Alþýðublaðið - 02.07.1997, Side 5
I
MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1997_______________________________ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5
s t j ó r n m á I
stefnu annarra vestrænna ríkja og ótt-
uðust að viðskiptum við Sovétmenn
væri stefnt í hættu, eins og Jón Bald-
vin sjálfur taldi reyndar líka hugsan-
legt.
Sjálfstæðismenn sem voru í stjóm-
arandstöðu fram í maí 1991 sögðu ís-
lendinga verða að viðurkenna sjálf-
stæði Eystrasaltsríkjanna og taka upp
stjómmálasamband við þau þegar í
stað, annað bæri vitni um pólitíska
linkind. En Sjálfstæðismenn voru í
stjómarandstöðu og gátu þess vegna
leyft sér að vera ögn róttækari en
annars. Enda kom á daginn þegar
Sjálfstæðisflokkurinn tók við stjóm-
artaumunum þá komst þetta stjóm-
málasamband ekki á þegar í stað
heldur urðu menn að bíða valda-
ránstilraunarinnar í Moskvu í ágúst
1991, þegar reynt var að steypa Gor-
batsjov af stóli.
Þá töldu flestir embættismenn ut-
anríkisráðuneytisins að yfirmaður
þeirra færi of hratt í Eystrasaltsmál-
um. „Þeim var um og ó hversu geyst
Jón Baldvin fór,“ sagði stjómmála-
maður, sem vel þekkti til, síðar.
Og ráðamönnum í Skandinavíu
fannst furðulegt að Islendingar væm
að skipta sér af sjálfstæðisbaráttu
Eystrasaltsríkjanna. Þeir sögðu að
Jón Baldvin og aðrir á fslandi væra
óvarkárir og ábyrgðarlausir.
Að mínu mati má leiða að því get-
um að aðrir íslenskir stjómmálamenn
hefðu ekki skorið sig úr á alþjóða-
vettvangi eins og Jón Baldvin var
reiðubúinn að gera. Varkárari stjóm-
málamenn hefðu ekki tekið þá af-
dráttarlausu afstöðu sem þessi öri og
tilfinninganæmi stjómmálamaður
gerði. Eg held að það sé óhætt að
fullyrða að við hefðum ekki gengið
svona langt í stuðningi okkar við
Eystrasaltsríkin hefði Jón Baldvin
ekki verið utanríkisráðherra."
Enda er hann þjóðhetja í Eystra-
saltsríkjunum.
„Það er hann vissulega. Eg hef
komið tvisvar til Eistlands og einu
sinni til Litháen og hef orðið var við
þessa aðdáun. Formaður litháensku
utanríkismálanefndarinnar sagði við
mig: “Hannibalsson, það er hugrakk-
ur maður. Hann kom hér þegar
dekkst var yfir. Eg gleyrni þessum
manni aldrei". Og í Eistlandi hafði
fólk á orði að það myndi enn eftir
„þessum hnarrreista manni sem líkt-
ist helst fomum víkingi“.
Hvaða lœrdóm má draga affram-
gangi íslendinga?
„Það má kannski helst segja að
þótt við hljótum að hafa takmörkuð
áhrif á alþjóðavettvangi getum við
reynt að láta til okkar taka. Við get-
um reynt að veita kúguðum þjóðunt
siðferðislegan stuðning en um leið
getum við ekki frelsað heiminn. Svo
má spyrja hvort við getum verið
sjálfum okkur samkvæm. Eigum við
að mótmæla mannréttindabrotum í
Kína og í fjölmörgum öðrum lönd-
um? Eigurn við að skipta við ríki eins
og Kína? Þegar við studdum sjálf-
stæðisbaráttu Eystrasaltsþjóðanna
vildum við láta siðferðissjónarmið
ráða ferðinni þótt við þyrftum líka þá
að hafa þær viðvaranir Sovétmanna
til hliðsjónar að viðskipti Islands og
Sovétríkjanna gætu beðið hnekki. Ég
efast urn að smáþjóð í hörðum lieimi
geti leyft sér að lifa eftir þeirri reglu
að gera alltaf rétt og þola ekki órétt."
■ Edinborgarhúsið á ísafirði
Menningarmiðstöð Vestfjarða
„I hvert sinn sem stjómmálamenn
eiga kost á hampa þeir menningunni
en gera í raun og veru aldrei neitt til
að auka veg hennar. Menningarhug-
takið á íslandi er neikvætt, almenn-
ingur sér það sem pólitískt vopn.
Þessu verður einungis breytt með þvi
að gera menninguna að sjálfsögðum
hlut í daglegu lífi,“ segir Jón Sigur-
pálsson myndlistarmaður sem er í
stjóm Edinborgarhússins á ísafirði en
segja má að húsið sé menningarmið-
stöð bæjarins.
Edinborgarhúsið var byggt úrið
1907 og var lengi eitt mesta mann-
virki á fsafirði. Fyrir nokkrum árum
fengu félagar Litla leikklúbbsins þá
hugmynd að kaupa húsið og nýta til
menningar- og listastarfsemi. Fleiri
félög, fyrirtæki og einstaklingar komu
síðan að kaupunum sem gengið var
frá haustið 1992.
1 húsinu er starfræktur listaskóli
sem kenndur er við Rögnvald Ólafs-
son aikitekt hússins. Þar fer fram tón-
listar- myndlistar- og leiklistar-
kennsla. Edinborgarhúsið hefur
einnig tekið þátt í svokölluðum „sum-
arkvöldum í Neðstakaupstað" sem
hafa verið haldin í Fjöruhúsinu und-
anfarin tvö ár í samvinnu við Byggða-
safn Vestfjarða og Vesturferðir. „Sum-
arkvöldin" era haldin á fimmtudags-
kvöldum yfir sumartímann. Þar era
flutt erindi og er efnið oftar en ekki
tengt mannlífi fyrir vestan, flutt er
tónlist og þjóðlegar veitingar era á
boðstólum. Annað kvöld mun Jón
Baldvin Hannibalsson mæta til leiks
og skemmta gestum með sögum og
mun vafalaust fara á kostum.
Edinborgarhúsið á eigið málgagn,
Mannsmál úr Edinborg, sem kemur út
tjórum sinnum á áii og þar birtast til-
kynningar um það sem helst er á döf-
inni í menningarstarfsemi hússins.
Það er engin lognblær yfir menn-
ingarstarfsemi á ísafirði og hátíðleik-
inn og helgislepjan sem of oft virðast
slást í för með menningunni era víðs
fjarri. „Það leiðinlegasta í umræðunni
um menningu er snobbið sem í raun-
inni er hálfgerð ómenning," segir Jón
Sigurpálsson. „Hinir raunveralegu
fulltrúar menningar er venjulegt fólk
enda hefur það yfirleitt rniklu meira
vit á menningu en sjálfskipaðir menn-
ingaivitar."
í iiíujMflaíi
Velkomin um borð
larferjuna Baldur
! Daglegar ferðir með viðkomu í Flaley
Frá Stykkishóimi kl. 10.00 &16.30
Frá Brjánslæk kl. 13.00 & 19.30
Símar: 438-1120 Stykkishólmi
456-2020 Brjánslæk
Fax: 438-1093 Stykkishólmi