Alþýðublaðið - 11.07.1995, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 11.07.1995, Blaðsíða 6
6 ALÞÝÐUBLAÐHD ÞRHDJUDAGUR 11. JÚLÍ1995 s k i I a b o ð MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ Nýtt nám í fiskiðnaði Innritun er nú hafin í nýtt nám í fiskiðnaði. Um er að ræða matvælanám með sérstakri áherslu á vinnslu sjávarfangs. Námið verður starfrækt í húsakynnum Fiskvinnsluskólans í Hafnarfirði. Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu Sölvhóls- götu 4 Reykjavík. Menntamáiaráðuneytið. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR UTBOÐ F.h. Hitaveitu Reykjavíkur, er óskað eftir tilboðum í lagn- ingu hitaveitu í Hafnarfirði. Verk þetta er nefnt: Hafnarfjörður: Aðgreining þrýstikerfa. Helstu magntölur eru: Lögn nýrrar æðar: 1.500 m Endurnýjun æðar: 550 m Samtals 2.050 m af DN 50-150 mm lögnum. Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. október 1995. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 11. júlí, gegn kr. 15.000 skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 19. júlí 1995, kl. 11:00 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 SAMBANDUNGRA JAFNAÐARMANNA Sumarferð 1995 Hvað? Sumarferð Sambands ungra jafnaðarmanna. Hvenær? Helgina 14. til 16. júlí. Hvert? Húsafell. Hvar? SUJ á pantaða þrjá sumarbústaði og tekur hver þeirra 5 til 7 manns. Hvernig? SUJ mun ekki standa fyrir ferðum í Húsafell, en þeir sem hafa pláss til að taka aukafarþega eru vinsamleg- ast beðnir um að láta formann eða framkvæmdastjóra SUJ vita um leið og þeir skrá sig. Farlausir taka það fram við skráningu. Hve mikið? Leigan á bústöðunum er 21 þúsund krónur sem skiptist á 15 til 21 aðila. Hvað á að gera? Hestaferðir, sund, gönguferðir, fótbolti, brennó, kýló, feluleikur, fallin spýta, landaparís, póker, skrafl, piksjonarý, trivíal, partýleikur, bridds, hopp, söngur, dans, drykkja, matur, hlaup, gangur, skrið og annað tilfall- andi. Hvað þarf að gera? Skrá þig sem fyrst í ferðina. Þegar há- marksfjöldi er kominn í hvern bústað þarf restin að gista á tjaldstæðum. Skráning fer núna fram í síma 552-9244, en allrabest er þó að hringja í framkvæmdastjóri SUJ, Baldur „Skugga" Stefánsson í GSM-draslið 89-66933 eða sím- boðann 84-51451. Hvað þarf að koma með? Svefnpoka, klæðnað, góða skapið, mat og drykk. Samband ungra jafnaðarmanna. SALA VARNARLIÐSEIGNA Tilkynning Skrifstofa vor og verslanir í Reykjavík verða lokaðar frá og með 17. júlí til 14. ágúst vegna sumarleyfa. Sala Varnarliðseigna. DAGVIST BARNA Daggæsluráðgjafi Staða daggæsluráðgjafa á skrifstofu Dagvistar barna er laus til umsóknar. Leikskólakennaramenntun eða önnur sambærileg menntun áskilin. í starfinu felst m.a. eftirlit með dagmæðrum, ráðgjöf til dag- mæðra og foreldra og umsjón með leikfangasafni. Nánari upplýsingar gefur Bergur Felixson, framkvæmda- stjóri í síma 552 7277. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 552-7277. Leikskólar Reykjavíkurborgar Leikskólastjóri og leikskólakennarar í leikskólann Engjaborg v/Reyrengi Leikskólastjóri óskast í leikskólann Engjaborg við Reyrengi frá 1. september n.k. Engjaborg er eins árs gamall 3ja deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum 1-6 ára. Umsækjendur skulu hafa leikskólakennaramenntun og skal umsóknum skilað á skrifstofu Dagvistar barna í Hafnarhús- inu við Tryggvagötu fyrir 24. júlí n.k. Einnig óskast leikskólakennarar á sama leikskóla. Allar nánari upplýsingar gefa Bergur Felixson, fram- kvæmdastjóri og Kolbrún Vigfúsdóttir, leikskólaráðgjafi í síma 552-7277. Leikskólar Reykjavíkurborgar eru reyklausir vinnustaðir. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 552-7277. MENNINGARMALANEFND REYKJAVÍKUBORGAR Starfslaun listamanna Auglýst er eftir umsóknum um starfslaun listamanna hjá Reykjavíkurborg. Menningarmálanefnd borgarinnar velur þá listamenn er starfslaun hljóta. Þeir einir koma til greina við úthlutun starfslauna sem búsettir eru í Reykjavík. Starfslaun skulu veitt í allt að 12 mánuði. Þeir listamenn sem starfslaun hljóta skuldbinda sig til að gegna ekki fast- launuðu starfi á meðan þeir njóta starfslauna. Starfslaunin verða kunngerð á afmælisdegi Reykjavíkur hinn 18. ágúst n.k. og hefst greiðsla þeirra 1. október eftir tilnefningu. Umsóknum um starfslaunin skal skila til Menningarmála- nefndar Reykjavíkurborgar, Kjarvalsstöðum, v/Flókagötu fyrir 1. ágúst n.k. Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar. Leigu- miðlanir Nýlega kom bréf frá félagsmála- ráðuneyti þar sem tílkynnt er að fast- eignasölu sé heimilað að selja um- sækjendum um leigmbúðir almennar upplýsingar um íbúðir tíl leigu. Áður hafði annani fasteignasölu verið veitt samskonar heimild. í bréfinu vísar ráðuneytið til 77. greinar húsaleigu- laga varðandi þóknun fyrir sérþjón- ustu. Háborðið | Jón Kjartansson frá Pálmholti skrifar f 77. grein I. málsgreinar nefndra laga segir að leigumiðlara beri þóknun úr hendi leigusala fyrir að koma á leigusamningi. í 2. málsgrein segir síðan: „Óheimilt er leigumiðlara að taka þóknun fyrir miðlunina og gerð leigusamnings." Þessi ákvæði eru efn- islega óbreytt frá því húsaleigulög voru sett árið 1979. í húsaleigulögum númer 36 frá ár- inu 1994 er viðbótarákvæði sem segir að leigumiðlara sé þó „heimilt að áskilja sér sanngjarna þóknun eða kostnað úr hendi leigjanda ef um er að ræða sérstaka þjónustu í hans þágu“. Þessu viðbótarákvæði var ætlað að gera leigumiðlara heimilt að krefja umsækjanda um greiðslu á útlögðum kostnaði í hans þágu sérstaklega, eða fyrir sérstakt ómak. Ráðuneytið virðist í áðurnefndu bréfi ekki gera greinarmun á sér- þjónstu og almennri þjónustu og telja að sérþjónusta getí verið veitt öllum. Þessum „skilningi" hljótum við að mótmæla og gera þá kröfu að hugtak- ið sérþjónusta sé skilgreint eins þröngt og mögulegt er. „Ráðuneytið virðist í áðurnefndu bréfi ekki gera greinarmun á sérþjónstu og almennri þjónustu og telja að sérþjónusta geti verið veitt öllum. Þessum „skilningi" hljótum við að mótmæla og gera þá kröfu að hugtakið sérþjónusta sé skilgreint eins þröngt og mögulegt er." Húsaleigulög eru sett tíl þess fyrst og fremst að tryggja heimilisrétt leigj- enda og ber að túlka þau samkvæmt því. Eigendur og leigjendur hér á landi standa ekki jafnir, hvorki fyrir leigu- miðlara né annarsstaðar. Eigandi á mikið undir því að þjónusta miðlara sé vönduð. Sömu kröfur eru gerðar til fasteignasala og leigumiðlara. Það yrði varla nefnt sérstök þjónusta við íbúðareiganda ef upplýsingum um íbúð hans væri dreift gegn gjaldi og til hvers sem hafa vill, án frekari þjón- ustu og ábyrgðar. Sala á almennum upplýsingum er ekki sérþjónusta í fasteignaviðskiptum. Höfundur er formaður Leigjendasamtakanna. r /,■ Alþýðublaðlð í skjóli myrkurs

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.