Vísir - 09.11.1978, Side 8
8
Fimmtudagur 9. nóvember 1978
FfNGURNIR
GRÆDDIR Á
Flestu venjulegu fólki
finnst óþaegilegt að láta
stinga sig í fingurna
með nælu eða einhverju
öðru állka, og vill helst
komasthjá því. En Mike
nokkur Sivillo, tuttugu
og þriggja ára gamall,
frá Cleveland í Ohio,
hafði bara gaman af
þegar hann lenti I þessu
og brosti breitt þegar
hann fann fyrir sárs-
auka. Hans tilfelli er
líka dálítið sérstakt.
Sivillo missti f jóra fing-
ur framan af hendi
sinni, þegar þung pressa
i verksmiðju féll ofan á
f ingurna. En læknum
tókst að græða fingurna
á aftur, og meðfylgjandi
sýnir Dr. A. Scott Earle
eftir aðgerðina, prófa
tilfinninguna í fingrum
Sivillos.
Moore fékk
óvenjulega
afmœlisgiöf
Hún var vægast sagt
óvenjuleg afmælisgjöfin
sem breska kvikmynda-
stjarnan Roger Moore,
fékk frá konunni sinni,
Luísa Moore, á af-
mælisdaginn fyrr i þess-
um mánuði. Pakkinn
var stór og mikill, og
eftir að Moore hafði
leyst bönd og rifið
pappfr, stóð innihaldið
upp: sautján ára gömul
þokkaleg stúlka, á bikini
einu saman. En borði
var bundinn um stúlk-
una, þar sem á stóð:
„Look— But Not Touch,
eða horfðu — en snertu
ekki. Moore brosti breitt
þrátt fyrir það, og sætti
sig við áletrunina.
„Gjöfin" er 17 ára
stúlka, Alessandra
Platania, nemi, og fer
með hlutverk I nýju
James Bond-myndinni
„Moonraker". Utan á
pakkanum stóð: Til
hamingju með afmælið
— Micio. Micio er gælu-
nafnið sem Lusia notar
á hinn fimmtíu og
tveggja ára gamla
eiginmann sinn, og mun
þýða Pussycat eða kisu-
lóra, Alessandra kvaðst
hafa verið svolítið
taugaóstyrk á meðan
viðtakandinn opnaði
pakkann, „en hann var
svo indæll og þægilegur,
að mér leið strax vel".
Umsjón: Edda Andrésdóttir
..Stiginn” hrópaöi Tarsan.
Hinir komu og hjálpuöu
honum aöýta stiganum burt