerð tillaga um að leggja niður innlánsdeild félags-
ins.
Stjórn KRON.