Vísir - 23.10.1977, Blaðsíða 2

Vísir - 23.10.1977, Blaðsíða 2
Jörundur segir frá eftirherm- um, nýrri plötu og öðrum uppákomum „Þegar ég var i sveitinni sem litill polli var þaö landlægur ósiöur að herma eftir öörum. Það talaði enginn meö sinni eigin röddu. Ég hafði alveg svakalega gaman af þessu. Sérstaklega ..þaö er vist best aö nefna engin nöfn. Þaö var svolitið furðulegt aö vera I svona umhverfi. Maður fór sjálfur aö herma eftir öllu og öilum, ekki bara dýrum heldur einnig bændum I nágrenninu. En á veturna heima á Akureyri voru það mest prakkarastrik sem maður stundaöi, ekki endilega eftirhermur. Ég man sérstakiega eftir einu ... þaö var hel- viti neyðarlegt. Ég held ég hafi verið tólf — fjórtán ára gamall, og það var verið að sýna einhverja stórmyndina ....bíddu ....A Hverf- anda hveli. — Við vorum þrir sem sátum á fremsta bekk og áður en rnvndin byrjaði hafði einn okkar sett prumpufýlubombur á klósett- ið. Siðan kórónuðum við þetta með þvl að sprengja litlar gler- flöskur sem voru fullar af eins konar táragasi. Og það munaði ekki um það, tárin flutu I striðum straumum. Það skapaðist algert öng- þveiti. Hinir tveir voru hirtir i hléi, en ég var sóttur af tveim fll- efldum lögreglumönnum þegar myndin var búin. Þetta var mjög neyðarlegt þvi nær allir kvikmyndahúsgestirnir horfðu á þetta. Annars hljóp lögreglan svolitið á sig, þvi hún kom heim og heimtaöi húsrannsókn, —sem varð þó lítið tjón fyrir mig, þvl litli bróðir, sem þá var nlu ára, átti þetta allt.” PLATA ,,Ég lagði ekki alveg niður að herma eftir þótt ég hafi hætt i sveitinni. Ég gerði þetta mest einn og þá helst inni i stofu. Ég fór að fá þætti frá Benedikt Viggós lánaða svona fyrir mig sjálfan. Og tvö fyrstu árin sem ég skemmti samdi hann fyrir mig. Svo smá þróaðist þetta og það fór að fréttast að ég gæti hermt eftir. En opinberlega kem ég fyrst fram i Lidó 1969. Svo hefur þetta alltaf hlaðið utan á sig og núna 1977 kemur út með mér plata með eftir- hermum. „Spói”, sem hefur samið töluvert fyrir mig, samdi efnið. Hún var tekin upp alger- lega „live” niðrif útvarpssal að viðstöddum 70 áheyrendum. Það gefur plötunni mjög góða stemmningu, sem ekki er hægt að ná i stúdiói. Ahorfendurnir höfðu ákaflega hvetjandi áhrif á mig. Svavar Gests hefur það mikla trú á þessu að hann lét gera þrjú þúsund eintök - af fyrstu sendingunni. Tvö þúsund og fimm hundruð plötur og fimm hundruð snældur. Siðast þegar ég frétti hafði salan gengið mjög vel. Annars á gamanefni af plötum við ramman reip að draga, þvi okkar ástkæra hljóövarp er svo sérlundað að það vill ekki flytja gamanefni á plötum, ef það er talað.” ■ . Sunnudagur 23. október 1977 VISIR Bi ....skáldið á Gljúfrasteini. ....Gisli Halidórsson, leikari... ... Geir forsætisráðherra vor... Utgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Davíö Guömundsson Ritstjórar: Þorsteinn Páisson ábm. ólafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúí: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guð- mundur G. Pétursson. Umsjón meö Helgarblaöi: Árni Þórarinsson. Blaöamenn: Anders Hansen, Edda Andrésdóttir/ Elías Snæland Jónsson, Guöjón Arngrimsson, Jón Óskar Hafsteinsson, Kjartan L. Palsson, Magnús Ölafsson, Óli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Björn Blöndal, Gylf j Kristjánsson. Ljósmyndir: Einar Gunnar Einarsson, Jens Alexandersson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Auglýsingar: Síðumúla 8. Símar 82260, 86611. Afgreiösla: Stakkholti 2-4 sími 86611 Ritstjórn: Síöumúla 14. Sími 86611 7 linur Askriftargjald kr. 1500 á mánuöi innanlands. Verö i lausasölu kr. 80 eintakiö Prentun: Blaðaprent hf. Áskriftarsími Vísis er 86611 Hringið strax og tryggið ykkur eintak af Vísi til lesturs hvern dag vikunnar fyrir aðeins 1500 krónur ó mánuði \ r

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.