Vísir - 23.01.1977, Blaðsíða 2

Vísir - 23.01.1977, Blaðsíða 2
2 r Sunnudagur 23. janúar 1977 þá sérstaklega fiskverslun”, segir Thor Jensen i endur- minningum sinum. Skipstjórarnir voru meöal hinna þekktustu þá og þræl- vanir skútuskipstjórar. Stofnfé Alliance átti aö vera 20 þúsund krónur. Þetta skyldi vera sam- eignarfélag og skipt i átta hluti. Hver skipstjóri átti að fá einn hlut, en Thor, eða Godthaab verslun hans, tvo. Hann átti þvi einn fjórða fyrirtækisins. Nokkrum erfiðleikum var bundið að fá lánsfé I Lands- bankanum, þrátt fyrir að á ferðinni væru skipstjórar sem þekktir voru að dugnaði. En Tryggvi Gunnarsson banka- stjóri mun hafa að lokum kveðið upp úr um að rétt væri að leyfa strákum að spreyta sig. Sterkari en ensku tog- ararnir. Thor Jensen segir frá þvi i minningum sinum, sem Valtýr Stefánsson skráði að sumarið 1905 hafi hann unnið öllum stundum við að útbúa smiöa- lýsingu á togaranum. 1 hvert skipti sem erlendir togarar komu á Reykjavikurhöfn, skoðaði hann þá i krók og kring. Hann segir: „Ég ákvað að máttarjárn og plötur I skrokk hins nýja skips .... .. " „Hœtt að kaupa gamalt og úrelf' 70 úr liðin frú komu fyrsta togarans, er smíðaður var _____sérstaklegq fyrir íslendingo, til londsins Það myndu varla margir renna hýru auga til þess að verða skipverjar á fyrstu togurunum sem út voru gerðir hér á landi, ef þeim byðist pláss i dag. Og ýmsir myndu jafnvel hafa á orði að hinir fyrstu togarar eigi fátt sameiginiegt með skuttogurunum, annað en að nefnast togarar. Svo ör hefur þróunin verið og svo stórstigar hafa framfarirnar veriö. 1 gær voru einmitt liðin 70 ár siðan fyrsti togarinn sem smiðaður var sérstaklega fyrir islendinga kom til landsins. Jón Forseti, sem Alliance félagið keypti sigldi inn á heimahöfn sína, Reykjavikurhöfn 22. janúar 1907. Rétt rúmum fjórum árum fyrr hafði vél verið sett I fyrsta bátinn á Islandi. Það var á Isafiröi. Það er þvi augljóst að fram- farirnar höfðu verið stórstigar. Og merkilegt er að fylgjast með þeim framfarastökkum sem verða á fyrstu árum aldarinnar, þegar menn þurftu ekki lengur að sitja undir árum, eða treysta á segl, en gátu þess i stað farið aö hagnýta sér vélaraflið. Erlent fjármagn í út- gerö. Nokkur togaraútgerðarfyrir- tæki voru stofnuð með erlendu fjármagni hér á landi á árunum 1899 til 1902. — Félagið Frem, Geirseyrarverslun á Patreks^ firði, Wards útgeröin og hin stærsta sem var útgerð Vida- lins, og kennd er við Jón Vidalin konsúl. Hjá þessari útgerð starfaði Thor Jensen sem mikið kemur við sögu togaraútgerðar hér á landi. Fyrsti togarinn sem eingöngu var i eigu islendinga var Coot. Hann kom til landsins 6. mars 1905 og byrjaði fljótlega veiðar. Indriði Gottsveinsson var fyrsti og eini skipstjóri togarans. Rekstur fyrstu árin gekk treg- lega, en ágætlega siöustu ár hans. Togarinn strandaði 8. des- ember 1908 og náðist ekki á flot. //Hve skal lengi dorga/ drengir." Tvö nöfn eru þaö sem risa hærra en önnur þegar fjallaö er um upphaf islenskrar togaraút- gerðar. Það eru Jón Forseti og útgerðarfélagið sem rak og átti skipiö, Alliance. Þau eru nátengd þeirri vakningu og framkvæmdahug sem ein- kenndi fyrstu ár aldarinnar ,,Hve skal lengi/dorga drengir/dáðlaust upp við sand”. Þessari frýjun Einars Benedikt- ssonar var nefnilega svarað Coot. fyrsti togarinn er islendingar eignuðust einir. Halldór Kr. Þorsteinsson, fyrsti skipstjóri og einn eigenda Jóns forseta. kröftuglega með togaraöld þeirri sem segja má að hefjist strax eftir að fyrstu togararnir koma til landsins. ,,Nú er annað i bruggi. Magnús Magnússon, Jón Sigurðsson, Jafet Ólafsson, Jón Ólafsson, Halldór og Kolbeinn Þorsteinssynir vilja allir selja skip sin Dophie, Ragnheiði og Caroline og biðja mig aö standa fyrir félagi sem kaupi gamla togara. Ég held ég geri það. Ég hef trú á þvi. Ensku togararnir ganga vel. Vil þó ekki gamalt skip. Vil nýtt skip...””. A þessa leið skrifar Thor Jensen þann 15. júni 1905 til sonar sins Richard sem þá var við nám i Kaupmannahöfn. Og þeir menn sem Thor minnist á i bréfi slnu uröu þeir er stofnuðu meö honum útgerðarfélagiö Alliance. Bandalag sjómanna og Thors. „Nafnið átti að tákna þaö að þarna væri stofnað bandalag milli duglegra sjómanna og fiskimanna annars vegar og hins vegar þeirrar þekkingar er ég hafði á útgerð og verslun og skyldu að styrkleika vera 20 prósent umfram það sem til- skilið var i smiöareglum Lloyds. Ýmsar aðrar endur- bætur ákvað ég að gera skyldi við smiði þess togara umfram það sem tiðkaðist á enskum togurum. Til dæmis aö hásetakiefi yrði rýmri en venja var til, meiri þægindi fyrir skip- verja, stærri vatnsilát i skipinu og margt fleira. Kjöllengd skipsins var ákveðin 130 fet. Voru mjög fáir enskir togarar svo stórir og engir stærri. Maður að nafni Smith, frá Goole I Englandi, sem Thor Jensen þekkti fyrir, gerðist milligöngumaður um smiöi skipsins. Atti hann að láta smiða skip samkvæmt smiða- lýsingu og skyldi það kosta 7500 sterlingspund. Það eru i kring um 2,4 milljónir króna, miöað Við gengi pundsins i dag. Halldór valinn skip- stjóri. Thor Jensen segir frá þvi i endurminningum sinum að hann hafi með sjálfum sér valið Halldór Þorsteinsson einn eigenda til að fara með skip- VÍSIR t/tgefandi:Keykjapront hf. Framkvæmdastjóri:DavIÖ GuÖmundsson Ritstjórar:t>orsteinn Pálsson ábm. ólafur Ragnarsson Kilstjórnarfulltrúi: Bragi Guömundsson. Kréttastjóri erlendra frétta : Guömundur Pétursson. Um- sjón meö helgarblaöi: Arni Þórarinsson. Ulaöamenn: Edda Andrésdóttir, Einar Guöfinnsson, Elias Snæland Jónsson, Finnbogi Hermannsson. Guöjón Arngrimsson. Kjartan L. Pálsson, óli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guövinsson. lþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson. Akur- eyrarritstjórn: Anders Hansen. Otlitsteiknun: Jón óskar Hafsteinsson og Magnús Ólafsson. Ljós- myndir: Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson. Auglýsingastjóri: Þorsteinn Fr. Sigurösson. Dreifingarstjóri: Siguröur R. Pétursson. Auglýsingar : llverfisgata 44.SImar 11660, 86611 Afgreiösla : llverfisgata 44. Sfmi 86611 Ritstjón :Síöumúla 14. Simi 86611, 7IInur Akureyri.SImi 96-19806 Askriftargjald kr. 1100 á mánuöi innanlands. Verö i lausasölu kr. 60 eintakiö. Prentun: Blaöaprent hf. Áskriftarsími Vísis er 86611 Hringið strax og tryggið ykkur eintak af Vísi til lesturs hvern dag vikunnar fyrir aðeins 1100 krónur ó mónuði

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.