Vísir - 11.01.1980, Page 11
Föstudagurinn 11. janúar 1980.
11
Fundur í viöræðunefndinni um Jan Mayen?
VILYRÐI FYRIR FUNDI
99
99
- segir ölafur Ragnar Grímsson, sem á sæti í nefndinni
„Ég tel að utanrikisráðherra hafi i gærkveldi
gefið mér vilyrði fyrir þvi að Jan Mayen-nefndin
komi saman eftir helgi”, sagði Ólafur Ragnar
Grimsson alþingismaður i morgun, en hann hefur
itrekað óskað eftir þvi siðan i október, að við-
ræðunefnd allra flokka um Jan Mayenmálið verði
kölluð saman á ný.
Ólafur Ragnar kvaðst telja
það brýnt að nefndin komi
saman, sérstaklega vegna
þeirra frétta, sem borist hafa
frá Noregi um hugsanlega út-
færslu landhelginnar við Græn-
land.
Hann sagði, að þegar til lengri
tima væri litið kæmi að þvi að
landhelgin við Grænland yrði
færð út.Spurningin væri aðeins,
hvort það yrði fyrir eða eftir at-
kvæðagreiðslu Grænlendinga
um áframhaldandi aðild að
Efnahagsbandalaginu. Það
væri þvi óvist i hverra þágu út-
færslan yrði, Grænlendinga
einna eða allra Efnahagsbanda-
lagslandanna.
Hins vegar sagði Ólafur
Ragnar, að hugsanlega væru
Norðmenn nú að koma af staö
sögusögnum til að knýja fram
skjóta samninga við Islendinga.
Það hefðu þeir gert áður.
„Við eigum ekki að taka neitt
tillit til þessa við mótun okkar
afstöðu”, sagði hann. „Útfærsla
við Grænland gæti alveg eins
styrkt okkar hagsmuni. En
þetta allt gerir það brýnt, að við
tökum skýra afstööu. Og höfuð-
atriðið er að skapa þjóöarsam-
stöðu i málinu”.
Úr leiðangri VIsis til Jan Mayen slðastliðið sumar: Alþingismennirnir Ingvar Glslason og ólafur
Ragnar Grlmsson ræðast við um minjar þær, sem þar getur að llta frá dögum hollenskra
hvalveiðimanna á eyjunni. Vlsismynd: GVA
Út í óviss-
una frestað
- fyrsti Dállurinn sýndur 23. lan.
Bresku sjónvarpsþættirnir Út i
óvissuna sem teknir voru hér á
landi i fyrrasumar, verða ekki á
dagskrá sjónvarpsins i næstu
viku. Ráðgert var að sýningar
hæfust á miðvikudaginn, en kvik-
myndin kom ekki til landsins i
tæka tið.
Nú er vonast til að sýningar geti
hafist þann 23. janúar.
Nokkrir islenskir leikarar fara
með hlutverk i þáttunum. Ragn-
heiður Steindórsdóttir leikur þar
eitt aðalhlutverkið.
— KP.
Gæfialeysl á Palró
Eftir áramótin hefur gengið illa
með afla, en fyrir áramótin hefur
afli verið óvenju góður viðast
hvar, á Vestfjörðum. Þá var
meðal afli um helmingi meiri en
árið á undan. Menn vænta þó að
þetta batni til þess sem áður var.
Hefur gæftaleysi og þungur
straumur verið ein aðal orsök
þessa. Þola veiðafærin illa þann
þunga straum sem verið hefur á
miðunum. Engin loðna hefur enn
borist inn á Patreksfjörð, en þess
er ekki langt að biða ef bátarnir
afla vel.
Stefán Skarphéðinsson
Patreksfiröi|.HS
Það er ekki auðvelt verk aö fóðra þennan risasel, enda þarf
gæslumaður hans að klifra upp I stiga til þess að ná upp I hann.
Risaselurinn heitir Daikichi, eða „mfkil heppni”. Hann er fræg-
asta dýrið I dýragarðinum I Fujisawa I Japan og koma menn viða
aö til að sjá hann. Daikichi er rúmlega fimm og hálfur metri og
tvö hundruð kiló. ____ _________
ÞÆR
ÍWONA
ÞUSUNDUMt
Góð reynsla þeirra fjölmörgu sem auglýsa reglulega í
þjónustuauglýsingum Vísis er til vitnis um ágæti þeirra
og áhrifamátt.
LilÍmi
Ef þú býður þjónustu af einhverju tagi er smáauglýsing
í Vísi sterkasti vettvangurinn til viðskipta, þar eru þær
lesnar af tugþúsundum og þjóna þúsundum.
®86611
smáauglýsingar