Vísir - 12.05.1976, Blaðsíða 7

Vísir - 12.05.1976, Blaðsíða 7
vism Miðvikudagur 12. mal 1976. Aftur allsterkur skiálfti á ftalíu Skelfingu lostið þaut fólk út úr húsum á norð- austur italíu í nótt, þegar snarpur jarðsk já Ifta- kippur kom, svo að nokk- ur hús hrundu. til viðbótar Kippurinn i nótt er sá snarp- asti siðan stóri kippurinn kom fyrir tæpri viku. Sá var 6,5 stig á Richterkvarða, en þessi i nótt var 5,4 stig. Margir höfðu nýverið snúið aftur til heillegra húsa sinna i nágrenni borgarinnar Udine og i borginni sjálfri. Eftir fimm daga dvöl i tjöldum úti á ber- angri taldi fólk að skjálftum ætti að vera farið að linna. Ekki varvitaðum mannskaða af völdum kippsins i nótt. Aur- skriður féllu niður hliðar fjalla við kippinn, og lokuðu gjörsam- lega vegum að tveimur þorpum. En enginn á að hafa verið i þorpunum, þar sem allir voru fluttir frá þeim. Verkalýðsleiðtogar á ítalíu hafa hvatt launþega til að gefa laun tveggja tima vinnu til að- stoðar á jarðskjálftasvæðinu. Ef allir gera það, gæti fjárhæðin orðið um 28 milljarðar króna. Björgunar menn koma lik- kistum fyrir i fjöldagröf i þorp- inu Gemona. Opinber tala lát- inna er nú 900. Morðbyssan notuð áður Franska lögregian sagði i gær- kvöldi að byssan sem bóiiviski ambassadorinn var drepinn með i gær, væri sú sama og skotið var úr á spánskan diplómat i Paris i desember siðastliðnum. Sérfræðingar lögreglunnar komust að þessu með þvi að bera saman rákir á byssukúlunum. Skeggjaði maðurinn sem drap Joaquim Zentano Anaya sendi- herra, hefur ekki fundist. Hann skaut Anaya á gangstétt skammt frá sendiráði Bóliviu. Samtök sem nefna sig ,,Che Guevara herdeildina” lýstu ábyrgð á hendur sér fyrir morðið i fréttatilkynningu sem send var Frjálslyndir sárbœna Jo Grimond að koma aftur blöðum nokkrum timum eftir morðið. Anaya var foringi bóliviskrar herdeildar sem elti útlagann Guevara og drap hann. Yfirmaður herafla Bóliviu, Raul Alvares Peneranda, sagði i gær, að þessi atburður væri fyrr- verandi yfirmanni heraflans fyrst og fremst að kenna. Hann hefði birt leyniskjöl um aðförina að Che, nokkru eftir að honum var bolað frá herstjórninni i byltingu árið 1971. Fjórir menn sem stóðu að út- rýmingu Che hafa farist, m.a. fyrrum forseti Bóliviu. Vegna þessa hefur öryggis- vörður verið hertur um þá sem tóku þátt i aðförinni. Ungfró Cvrópa Þetta er nýkjörin Ungfrú Evrópa, Teresa Maldonado, 19 ára gömul. Hún var kjörin i smárikinu Andorra (milli Spánar og Frakk- lands) á sunnudag. Ekki fylgir fréttinni hverr- ar þjóðar Teresa er. Island átti fulltrúa i þess- ari keppni, en fréttir tafa ekki borist af frammistöðu hans. Innköllun Hvatningarorð streyma nú að úr öllum áttum til hins 62 ára gamla Jo Grimond, sem eitt sinn var hetja Frjálslynda flokksins i Bretlandi, og átti mestan þátt i að reisa hann ,,við úr niðurlægingu. Frjálslyndir vilja gera Grimond að leiðtoga flokks sins, eftir að Jeremy Thorpe sagði af sér. Hann mun tilkynna hinum 13 þing- mönnum Frjálslynda flokksins um ákvörðun sina i dag. Jo Grimond er Oxford menntaður, og eini maðurinn i Frjálslynda flokknum auk Thorpe sem er nægilega vel þekktur um allt Bretland. Forsetaefni fá pening Ford forseti undirritaði i gær kbmnir i fjárhagsleg vandræði ný lög um fjárframlög til fram-1 vegna tafarinnar á opinbera bjóðenda til forsetakosninga. 1 framlaginu. Nýju lögin leysa af hólmi gild- : Hinnýju lög leysa frá störfum andi reglur um framlög, en þær alrikisnefnd sem sett var á höfðu valdið þvi að frambjóð- laggirnar til að koma i veg fyrir endur voru enn ekki farnir að fá misnotkun sem einkenndu hinn opinbera styrk. baráttu Nixons til endurkjörs Margir frambjóðendur eru við forsetakosningarnar 1972. ■ ■ h ■§ nr mm *r ■■■■i mm mw am am llllilClHrHrlCI H h HIHHhH CHdMH íslands 09 Loftleióum Afhending hlutabréfa í Flugleiðum hf. hefst föstudag- inn 14. mai n.k. Hluthafar fá afhent hlutabréf í Flug- leiðum gegn framsali á hlutabréfum í Flugfélagi íslands og Loftleiðum. Hlutabréfaskipti fara fram í aðalskrifstofu Flugleiða, Reykjavíkurflugvelli alla virka daga á venjulegum skrifstofutima og einnig laugar- daginn 15. maí kl. 13-17. FLUGLEIÐIR HF

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.