Vísir - 18.05.1978, Blaðsíða 4

Vísir - 18.05.1978, Blaðsíða 4
4 Fimmtudagur 18. mal 1978 vism Jólafré úr Heiðmörk Aðalfundur Skógræktarfélags Reykjavikur var haldinn ný- lega. 1 skýrslum formanns og framkvæmdastjóra kom fram að starfsemi félagsins var mjög blómleg á siðastliðnu ári. Höfuð—vettvangur Skóg- ræktarfélags Reykjavikur, er sem fyrr útivistarsvæði Reyk- vik inga, He iöm örk, en þar v ar á árinu plantað samtals 104340 plöntum, og þar að auki voru borin á 10 tonn af tilbúnum áburði. Þessi vinna var fram- kvæmd af stúlkum úr vinnu- skóla Reykjavikur, en alls voru að jafnaði 270 stúlkur aö störf- um, sem unnu rösklega 41 þús- und vinnustundir yfir sumarið. Viða i Heiðmörkinni er nú að risa vöxtulegur skógur og má meðal annars benda á Vifils- staðahliðina en þar eru nú risnir stórir skógarlundir, þar sem meðalhæð trjánna nálgast þaö að vera 4 metrar. Reykvikingar njóta nú i vax- andi mæli útivistar i Heiðmörk- inni, en einnig njóta æ fleiri heimili þess að prýða stofur sin- ar um jólin meö islenskum jóla- trjám vöxnum úr jarðvegi Heið- merkur, þvi aö nú er svo komið að i skóglendum Heiðmerkur er oröin þörf grisjunar og þau tré sem þar eru felld eru á jóla- markaði félagsins, en hann var haldinn i fyrsta sinn fyrir sl. jól. í önnur svæði var á vegum félagsins gróðursett svo sem hér segir: 1 Elliðaárhólma 2000 plöntur á vegum Rafm.veitu Reykjavikur, i Rauðavatnsstöð 2000 plönturog i Breiðholtshvarf 1000 plöntur og i öskjuhlið voru ávegum Hitaveitu Reykjavikur gróðursettar 10580 plöntur. Heildarvelta félagsins var á siðastliðnu ári rösklega 35 milljónir króna og varð nokkur rekstrarhagnaður, i fyrsta skipti i mörg ár. Nokkrar fram- kvæmdir eru fyrirhugaðar i spildu sem félagið hefur fengið úthlutað ofan Fossvogsvegar, og látið ræsa fram og er áætlað að hefjasthanda um skjólbelta- gerð þar i sumar. Miklar umræður urðu á fundinum um þátt áhugamanna i starfinu og tóku margir til máls, voru menn sammála um aðefla þyrfti þáttáhugamanna i starfinu og var samþykkt tii- laga þar sem skorað var á stjórn félagsins að stofna til nefnda og vinnuhópa úr röðum félagsmanna um ýmsa þætti skógræktarstarfsins. Þrir starfsmenn félagsins, þeir Reynir Sveinsson, Ólafur Sigurjónsson og Björn Vi 1- hjálmsson voru heiðraðir fyrir að hafa starfað samfleytt i 30 ár hjá félaginu, en þeir hófu allir störf hjá þvi árið 1948. UPPÁKOMA í AUSTURSTRÆTI Hljóðfærasláttur og furðulega klætt fólk mætti vegfarendum i Austurstræti um miðjan dag i gær. Uppákoma þessi var á vegum Starfsmannafélags Sinfóniu- hljómsveitarinnar og Félags is- lenskra leikara en þeir voru að auglýsa og selja miða á skemmtun sem þeir standa fyr- ir i Háskólabióiannað kvöld. Þar verða sýndir leikþættir, dans, gamanvisur sungnar, kór- söngur, og Sinfóniuhljómsveitin leikur eitthvað létt og skemmti- legt. Aliur ágóði af skemmtuninni rennur í slysasjóð en hiutverk hans er að aðstoða fóik sem hef- ur orðið fyrir slysi. Meðfylgjandi myndir tóku JA og GVA I Austurstræti I gær. Þetta er’ann SIMCA 1100 SIMCA 1100 er einn duglegasti litli fímm manna fólksbíllinn á landinu, sem eyðir 7,56 1. á 100 km. SIMCA 1100 kemst vegi sem vegleysur, enda framhjóladrifínn bíll, búinn öryggispönnum undir vél, gírkassa og benzíngeymi og er u.þ.b. 21 cm. undir lægsta punkt. Þetta er bíllinn sem þú ert að leita að, ekki satt? Hafið samband við okkur strax í dag. * CHRYSLER simca noo 7ff?)K! ð Vðkull hf. Ármúla 36 - 84366 Sölumenn Chrysier-sal 83330/83454.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.