Tíminn - 07.08.1968, Blaðsíða 13
MBMHílTÐAGUR 7. ágúst 1988.
□ :íij
TIMINN
ÍÞRÓTTIR
Jafntefli og tap
hjá Fram í Svíþjóð
Alf.—Reykjavík. — 1. defldar
lið Fram í knattspyrnu, sem um
þessar mundir er í SvíþjóS, mátti
bíta í það sára epli að tapa fyrir
A.I.K., sem er sænskt 1. deildar-
lið, með 9:1, í leik, sem fram fór
í Stokkhólmi s.L fostudag. Hins
vegar gerði Fram ja|ptefli á mánu
daginn gegin 3. defldariiðinu
Spanga, 1:1, og veru Framarar
mjög óheppnir í þeim leik, mis-
notuðu t.d. vitaspyrnu.
Karl Guðmundsson, þjálfari
Fram, sagði í stuttu símtali í gær,
að leikurinn gegn A.I.K. hafi ver-
ið leikur mikjlla vonbrigða. Fram
liðið hefði ekkert haft að gera
í hendurnar á þessu sterka liðL
Svíarnir hefðu verið fljótarj og
ábveðnari, auk þess, sem þeir
höfðu mun betra úthald. „Að vísu
hafði Fram-liðið nokkra afsökun“
sagði Karl, „því að leikurinn fór
fram nær strax eftjr að liðið kom
til Stokkhólms, eftir erfitt sex til
sjö tíma flug. Strákarnir voru því
ekki eins vel upplagðir.'* Staðan
Unglingameistara-
mót í sundi í Rvík
Unglingameistaramót fslands í
sundi verður haldið í Reykjavík
14. og 15. september n.k.
Dagskrá mótsins: Laugardagur
14. sept. 1968 kl. 17,00:
100 m. skriðsund drengja
100 m, bringusund stúlkna
50 m. baksund sveina
50 m. flugsund telpna
100 m. bringusund drengja
Framhaio á on- 15
Reynir Ólafsson — hefur nú hlotlð
réttindi sem milliríkjadómari í
handknattleik.
í hálfleik var 4:1 og skoraði
Ágúst Guðmundsson ejna mark
Fram í þessum leik.
Síðari leikurinn fór fram á
mánudaginn og var gegn 3. deild-
arliðinu Spanga. f þessum leik
hafði Fram-ljðið talsverða yfir-
burði, en samt fór svo, að honum
lauk með jafntefli, 1:1. Langtím
um saman voru 8 Svíar í vörn
og erfdtt fyrir sóknarmenn Fram
að 'komast fram hjá þeim. Mark
Fram skoraði Ásgeir Eliasson.
Þess má geta, að Fram fékk víta
spyrnu, sem var misnotuð.
Fram leikur e.t.v. ejnn eða tvo
leiki til viðbótar, en heim kemur
liðið n.k. sunnudag.
Frá leiknum í gærkvöldi: Eyieifur og Valur Andersen berjast um knöttinn. Fyrir aftan stendur Valur Bene-
diktsson, dómari. (Tímamynd: Róbert).
Sögulegur leikur KR og Vestmarsnaeymga, sem KR vann 4:3
KR komst í hættu, þegar
Ellert var rekinn út af
Alf.—Reykjavík. — Sögulegasti
leikur íslandsmótsins til þessa var
leikinn á Laugardalsvellinum í
gærkvöldi, Ieikur KR og Vest-
mannaeyinga í 1. deild. Það var
barizt hart á báða bóga, allt of
harkalega, og meðal áhorfenda að
slagsmálunum var hinn mjög slaki
dómari, Valur Benediktsson, sem
missti algjörlega tökin. KR-ingar
gengu af leikvelli sem sigurvegar-
ar og máttu sannarlega þakka
fyrir að hljóta bæði stigin, því
að þeir komust í mikla hættu um
miðjan síðari hálfleik, þegar fyrir
liði þeirra, Ellert Scram, var rek-
inn af leikvelli. Svo mikil ringul-
reið skapaðist í herbúðum KR við
fráhvarf hans, að Vestmannaey-
ingum tókst á 2 mín. að brúa 3:1
forskot, sem KR hafði. Valur
Andersen, einhver bezti miðvallar
spilari okkar um þessar mundir,
skoraði 2. mark Vestmannaeyinga
og míniitu síðar jafnaði Sævar
Tryggvason, 3:3. Spennan var á
hápunkti — og Vestmannaeyingar
virtust allt í einu sigurstrang-
legri, þrátt fyrir síendurtekin
varnarmistök fyrr í leiknum, sem
höfðu komið þeim á kaldan klaka.
En sorgarsaga Eyjamanna var
ekki búin. Tveimur mínútum eftir
Mæltu meö sjálfum sér
Alf.—Reykjavík. — Stjórn
Handknattleikssambands íslands
hefur nýlega tilnefnt 5 milliríkja
dómara samkvæmt tillögu Dóm-
arnefndar HSÍ, en í nefndjnni
eiga sæti þeir Hannes Þ. Sigurðs
son, Karl Jóhannsson og Valur
Benediktsson.
Milliríkjadómarar fyrir næsta
keppnistímabjl verða þeir Hannes
Þ. Sigurðsson, Karl Jóhannsson,
Valur Benediktsson, Magnús V.
Pétursson og Reynir Ólafsson.
Reynir er sá eini, sem ekki hefur
haft réttindi sem millirikjadóm-
ari. Má segja, að tími hafi verið
kominn til að hann öðlaðist rétt-
indjn.
Fleiri ágætir dómarar standa
enn fyrir utan hópinn, m.a. Björn
Kristjánsson og Óli Ólsen, en þeir
hafa ekki hlotið náð fyrjr augum
Dómaranefndarinnar.
að þeim hafði tekizt að jafna 3:3,
máttu þeir horfa á eftir knettin-
um í eigið mark fyrir mjög klaufa
leg mistök varnar og markvarðar,
sem hljóp út á röngu augnabliki.
Ólafur Lárusson, hinn marksækni
miðherji KR, skoraði frá enda-
marklínu sigurmark KR í þessum
leik, mark, sem aldrei hefði kom-
ið, hefði Páll Pálmason staðið kyrr
í markinu. Fleiri mörk voru ekki
skoruð og tölurnar 4:3 blöstu við,
þegar dómarinn flautaði af.
Tveir reknir út af
Eins og fyrr segir, var Ellert
Schram vísað af leikvelli á 21.
mínútu síðari hálfleiks. Þá hafði
hann gert sig sekan um að mót-
mæla dómum hvað eftir annað og
reynt að hafa afskipti af því
hvernig dómari dæmdi. Ellert var
vorkunn að því leyti, að Valur
dæmdi ekki vel og fylgdist illa
með, en hins vegar voru afskipti
Eilerts of áberandi.
En Ellert var ekki sá eini, sein
fékk „reisupassann". Þegar nokkr
ar mínútur voru til leiksloka var
Sigmari Pálmasyni í Vestmanna-
eyjaliðinu einnig vísað út af fyrir
gróft brot gagnvart Þórólfi Beck.
Þannig var tveimur leikmönnum
vísað út af í þessum sögulega leik.
Eyjamenn náðu forystu, en
féllu á Iélegri vörn
Eyjamenn voru fyrri til að
skora, en á 17. mín. fyrri hálf-
leiks skoraði Sævar Tryggvason
fyrsta mark leiksins. Þá höfðu
Eyjamenn sótt fast að KR-mark-
inu og Sævar afgreiddi fyrirsend-
ingu með föstu skoti í markið.
En forysta Eyjamanna stóð ekki
lengi. Á 25. mín. náði Gunnar
Felixson að jafna eftir að knött-
urin>n hrökk til hans af illa stað-
settri vörn Vestmannaeyja. Þetta
var forsmekkurinn af Iélegri vörn
Eyjamanna í þessum leik. Fyrir
hálfleik bættu KR-ingar öðru
marki við, sem Ellert skoraði úr
vítaspyrnu. Gunnari Fel. hafði ver
ið brugðið innan teigsins og það
var ekkert annað fyrir Val að
gera en að dæma víti. Páll
Pálm'ason varði skot Eílerts, en
missti knöttinn út af fyrir fætur
Ellerts, sem skoraði 2:1. Á 5.
mín. síðari hálfleiks gerði Vest
mannaeyjavömin sig enn seka um
mistök, þgear hún gleymdi að
valda Þórólf, er Ellert fram-
kvæondi aukaspyrnu. Þórólfur
fékk knöttinn rétt fyrir utan mark
teig og skoraði örugglega, 3:1.
Það er greinilegt, að Vestmanna-
eyingar geta illa verið án Viktors
Helgasonar, sem hefur verið kjöl-
festan í vörninni, en um þessar
mundir er Viktor á sjúkralista
eftir leikinn gegn Keflvíkingum,
því miður fyrir Vestmannaeyinga.
Sögulegar mínútur.
22. og 23. minúturnar í síðari
hálfleik voru sögulegar. Ellert
hafði verið vísað út af — og Eyja-
menn tvíefldust. Valur Andersen
Framhaio á bls. 1L
„Njósnari” að norðan
Meðal áhorfenda að leik KR og
Vestmannaeyja gærkvöldi var
þjálfari Akureyrar Einar Helgason.
Fylgdist Einar vel með leiknum
og ekki að ófyrirsynju, því að
KR-ingar munu heimsækja Akur
eyri á sunnudaginn. Er það álit
margra, að sá leikur verði úrslita
leikur mótsins.
KR
Akureyri
Fram
Vaiur
Vestm.
Keflavík
7
7
7
7
7
7
.20:11 10
12: 5 10
13:10 9
13:11 7
11:19 4
3:16 2
Æfingalaus, en sigr-
aði Islandsmeistarann
Á þjóðhátíðinni í Vestmanna
eyjum var keppt í nokkrum
greinum frjálsíþrótta, þ.á.m. i
100 metra hlaupi. Meðal kepp
enda voru íslandsmeistarinn í
greininni, Valbjörn Þorláksson
og sá, scm hlaut 2. verðlaun
í nýafstöðnu nieistaramóti fs-
lands, Þorvaldur Benediktsson.
En hvorugur þessara íþrótta
manna sigraði í hlaupjnu í
Vestmannaeyjum. Sigurvegari
varð nefnilega Þórarinn Ragn
arsson, seni er betur þekktui
sem 800 og 1500 m. hlaupari.
Þórarinn sigraði glæsilega og
hljóp á 11,0 sek„ eða á tveim-
ur sekúndubrotum betri tíma
en þeir félagar. Er Þórarinn
þó í lítifli sem engri æfingu.
Margt er skrýtið í íþróttunum!