Morgunblaðið - 31.05.2001, Page 69

Morgunblaðið - 31.05.2001, Page 69
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2001 69 ÞUNGAROKKIÐ er eitt vinsælasta og um leið lífseigasta afbrigði sem rokkið hefur getið af sér. Einn helsti boðberum hins sígilda þungarokks á áttunda áratugnum var Alice Coop- er og sveit hans en á meðal klass- ískra laga eru „I’m Eighteen“, „School’s Out“, „No More Mr. Nice Guy“ og „Under My Wheels“. Michael Bruce var gítarleikari Alice um langt skeið, fylgdi honum í upphafi í nær óþekktum bílskúrs- sveitum eins og The Spiders og Nazz og síðan í Alice Cooper, en í upphafi var þetta nafn á hljómsveit en ekki manni. Söngvarinn, Vincent Furnier, tók sér síðan nafnið sjálfur upp úr ’73. Michael hyggst leika sígilda smelli úr smiðju sinni á Gauknum í kvöld, en hann samdi mikið af þekktustu lögum sveitarinnar á sín- um tíma. Með honum hér verða þeir bræður Ingólfur og Sigurður Geir- dal, sem munu leika á gítar og bassa, en þeir eru þekktir fyrir störf sín í ofurþungarokkssveitinni Stripshow. Egill Rafnsson úr Butt- ercup mun sjá um trommuleik. The Spiders Það er ekki á hverjum degi sem maður fær að spjalla við alvöru „metal“-gaur eins og Bruce. „Mig langaði nú bara til að kynna fyrir Íslendingum hvernig tónlist Alice Coopers hljómaði í byrjun fer- ilsins,“ svarar Bruce, aðspurður um ástæðuna fyrir heimsókninni. „Ég kynntist Ingó og Silla, topp- náungum, og þeir svona unnu að komu minni hingað.“ Bruce gerir sér svo lítið fyrir og þylur allan lagalista kvöldsins yfir mér. Hann virðist nokkuð spenntur fyrir komu sinni hingað. „Við byrjuðum sem The Spiders, en þá áttum við heima í Arizona,“ segir Bruce er hann er inntur eftir rokksögunni. „Svo fórum við til Kaliforníu og urðum The Nazz. Seinna fórum við svo til Detroit sem Alice Cooper.“ Hann segir að eftir að bandið hætti endanlega, um 1975, hafi hann kvænst og eignast börn. „Við vorum gift í tíu ár en hjóna- bandið entist því miður ekki. Þannig að ég sneri mér aftur að tónlistinni.“ Eftir hann liggja m.a. ein- yrkjaskífurnar In My Own Way (hljóð- rituð 1975, gef- in út 1997) og Rock Rolls On (1983). „Síðan kom út safn- plata á netinu sem heitir I’ll Never Forget Old What’s His Name! (2000). Titillinn er létt sjálfs- háð (hlær). Þar er einnig hægt að finna nokkur ný lög. Síðan vonast ég til að gefa út nýju plötuna mína, Dark Side Of Love, í október. Þá kem ég aftur til Íslands!“ Frank Zappa En hvernig var að vera í rokk- hljómsveit í San Francisco árið 1969? „Ó, vá!,“ segir Bruce. „Við vorum sveltandi unglingar, nýbúnir að skrifa undir samning hjá Frank Zappa [sem rak þá útgáfuna Straight Records]. Samstarfið við Zappa gekk þó ekki til lengdar. Það var bara þannig að annað hvort varðst þú að samlagast hans furðu- veröld eða hverfa. Okkur leist ekk- ert á þetta, gerðum samning við Warner Brothers og gáfum út Love It To Death (1971). Það er mikið til upptökustjóra þeirrar plötu, Bob Ezrin, að þakka að Alice Cooper varð það sem hún varð. Þarna urðu þáttaskil.“ Nú vendir Bruce kvæði sínu í kross og segir. „Ég er með spurningu handa þér. Hvar eigum við eiginlega að spila?“ Svar: Á Gauki á Stöng. Tónleik- arnir byrja kl. 22. Gítarhetja í heimsókn Hér á landi er staddur Michael Bruce, fyrr- verandi gítarleikari Alice Cooper, og ætl- ar að spila nokkra vel valda slagara á Gauki á Stöng í kvöld. Arnar Eggert Thoroddsen spjallaði við manninn. Michael Bruce með tónleika á Gauknum Mike Bruce (annar frá vinstri) með Alice Cooper ca. ’69.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.