Morgunblaðið - 14.03.2001, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 14.03.2001, Blaðsíða 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. 75 SKIPSTJÓRAR á vertíðarbátum hafa sent áskorun til samninga- nefnda sjómanna og útvegsmanna þar sem þær eru hvattar til þess að vinna af heilindum að því að ná sam- komulagi og ljúka gerð kjarasamn- ings. Uppundir fjórðungur skipstjór- anna er jafnframt útgerðarmenn. Jafnframt hafa bæjarstjórar við sjávarsíðuna sent báðum samninga- nefndum hvatningu til að ná saman um samninga áður en boðað verkfall skellur á kl. 23 annað kvöld. Haraldur Sverrisson, skipstjóri á Suðurey VE, segir að hugur skip- stjóra sé eindreginn og af öllum þeim sem hringt var í hefðu aðeins þrír skorist úr leik. „Óánægja innan LÍÚ er geysilega mikil, sem sést best á því að stór hluti skipstjóranna sem skrifa undir eru útgerðarmenn sjálf- ir. Þeir hafa verið algerlega afskiptir af LÍÚ-forystunni. Margir þeirra vilja gera raunhæfan kjarasamning en fá ekki frið til þess vegna afskipta sterks þrýstihóps innan samtak- anna. Það er að skella á allsherjar sjómannaverkfall og samninga- nefndirnar sitja hvor í sínu herbergi og sýna enga tilburði til samninga. Það er fullur hugur í mönnum að halda áfram einhverjum aðgerðum ef ekki verður stórbreyting á vinnu- brögðum samninganefndanna. Okkur hefur dottið það í hug, þeg- ar samningsviljinn er ekki meiri en þetta, að fulltrúar stórútgerða innan LÍÚ telji sig geta haft vissan hag af löngu verkfalli, sem er meira en margir einyrkjar þola. Þá eru stór- útgerðirnar tilbúnar að bæta við kvótann sinn,“ segir Haraldur. Stefán Guðmundsson, skipstjóri á Aroni ÞH, segir að áskorunin sé brýning til samninganefndanna um að ganga til samninga. „Það hefur áður verið bent á það að þarna eru menn með ákveðið umboð í sínum störfum og ef þeir eru ekki menn til að leysa störf sín af hendi eigi þeir að fara frá. Þetta er almennt skoðun þessa hóps,“ segir Stefán. Friðrik Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ, vildi ekki tjá sig um áskorun skipstjóranna að öðru leyti en því að hann sagði að unnið væri af fullum heilindum af hálfu út- gerðarmanna að því að semja. Fundi deiluaðila var slitið um kvöldmatarleytið í gær og hefur nýr fundur verið boðaður kl. 14 í dag. Sævar Gunnarsson, formaður Sjó- mannasambands Íslands, segir að mikil gjá sé milli aðila og að sínu mati geti ekkert komið í veg fyrir að verk- fall skelli á. Hvatt til lausnar sjómannadeilu  Tíminn verði/12 75 skipstjórar og bæjarstjórar við sjávarsíðuna TILBOÐ í hreinsun olíu úr flaki skipsins El Grillo á botni Seyð- isfjarðarhafnar verða opnuð 3. apríl næstkomandi og gengið að besta tilboðinu um mánaðamótin apríl–maí. Áhugi virðist vera á verkefninu, þar sem þegar er bú- ið að afhenda 15 pakka með út- boðsgögnum og verður verkið boðið út á evrópska efnahags- svæðinu. Stefnt er að því að hreinsunin fari fram síðsumars og í haust og taki um tvær til þrjár vikur. Talið er að tvö til fjögur þúsund tonn af olíu séu enn í flakinu og áætlað er að hreinsunin kosti um 100 millj- ónir króna. Fjármunir til verksins hafa þegar verið tryggðir. Ljóst er að um er að ræða stærsta um- hverfishreinsunarverkefni sem ráðist hefur verið í hér á landi. Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra kynnti sér aðstæður á Seyðisfirði í gær. Með henni á myndinni eru Hilmar Eyjólfsson bátsformaður og Ólafur Sigurðsson, bæjarstjóri Seyðisfjarðar. Olíuhreinsun úr El Grillo ljúki í haust VALGERÐUR Sverrisdóttir segir að auka þurfi fjárveitingar til byggðamála og uppbyggingar at- vinnufyrirtækja á landsbyggðinni og telur koma til greina að nýta hluta af söluhagnaði ríkisins vegna sölu á hlutafé ríkissjóðs í Landsbanka og Búnaðarbanka í þessum efnum. Valgerður lét þessi orð falla við umræðu um sölu á hlutafé ríkisins í bönkunum tveimur á Alþingi í gær. Segist hún ekki hafa mótað þessar hugmyndir en ljóst sé að auka þurfi fjármagn til byggðamála og þar með talin sé Byggðastofnun. Hún bendir á að jafnframt hafi verið nefnt að stórauka þurfi lánaþátt Byggða- stofnunar, en það sé annað mál. Valgerður, sem er yfirmaður byggðamála, segir að engum þurfi að koma þessar áherslur sínar á óvart. Hún vill ekki nefna neinar tölur í þessu sambandi en samkvæmt greinargerð með frumvarpi um sölu á hlut ríkisins í bönkunum var heild- arverðmæti bankanna 43,3 milljarð- ar króna í ársbyrjun og eignarhlutur ríkisins hafi þá numið 30 milljörðum að markaðsvirði. „Það verður ekki anað að neinu en þetta er verkefni sem ríkisstjórnin þarf að vinna úr fljótlega. Miðað við áformin verður hér um mjög miklar fjárhæðir að ræða og við höfum einn- ig áhuga á að lækka skuldir. Það verður þess vegna engum vand- kvæðum bundið að koma þessu fjár- magni fyrir.“ Valgerður sagði að fjölmargt væri unnt að gera til að styðja atvinnulíf á landsbyggðinni og margt mætti læra af reynslu annarra þjóða. „Ég tel hvað mikilvægast af mínum verkefn- um að fara að ná árangri í byggða- málum. Það eru jákvæð teikn á lofti um að flutningur til höfuðborgarinn- ar sé í rénun og fólk flytjist fremur til stærstu þéttbýlisstaða í sínum landshluta. Við höfum fengið mjög jákvæðar fréttir af uppbyggingu á Austurlandi vegna stóriðju og áforma í fiskeldi og þess vegna verð- ur nú hægt að einblína á þá staði sem þurfa aðstoðar við.“ Viðskiptaráðherra segir tímasetn- ingu sölu á hlutafé ríkisins ekki liggja fyrir og fyrr verði ekki til- kynnt um átak í byggðamálum. Hún kveðst hins vegar ætla að beita sér fyrir þessum málum innan ríkis- stjórnarinnar. Viðskipta- og iðnaðarráðherra um sölu ríkisfyrirtækja Vill nýta hluta söluhagn- aðar til byggðamála  Óráð að selja/12 HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness komst í gær að þeirri niðurstöðu að Hafnarfjarðarbæ hefði verið óheim- ilt að falla frá kaupskyldu á íbúð í bænum sem tilheyrði félagslega íbúðakerfinu. Einn dómaranna skil- aði séráliti en hann taldi að vísa hefði átt málinu frá dómi. Málið var höfðað af varasjóði við- bótarlána sem er í vörslu Íbúðalána- sjóðs. Sjóðurinn fór fram á að dóm- urinn viðurkenndi að bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefði verið óheimilt að falla frá kaupskyldunni en sjóðurinn taldi sig hafa orðið af um 4,5 millj- ónum króna í söluhagnað af íbúðinni vegna þessa. Í dómnum segir að samkvæmt lögum frá 1980 um Húsnæðisstofnun ríkisins hafi sveitarstjórnir kaup- skyldu á félagslegum eignaríbúðum fyrstu 15 árin frá afhendingu íbúðar. Meirihluti dómaranna komst að þeirri niðurstöðu að á sveitarfélög- um hvíli fortakslaus kaupskylda á félagslegum eignaríbúðum sem byggðar eru samkvæmt lögunum frá 1980. Hvorki sveitarfélög né eigend- ur slíkra íbúða hafi nokkurt val í þeim efnum. Í þessu tilviki hafi íbúð- in verið háð kaupskyldu til ársins 2005. Hafnarfjarðarbæ hafi því verið óheimilt að falla frá kaupskyldu á íbúðinni. Algjör afturkreistingur Héraðsdómararnir Jónas Jó- hannsson og Finnbogi H. Alexand- ersson mynduðu meirihluta dómsins en Guðmundur L. Jóhannesson skil- aði séráliti. Þar segist hann vera sammála meirihlutaálitinu um að samkvæmt venjulegri lagatúlkun sé 84. gr. laga nr. 97/1993 enn í gildi sbr. bráðabirgðaákvæði í í lögum nr. 44/1998 og geti átt við umrædda íbúð. „Ég tel þetta ákvæði þó algjör- an afturkreisting í lagalegum skiln- ingi og ganga þvert á meginmarkmið laga nr. 44/1998, sem er að leggja niður félagslega íbúðakerfið og kaupskyldu sveitarfélaga, og get ekki séð að nein haldbær rök séu til að halda kaupskylduákvæðinu inni og hlekkja takmarkaðan hóp íbúðar- eigenda við félagslega kerfið, sem hlýtur að leiða til mikillar mismun- unar,“ segir í sérálitinu. Með þessu sé ekki einungis verið að skerða sölu- hagnað þess takmarkaða hóps íbúð- areigenda sem verður eða kýs að selja íbúð sína áður en kaupskyldu- tímabilinu lýkur heldur sé verið að svipta þá öllum söluhagnaðinum. Eignaskerðingin sé það mikil að nán- ast sé um eignaupptöku að ræða. Þá taldi Guðmundur að eigandi íbúðarinnar, dánarbúið sem seldi hana, hefði átt að vera aðili að mál- inu. Þar sem því hefði ekki verið stefnt hefði átt að vísa málinu frá dómi. Dómur í máli varasjóðs viðbótarlána gegn Hafnarfjarðarbæ Bænum óheimilt að falla frá kaupskyldu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.