Morgunblaðið - 09.08.2001, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 09.08.2001, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2001 9 ÞORSTEINN Hilmarsson, upplýs- ingafulltrúi Landsvirkjunar, segir vinnu við undirbúning Núpsvirkjunar í ákveðnum farvegi og ekki hægt að spá fyrir um niðurstöður. Síðastliðinn föstudag birtist í Morgunblaðinu grein eftir Jóhönnu Jóhannsdóttur, fyrrverandi bónda í Haga í Þjórsár- dal, þar sem hún líkir Landsvirkjun við þriðju pláguna, á eftir jarðskjálft- um og eldgosum, og fer fram á að hætt verði við virkjunaráform í Gnúp- verjahreppi. „Ætlun okkar er að fara eins var- lega og við getum og við höfum nú þegar rætt við landeigendur og þá sem þarna búa, jafnt í Haga sem öðr- um jörðum,“ sagði Þorsteinn. „Auð- vitað erum við að reyna að finna hinn gullna meðalveg þar sem við getum annars vegar tekið sem mest tillit til umhverfisins og viðhorfa landeigenda og svo hins vegar framleitt orku þarna,“ og kvað Þorsteinn Lands- virkjun hafa fullan skilning á áhyggj- um landeigenda. Lögð hafa verið fram drög að til- lögu að matsáætlun vegna Núpsvirkj- unar og þau verið kynnt. „Síðan verð- ur lögð fram tillaga og þá hefst hinn formlegi ferill. Það fer aftur af stað kynning og enn er hægt að gera at- hugasemdir, þannig að við erum í raun að leita eftir athugasemdum áð- ur en formlegt ferli fer í gang,“ sagði Þorsteinn. Á heimasíðu Landsvirkj- unar kemur fram að búist er við nið- urstöðu Skipulagsstofnunar um matsáætlunina í ágúst. „Þá liggur fyr- ir hvað þarf að rannsaka, hvaða val- kosti þarf að skoða o.s.frv. Í fram- haldinu vinnum við okkar rannsóknir og leitum víða fanga, en úr því verður matsskýrsla sem svo er aftur send Skipulagsstofnun. Þá geta lögform- legir umsagnaraðilar og almenningur gert athugasemdir við skýrsluna, við svörum þeim og skipulagsstjóri kveð- ur upp sinn úrskurð um mat á um- hverfisáhrifum. Á þessu stigi er í raun verið að ákveða hvað skuli rannsaka og hvaða valkostir séu í stöðunni, þar með taldir umhverfisþættir í víðasta skilningi, samfélagsmál, efnahagur.“ Fulltrúi Landsvirkjunar um áhyggjur í Þjórsárdal              Höfum skilning á áhyggj- um landeigenda SKIPULAGSSTOFNUN mun kveða upp úrskurð sinn varðandi mat á umhverfisáhrifum álvers í Reyðarfirði þann 31. ágúst nk. Hólmfríður Sigurðardóttir, sviðs- stjóri umhverfissviðs, segir að upp- haflega hafi staðið til að kveða upp úrskurðinn í gær, 3. ágúst. Fram- kvæmdaaðilar hefðu hins vegar tekið sér rúman tíma til að svara þeim at- hugasemdum sem bárust. Því muni úrskurður Skipulagsstofnunar tefj- ast sem því nemur. Úrskurður um álver í lok ágúst Verðhrun allt að 70% afsláttur Stærðir 36-52 Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00. Útsalan hefst á morgun • • •mkm v i ð Ó ð i n s t o r g 1 0 1 R e y k j a v í k s í m i 5 5 2 5 1 7 7 á horni Laugavegs og Klapparstígs, sími 552 2515 Sígild verslu n Tilboðsdagar í ágúst 10-50% afsláttur Húsgögn, lampar, púðar glös og skart Komdu og líttu við hjá okkur á Laugavegi 64. www.djasn.is Skráðu þig í Djásnarklúbbinn á www.djasn.is Hefur þú heyrt um blómstrandi baðbomburnar eða styrkjandi, hressandi, örvandi og kynörvandi sápurnar okkar? Laugavegi 56, sími 552 2201 7.900 kr. HELGARTILBOÐ 19.900 kr. 9.900.- 3.900.- Tilboð Tilb oð Opið til kl. 16 á laugardögum Ný sending FYRIR KLASSAKONUR Laugaveg 63, sími 551 4422 GERRY WEBER

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.