Vísir - 28.06.1979, Blaðsíða 16

Vísir - 28.06.1979, Blaðsíða 16
vtsm Fimmtudagur 28. júnl 1979. Ums.ión: Sigurveig Jónsdúttir Kalli brlóstkassi (kröppum dansi Haf narbió: Meö dauðann á hælunum/Love and Bullets Leikstjóri: Stuart Rosenberg Handrit: WendUl Mayes Tónlist: Lalo Schriffrin AðaUilutverk: Charles Bronson, JUl Ireland og Rod Steiger. kvikmyndii Myndin hefst á þvi að lögreglu- stjóri nokkur (Bronson) i Phönix heimsækir likhúsið til þess að lita á látinn kvenmann sem hefur orð- ið eiturlyfjum að bfáð. Siðan kynnumst við þvi að sá sem stendur á bakvið dópsöluna er málhaltur mafluforingi (Steiger). Mafiuforinginn hefur einhverjar finni tilfinningar, þvi ekki vill hann láta drepa heimska ljósku (Ireland) sem félagar hans telja að geti skaðað hann ef hún væri tekin tU yfirheyrslu af lögregl- unni. Félagar hans geta þó talið hann á það að kála henni, þvi viö- skipti séu viöskipti, og tilfinning- ar komi málinu ekki við. Þessir náungar tala alltaf um mannsiif eins og hverja aðra niðursuðudós út úr matvörubúð. Lögreglustjórinn hefur fengið það verkefrii að ná I ljóskuna til Evrópu þar sem mafiuforinginn geymir hana. Honum tekst- að ræna henni frá geymslumönnum hennar þvi afræður mafiufor- inginn að kalla út varaliðið. Það samanstendur af nokkrum harö- soðnum og illúðlegum spaghettf-ætum sem láta sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Og nú taka atburðir að gerast. Bronson leikur hér hlutverk sem hann virðist hafa skotiö rót- um I á siðustu árum. Hann þarf litið að leggja á sig I leik, þvi Imynd hins harða einstaklings Hjónin Jill Ireland og Charles Bronson, en þau leika aðalhlutverkin myndinni Með dauðann á hælunum. sem mætir á staöinn, og fram- kvæmir hlutina á sinn háttt, án aöstoðar, er svo samofin persónu hans að nóg er að hann sé til stað- ar I myndum yfirleitt til að áhorf- andinn viti á hverju hann á von, sem er mikið af blóði, byssukúl- um og ofbeldi. Ljósi púnktur myndarinnar er leikur Ireland, sem heimsk ljóska. Hún virðist fædd i' hlut- verkið, ef svo má að orði komast Hún kemur vel til skila þvi öryggisleysi sem slik persóna býr við I heimi hörðu naglanna. Efni myndarinnar er gamalt og útþvælt, og heldur leikstjörinn sig kyrfilega við uppskriftina að myndum sem þessari. Að visu gripur hann til þeirra ráða að hafa mafiuforingjannmálhaltann og lætur myndina að mestú ger- ast I Evrópu, en þessi atriði megna engan veginn að lyfta hennu úr farvegi meðalmennsk- unnar. Útkoman er sem sagt með- al-þriller, nokkuð vel leikinn, en hvorki betri eða verrien þeir ger- ast almennt. Vetur I Dölunum Siðir 09 venjur í sænsKu Dðiunum Harald Theodorsson, kennari frá Svfþjóö flytur erindi með skuggamyndum i Norræna hús- inu á sunnudaginn, 1. júli, oghefst það kl. 16. Erindiö fjallar um heimabæ Haralds, Gagnef i sænsku Dölun- um. Þessi litli bær er i gönvlu landbúnaðarhéraði, þar sem gömlum venjum og siðum er haldið viö aö vissu marki, t.d. þjóðdönsum og þjóðbúningum. Harald Theodorsson hefur búiö og starfað I þessum bæ i 27 ár og segir hann frá héraðinu og siöun- um þar. Frásögn hans er fyrst og fremst skýring á hinum fjöl- mörgu litskyggnum, sem sýna hvernig li'til sveitafélög af þessu tagi eru I dag. Harald Theodorsson lýsir I máli og myndum lifinu I sænskum smábæ, þar sem gamli tlminn á enn sterk Itök. Yfir mlklu að gleöjast Ljðsin I bænum - Dlsco Frisco steinar hf. Ollum sem gáfu sér tima úl þess aö hlýða á fyrstu plötu Ljósanna I bænum hlýtur að hafa orðið það fullljóst, aö þar var á ferðinni dálitið óvenjuleg islenskhljómsveit. Og ekki bara óvenjuleg heldur lika óvenju efnileg hljómsveit. Það er tæp- ast oflof þótt þvi sé slegið föstu að Stefán S. Stefánsson höfund- ur allra laga og texta á þeirri plötu hafi þá þegar skipað sér á bekk með bestu lagahöfundum okkar. Með annarri plötu sinni, Disco Frisco, hafa Ljósin I bænum uppfyllt allar þær vonir sem viö hana voru bundnar — og vel það. Hljómsveitinerekki lengur bara efnileg, heldur virkilega góð. Og Stefán S. Stefánsson hefur aukið við skrautfjaðra- safnið i hatti slnum svo um munar. Raunar erplatan öll svo jafngóö aö ókunnugir gætuhald- iö aö þetta væri safn bestu laga - hljómsveitarinnar, eða „great- est hits” plata með öðrum orð- um. Sem fyrr semur Stefán öll lög og texta. Um hann verðuraldrei annað sagt en að hann sé ákaf- lega ljóðrænn lagasmiöur meö næmteyrafyrir „rennandi” lag- linum. Textar hans falla vel að lögunum ogundirstrika þá glaö- værð og lifshamingju sem ein- kennir verk Ljósanna, en sem skáldskapur eru þeir harla Util- fjörlegir. Þaö ermjög mikiöað gerast á þessari plötu og eftir býsn að hlusta. Gunnar Þóröarson verk- stjóri á plötunni hefur augljós- lega unnið gott verk, hann gætir þess að ofhlaða hvergi en heldur þó hlustandanum stööugt við efnið, eins og góðum „produc- er” sæmir. Hljóðfæraleikurinn ber þess vitni að strákarnir kunni sitt fag og þótt gitar- leik Friðriks Karlssonar beri óneitanlega hæst er á- stæöulaust fyrir hina að skæla. Ellen svikur engan með sinni töfrandi rödd en hún verður að temja sér nisku á röddina og syngja ekki á of mörgum plöt- um á svipuðum tlma, þvi öllu má ofgera — lika þvi sem gott þykir. Stefán syngur ávallt dá- litið kostulega en alveg lýta- laust og lánsmaðurinn, Jóhann Helgason, er svo prýðilegur söngvari, aðhann bætir allt sem hann kemur nærri. Ljósin I bænum feta þann gullna meöalveg, að flytja til- tölulega auðgripna áheyrilega og vandaða tónlist sem hvorki veröur flokkuð „þung” né „létt”. Þetta er popptónlist meö djössuðu ivafi og haldi einhver aötitíllagið „Disco Frisco” gefi rétta heildarmynd af plötunni er hinum sama bent á, að þvi er viðs fjarri. Þvi er raunar haldið fram að lagið sé nokkurs konar góölátlegt grin að diskómenn- ingunni, þótt það sé auðvitað þversögn aö reyna aö selja plöt- una út á lagið fyrst þessu er svona varið. Takist Ljósunum aö halda hópinn og koma i veg fyrir mannaskipti má heita vist, að ég og mi'nir likar hafi ástæðu til þessaðgleðjasti'hvert sinn'sem Ljósin I bænum láta i sér heyra. —Gsal „Vatnsliturinn er ijðörænn og eftirlátur” Jakob Halsteln opnar sýnlngu I Casa Nova „Ég hef haft dálæti á vatnslit- um allt frá þvl að ég var strákur, enda er vatnsliturinn ljóðrænn og mjög eftirlátur”, sagöi Jakob Hafstein i samtali viö Visi, en hann opnar á laugardaginn sýningu á vatnslitamyndum i Casa Nova, sýningarsal Mennta- skólans i Reykjavik. A sýningunni eru 60 vatnslita- myndir, aðallega landslags- myndir og aörar náttúrumyndir, Jakob hélt slna fyrstu einkasýn- ingu fyrir 12 árum. Sýningin stendur fram til 8. júlí. —SJ Jakob með eina vatnslitamynda sinna.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.