Alþýðublaðið - 26.06.1990, Side 1
MBUBLMfi
Aktu ekki út í óvissuna
aktu ó
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhoföa 2 Sími: 91 -67 4000
93. TOLUBLAÐ 71. ARGANGUR
ÞRIÐJUDAGUR
26. JÚNÍ 1990
HREFNUVEIÐAR: Vísindanefnd Alþjóða-hvalveiði-
ráðsins hefur komist að þeirri niðurstöðu að veiða mætti
tvö til fjögurhundruð hrefnur á ári án þess að það hefði
nokkur áhrif á viðkomu stofnsins og hann sé því vannýttur.
Jóhann Sigurjónsson sjávarlíffræðingur sagði í viðtali
við útvarpið í gærkveldi að nefndin hefði með þessu stað-
fest niðurstöður íslenskra vísindamanna varðandi stærð
hrefnustofnsins á hafsvæðinu frá Austur-Grænlandi um-
hverfis ísland og til Jan Mayen. Þessi niðurstaða vísinda-
nefndarinnar þarf þó ekki endilega að þýða að hvalveiði-
ráðið sjálft samþykki að hrefnuveiðar verði hafnar að nýju.
Ákvarðanir ráðsins hafa gjarnan þótt bera keim af stjórn-
málaviðhorfum fremur en vísindaniðurstöðum.
ÁTÖKUM FRESTAÐ
TIL HAUSTS: Átökum í
Alþýðubandalaginu hefur
verið skotið á frest til
haustsins. Á fundi fram-
kvæmdastjórnar flokksins í
gær var samþykkt tillaga
Ragnars Arnalds um að
miðstjórnarfundur verði
haldinn í haust og þar tekn-
ar ákvarðanir um undir-
búning kosninga næsta vor
og um landsfund flokksins í
janúar á næsta ári eða síð-
ar. Þeir sem vilja landsfund í janúar hafa fyrst og fremst í
huga að skipta um formann í flokknum. Ólafur Ragnar
Grímsson hefur lýst andstöðu við landsfund svo snemma.
Svavar Gestsson skipaði sér opinberlega í hóp andstæð-
inga Ólafs í viðtali við Stöð tvö í gærkvöldi þegar hann lýsti
því yfir að flokksmenn í Reykjavík ættu við ákveðinn
vanda að stríða eftir að formaður flokksins treysti sér ekki
til að lýsa stuðningi við G-listann fyrir borgarstjórnarkosn-
ingarnar.
BHMR: Forsvarsmenn
BHMR funduðu í gær með
forsætisráðherra og fjár-
málaráðherra. Ekki náðist
samkomulag um launa-
hækkanir þær sem um er
deilt. Ólafur Ragnar
Grímsson fjármálaráð-
herra sagði í viðtali við út-
varpið í gærkvöldi að það
væri misskilningur að ríkis-
stjórnin væri að rifta samn-
ingunum frá í fyrra. Það
væri ekki vitað hvort tilefni
væri til launahækkana fyrr en samanburður hefði verið
gerður á kjörum háskólamenntaðra starfsmanna í ríkis-
geiranum og hjá einkafyrirtækjum. Póll Halldórsson for-
maður BHMR segir hins vegar að engar frestanir á launa-
hækkunum séu til umræðu. Deilan virðist þannig fara
harðnandi.
ÍRAR OG ÍTALIR ÁFRAM: írar og ítalir tryggðu sér í
gær rétt til að leika i átta liða úrslitum heimsmeistara-
keppninnar í fótbolta. ítalir sigruðu Úrúguay með tveimur
mörkum gegn engu en írar tryggðu sér áframhaldið í æsi-
spennandi vítaspyrnukeppni eftir að hvorki þeim né Rúm-
enum hafði tekist að skora mark i framlengdum leik. loka-
stöðutölurnar urðu 5—4.
IRA SPRENGIR LUNDÚN AKLÚBB: Öflug sprengja
írska lýðveldishersins sprakk í gærkveldi á fyrstu hæð eins
sögufrægasta klúbbs Lundúna, Carlton-klúbbsins. Klúbb-
urinn er einkum sóttur af meðlimum breska íhaldsflokks-
ins og Margaret Thatcher er meðal meðlima. Samkvæmt
Reutersfrétt í gærkveldi var talið að allmargt fólk hefði
særst en ekki var vitað hvort einhverjir ráðherrar hefðu
verið í klúbbnum þegar sprengjan sprakk.
LEIDARINN Í DAG
Tíminn er okkar, voru slagorð Lýðræðisbanda-
lagsins í Búlgaríu í nýafstöðnum kosningum.
Leiðari Alþýðublaðsins í dag fjallar um fyrstu
lýðræðiskosningarnar í Búlgaríu. Þó að komm-
únistar sitji áfram við stjórnvölin n, trúir enginn
því að þeir ráði við vandamálin. TTmanum verð-
ur einfaldlega ekki snúið við. Kommúnistar
syngja sjálfirútfararsönginn, en við lag lýðræð-
issinna.
SJÁ BLS. 4.
2
Galdurinn að láta
peninga hverfa
ISæmundur Guðvinsson
skyggnist bak við fréttirnar og
veltir því fyrir sér hvernig
standi á því að menn sem tekst
ist að láta peninga hverfa, séu
verðlaunaðir með því að láta
þá hafa enn meiri peninga til að
láta hverfa.
Að fleygja
mönnum í sjó
Dagfinnur lætur gamminn
geysa að venju og leggur nú til
að gleðimenn í Vestmannaeyj-
um verði teknir til fyrirmyndar
og tekið verði til við að fleygja
mönnum í sjó.
Afreksmenn
framtíðarinnar
IÖrn Eiðsson skrifar um
íþróttamálefni og fjallar um
ungt og efnilegt íþróttafólk,
sem landsmenn eiga e.t.v. eftir
að veita meiri athygli hér eftir
en hingað til. Að þessu sinni
fjallar hann um Jón Arnar
Magnússon.
Elísabet II. Englandsdrottning og hertoginn af Edinborg fengu að handfjatla íslensku handritin. Jónas Kristjáiisson, forstöðumaöur
Árnastofnunar, fræddi drottninguna og hertogann um alla sólarsögu handritanna. Hjónin sýndu handritunum mikinn áhuga eins
og sjá má á báðum myndunum. A-myndir: E.ÓI.
Koma Elísabetar II. og hertogans af Edinborg:
„Hvar er drottningin?"
— var spurt unglegri röddu úr hópi
áhorfenda
Óhætt er að segja að hið
íslenska veður hafi leikið
við Elísabetu II. Englands-
drottningu og Filippus
prins, hertogann af Edin-
borg, þegar þau lentu á
Reykjavíkurflugvelli um
hádegisbil í gær. Komu
þau þar með í sína fyrstu
opinberu heimsókn til Is-
lands. Þota þeirra lenti um
tveimur mínútum fyrir
áætlaðan tíma, eða þegar
klukkan var 23 mínútur
gengin í eitt.
Forseti íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, tók á móti drottn-
ingu og hertoganum á
Reykjavíkurflugvelli þar sem
þjóðsöngvar hvorrar þjóðar
voru leiknir. Að þeirri athöfn
lokinni hélt mektarliðið til
hádegisverðar í ráðherrabú-
staðinn við Tjarnargötu þar
sem snæddur var léttur há-
degisverður í boði forsetans.
Á matseðlinum var; blandað-
ur forréttur er innihélt hum-
ar, lifrarkæfu, steiktur blóð-
mör og reyksoðinn smálax, í
aðalrétt var soðin smálúða í
saffransósu, eftirrétturinn
var skyrkaka. Maturinn var
eldaður af Hilmari Jónssyni.
Áður höfðu þjóðhöfðingj-
arnir skipst á gjöfum. Vigdís
gaf drottingu vatnslitaverk
eftir Eirík Smith af Þingvöll-
um og Filippusi Dýraríkið eft-
ir Benedikt Gröndal. Elísabet
önnur færði Vigdísi tvær
postulínsstyttur og bókina
Heimsókn til íslands, 1833
eftir Atkinson. Drottningin
sæmdi einnig Vigdísi Bath
orðunni við þetta tækifæri.
Við komuna til ráðherrabú-
staðarins hafði nokkur fjöldi
fólks safnast saman í Tjarnar-
götunni. Unga kynslóðin
beið spennt eftir drottning-
unni og við Tjarnarborg ið-
uðu yngstu börnin af spenn-
ingi. Þegar drottningin loks
kom heyrðist ein ungleg rödd
segja: „Hvar er drottningin."
Sú litla, eða litli, sem þetta
sagði hafði sennilega búist
við drottningu með kórónu
og sprota en orðið fyrir von-
brigðum með það að drottn-
ingin íklæddist fremur íburð-
arlitlum fatnaði og bar enga
sjáanlega eðalsteina.
Sjá nánari umfjöllun um
fyrsta heimsóknardag drottn-
ingar.