Morgunblaðið - 04.03.2001, Side 64

Morgunblaðið - 04.03.2001, Side 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 4. MARS 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. Á HEIMSMÆLIKVARÐA S: 569 7700 VIÐSKIPTAHUGBÚNAÐUR STAÐIÐ hefur verið að umfangs- miklu menntunarátaki fyrir nálægt 1.000 lögreglumenn og yfirmenn lög- gæslu í landinu á undanförnum mán- uðum og misserum vegna þátttöku Íslands í Schengen-samstarfinu sem tekur gildi 25. mars næstkomandi. Samkvæmt upplýsingum utanrík- isráðuneytisins hefur farið fram al- menn kynning á Schengen fyrir rúm- lega 800 lögreglumenn, tollverði, starfsmenn Landhelgisgæslu og fleiri. Þeirri kynningu hefur m.a. verið endurvarpað með fjarfundar- búnaði á lögreglustöðvar úti á landi. 140 lögreglumenn og tollverðir sem vinna við landamæragæslu hafa fengið sérstaka þjálfun varðandi reglur Schengen-samstarfsins um framkvæmd landamæraeftirlits, rannsókn á fölsuðum skilríkjum og svonefnda farþegagreiningu. Sáu sérfræðingar frá bandaríska inn- flytjendaeftirlitinu (INS) um þann hluta námskeiðsins sem sneri að föls- uðum skjölum og farþegagreiningu. Tveir íslenskir sérfræðingar fóru til Bandaríkjanna til frekari tækni- þjálfunar í fölsuðum skjölum hjá bandaríska innflytjendaeftirlitinu. Einnig fóru sex lögreglumenn til Þýskalands til að kynna sér eftirlit á landamærum í höfnum og á flugvöll- um. Um 65 lögreglumenn og tollverðir sitja þessa dagana á námskeiði þar sem sérstök áhersla er lögð á fíkni- efnaeftirlit á flugvöllum en nám- skeiðshaldarar eru sérfræðingar frá fíkniefnastofnun bandaríska dóms- málaráðuneytisins. Sett hefur verið upp sameiginlegt upplýsingakerfi Schengen-svæðisins (SIS) í öllum að- ildarlöndum og hafa nokkur hundruð lögreglumenn og tollverðir fengið sérstaka þjálfun vegna notkunar kerfisins. Hefur sú kennsla ýmist farið fram í Lögregluskólanum eða í hringferð kennara um landið. Komið hefur verið á fót svonefndri SIRENE-skrifstofu hjá Ríkislög- reglustjóra, sem er tengiliður lög- reglu-, tolla- og dómsyfirvalda við sambærilegar skrifstofur í öðrum Schengen-löndum, annast skráningu í Schengen-upplýsingakerfið o.fl. Starfsmenn SIRENE-skrifstofunn- ar hér á landi hafa verið þjálfaðir er- lendis á öðrum SIRENE-skrif- stofum. Einnig hefur farið fram sérstök fræðsla fyrir þá hér á landi um réttaraðstoð í sakamálum. Auk þess hafa hafa ýmis tækifæri verið notuð til skemmri þjálfunar og kynningar fyrir starfsmenn sýslu- mannsembættisins á Keflavíkurflug- velli á öðrum Schengen-flugvöllum. Um 1.000 manns fengið fræðslu um Schengen MEÐ hverjum degi hækkar sól á lofti og skugg- arnir styttast. Barátta ljóssins við skuggana er látlaus, jafnt í náttúrunni sem í mannlífinu. Eftir gott veður undanfarið er búist við að hvessi um helgina og snjókoma eða éljagangur verði í flest- um landshlutum. Morgunblaðið/RAX Við Lækinn í Hafnarfirði STARFSMENN Tollstjóraemb- ættisins í Reykjavík fengu upplýs- ingar um það hjá lögreglunni í Reykjavík og ríkislögreglustjóra hvort starfsmenn og umsækjendur að störfum hjá Íslandspósti hefðu verið grunaðir um fíkniefnaneyslu, að því er fram kemur í svari emb- ættisins við fyrirspurn Persónu- verndar um málið. Tollstjóraemb- ættið miðlaði síðan upplýsingunum til Íslandspósts. Haraldur Johannessen ríkislög- reglustjóri sagði að embætti rík- islögreglustjóra hefði ekki áður verið nefnt í tengslum við þetta mál. Hann sagði að sér hefði borist afrit af bréfi tollstjórans í Reykja- vík til Persónuverndar og þær upplýsingar sem þar kæmu fram um þátt embættis ríkislögreglu- stjóra hefðu komið sér og öðrum yfirmönnum embættisins í opna skjöldu. „Vegna alvarleika málsins og þeirra fullyrðinga sem fram koma af hálfu tollstjórans og varðar starfsemi ríkislögreglustjóraemb- ættisins og starfsmenn þess, þá áttum við samtal við ríkissaksókn- ara í fyrradag,“ sagði Haraldur. „Í framhaldi af því samtali tók ég þá ákvörðun að senda honum þau gögn sem við höfum undir hönd- um, þ.e.a.s. afrit af bréfi tollstjór- ans.“ Haraldur sagði að sér hefði fundist rétt að ríkissaksóknari fengi málið til meðferðar á þessu stigi. „Ég tel málið vera það alvarlegt og í ljósi þeirra yfirlýsinga sem gefnar hafa verið á undaförnum vikum um þetta mál þá viljum við leiða sannleikann í ljós. Því finnst mér rétt að saksóknari fái málið til meðferðar á þessu stigi. Ef einhver starfsmaður hjá embætti ríkislögreglustjóra hefur veitt fyrirtæki úti í bæ, eða öðrum óviðkomandi aðilum upplýsingar sem ekki er heimilt að veita, þá tel ég nauðsynlegt að það verði upp- lýst,“ sagði Haraldur. Ríkislögreglustjóri leit- ar til ríkissaksóknara Tollstjóraembættið fékk upplýsingar um starfsmenn Íslandspósts hjá lögreglu GEORGE Robertson lávarður, aðal- framkvæmdastjóri NATO, hefur við- komu á Íslandi á morgun, mánudag. Hann mun eiga fund með Davíð Oddssyni forsætisráðherra og Hall- dóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra. Robertson er á leið til Bandaríkj- anna og kemur hingað með flugvél Flugleiða. Áformað er að ráðherr- arnir hitti hann á Keflavíkurflug- velli, en hann mun aðeins dvelja hér í um klukkustund. Framkvæmda- stjóri NATO til Íslands NOKKUÐ hefur borið á fimmta sjúkdómnum svokallaða að undan- förnu. Sjúkdómurinn kemur helst upp hjá börnum en fólk á öllum aldri getur þó smitast. Hann lýsir sér með vægum útbrotum í kinnum og hita en er ekki langvarandi. Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir ekki til lækningu við sjúkdómnum en hann sé að mestu skaðlaus. Fimmti sjúk- dómurinn gerir vart við sig ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ MINNSTU munaði að alvarlegt slys yrði á Keflavíkurflugvelli í fyrrinótt þegar annar hjólbarði á lítilli einka- þotu sprakk í flugtaki. Þotan var komin á um 200 km hraða þegar hjól- barðinn sprakk af ókunnum orsök- um en flugmaðurinn náði að stöðva þotuna á flugbrautinni. Átta manns, allt útlendingar, voru um borð og sakaði þá ekki. Þotan millilenti í Keflavík á leið sinni til Bandaríkjanna. Flugslysanefnd hef- ur málið til rannsóknar og er hjóla- búnaður þotunnar til viðgerðar í flugskýli Flugleiða. Sprakk á hjólbarða í flugtaki ARI Skúlason, fráfarandi fram- kvæmdastjóri Alþýðusambands Ís- lands, ASÍ, segir að ASÍ sé ekki sama aflið og áður, staða þess hafi veikst í samfélaginu og sterkur for- ystumaður ekki sjáanlegur. Spurður um framtíðarhorfur í verkalýðsmálum segir Ari í samtali við Morgunblaðið að staða ASÍ sé í lausu lofti. „Þegar þjóðin er spurð hvað henni finnist um sambandið hafa 54% enga skoðun á því. Það er mjög slæm staða, “ segir Ari. ASÍ ekki sama aflið og áður  Hluti forustunnar/20–21 ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.