Vísir - 11.01.1980, Blaðsíða 22
vísm
Föstudagurinn 11. janúar 1980
Umsión:
Guömundur
Pétursson
í hvíldarstöðu
Má vera, að þessar verðandi ballettmeyjar eigi
eitthvað ólært i að stilla sér upp við æfingaslána
til þess að ganga i augum ljósmyndaranum, en
þær hafa þá lika tímann fyrir sér til þess. Það er
vist nógu ströng þjálfunin, sem biður þeirra i
listinni, þótt þær leyfi sér að siga niður af tánum
andartak, meðan gesturinn truflar kennsluna. —
Hún l'ærist mjög i vöxt ásóknin i ballettskólana i
vesturheimi um þessar mundir.
önmr uppeldlslræði
i tran fylgja þeir annarri stefnu i barnauppeldisfræði, en þeir hér
á vesturlöndum, sem lita hornauga striðsleiktæki og barnagull, er
likja eftir drápstólunum. — Þessi mynd var tekin á dögunum fyrir
utan bandariska sendiráðið i Teheran, þar sem stúdentar hafa 50
gisla á valdi sinu. Ef vel er að gáð, má ef til vill sjá blómið, sem iitla
telpan heldur á, en byltingar,,hetjan” barngóða býöur henni skipti.
Þau eru byrjuð að hamra járnið, framboðsefni flokkannai Banda-
rikjunum, vegna fyrirhugaðrar útnefningar á frambjóöanda til for-
setakosninganna i nóvember næsta. Hefur ekki farið framhjá nein-
um, að meðal demókrata hefur Ted Kennedy skorað Carter forseta
á hólm, en minna borið á framboðsefnum repúblikana. — Hér eru
þeir tveir, sem heistur er gaumur gefinn i þvi sambandi. Ronald
Reagan og kona hans Nancy sjást hér á neöri myndinni umkringd
stuðningsmönnum i Flórida, en á efri myndinni Howard Baker sem
fer hina sigildu leið ameriska stjórnmálamannsins að hjörtum kjós-
enda.
K
Á alkvæðaveiðum
Greiðl kemur I grelða stað
Þessi sautján vetra gamli fill heitir Mauree og hefur að visu þá aöalatvinnu aö koma fram i sirkus
Roberts Brothers, sem I desember siðasta var ásamt öðrum sirkusum I London á heimsmeistarmóti
fjöileikahúsa. — En þessi bensin- og bilaþvottastöð viö Kempton Park var svo vinsamleg að lána
sirkusnum bila, meöan hann dvaldi I London, og I þakklætis- og augiýsingaskyni tók Mauree til hendi á
þvottastööinni til aö gjaida eitthvað fyrir: vinargreiðann. — Enginn heyrðisl kvarta undan þvi, aö bill
hans væri ekki nóg þveginn.