Morgunblaðið - 02.12.2001, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 02.12.2001, Blaðsíða 56
FÓLK Í FRÉTTUM 56 SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Nú kemstu í sólina fyrir jólin á hreint ótrúlegu verði. Beint flug til Kanarí þann 13. desember þar sem þú nýtur 25 stiga hita og veðurblíðu við frábærar aðstæður á þessum vinsælasta vetraráfangastað Evrópu. Þú bókar ferðina núna og tryggir þér síðustu sætin og 4 dögum fyrir brottför, hringjum við í þig og látum þig vita hvar þú gistir, og á meðan á dvölinni stendur nýtur þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar allan tímann. Verð kr. 29.905 Verð fyrir manninn, m.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, flug, gisting og skattar. 13. desember, vikuferð. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 39.950 Verð fyrir mann, m.v. 2 í íbúð, gisting, skattar. 13. desember, vika. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Aðeins 28 sæti Stökktu til Kanarí 13. desember í viku frá kr. 29.905 ÞAÐ er vel hægt að ímyndasér að dagarnir séu þétt-bókaðir hjá henni MóeiðiJúníusdóttur þessa dag- ana. Hún hóf lögfræðinám í haust, er með lítið barn á armi auk þess sem hljómsveitin sem hún er í, Lace, gaf út plötu á dögunum. Platan, sem ber nafnið Zeitgeist, inniheldur einhvers konar fram- þróaða rokktónlist sem erfitt er að negla niður, en margir þó greina sterkar tilvísanir í popptónlist ní- unda áratugarins, þ.e. nýrómantík- ina. „Við (hljómsveitin) vinnum þetta saman og þetta eru frekar ólíkir ein- staklingar,“ segir Móeiður. „Þessi plata á sér nokkuð langa sögu en við byrjuðum á henni þegar ég var að fylgja eftir síðustu plötu minni.“ Móeiður upplýsir þó að sjálfar upptökurnar hafi tekið mjög stuttan tíma. „Hún var unnin alveg rosalega hratt. Við vildum gera hana þannig, fara aðra leið en ég fór á sólóplötunni minni (Universal, ’98) en hún var al- veg rosalega mikið unnin. Fyrir utan það að mig langaði bara til að gera eitthvað allt annað.“ Móeiður brosir og segist stundum „skipta um skoðun“. „Plötufyrirtækið mitt (Tommy Boy) var líka að rugla í mér. Mig langaði til að nota gítar en ég hef aldrei unnið almennilega með gítar- leikara. Einnig langaði mig til að vinna með bandi og hafa þetta hrárra. Því skildi leiðir okkar – þeir voru meira í einhverjum „dívu“-pæl- ingum. Ég fílaði það engan veginn.“ Bræður Móeiðar, þeir Kristinn og Guðlaugur, eru með henni í sveitinni, spila á bassa og trommur. „Það virkar mjög vel,“ segir Mó- eiður. „Við systkinin, sem erum sex, erum óvenju samhent og miklir vin- ir. Þannig að þetta er mikill styrk- ur.“ Bræður hennar voru í hljómsveit- inni Vínyl hér áður fyrr ásamt Þór- halli Bergmann hljómborðsleikara. Sú sveit og Móa runnu síðan saman í Moa & the Vinylistics, þar sem þeir bræður höfðu mikið verið að spila undir hjá systur sinni. Með tilkomu Lace hvarf gítarleikarinn Arnar Guðjónsson svo af vettvangi og Sindri Már Finnbogason gekk til liðs við hópinn. Útgáfufyrirtækið Smekkleysa gefur nýju plötuna út. „Ég á það til að ganga svolítið langt í mínum gjörðum. Ég vildi bara byrja upp á nýtt með alveg hreint borð. Ég byrjaði reyndar hjá Smekk- leysu þegar ég gaf út djassplötuna mína (Lögin við vinnuna ’93). Mér finnst kostur að vinna með svona litlu fyrirtæki. Þar er líka fólk sem er að hugsa um tónlist, ekki bara pen- inga.“ Andi tímans Móeiður er nú komin í lögfræði- nám við Háskóla Íslands. „Öll sölumennskan í kringum þennan tónlistarbransa dregur af- skaplega mikið úr gleðinni sem er auðvitað hvatinn að þessu öllu. Sér- staklega ef maður er að gera popp – það verður að vera gaman. Það er mjög leiðinlegt hvað það er mikið af fólki að vinna við þetta sem skilur ekkert út á hvað þetta gengur. Skil- ur ekki hvernig tónlist verður til. Skilur ekki þetta ferli. Þessu kynnt- ist maður af eigin raun.“ Móa segist þó vera mjög sátt við þessi ævintýri sín. „Þetta fer í reynslubankann. Það var mikið sem maður vissi ekki fyrir en hefði verið gaman að vita, svona eftir á að hyggja. En þannig er lífið nú ekki.“ Kveikjan að lögfræðináminu felst m.a. í þessari reynslu. „Mig hefur að vísu alltaf langað að fara í lögfræði. Þetta er svona gamall draumur hjá mér. Þetta er auðvitað mikil andstæða við tónlistina. Þarna er eitthvað áþreifanlegt, öfugt við ringulreiðina sem oft fylgir tónlist- inni. Ég veit samt ekki alveg hvort eða hvenær ég klára námið. Ég er auðvitað ennþá í tónlistinni og er alls ekki á leiðinni að hætta.“ Hún segir Tommy Boy kannski ekki hafa verið alveg rétta fyrirtæk- ið fyrir tónlist sína, en útgáfan ein- beitir sér aðallega að rapptónlist. „Maður er alltaf að leita og ég þoli ekki þegar fólk vill njörva mann nið- ur í einhvern kassa. Ég held að þetta sé eðli allra þeirra sem fást við skap- andi list. Ég valdi þessa leið, þ.e. að vinna með Tommy Boy, því að hún var ekki beint augljós. Ég tók því áhættuna á því að vinna með fyrir- tæki sem hefur aldrei unnið með listamönnum eins og mér. Að mínu mati komu margir frábærir hlutir út úr þessu; t.d. gerði ég plötu og myndbönd sem ég er ákaflega stolt af.“ Hún segist ekki sjá sjálfa sig í hringiðu dægurtónlistar þegar hún verður fimmtug. „Þá held ég að maður sé löngu bú- inn að segja það sem maður hefur að segja. Allir verða að þekkja sinn vitj- unartíma og popptónlist er mikið til leikvöllur fyrir yngra fólk. Og þó að mann langi til að halda áfram þá bara: „Því miður, þú ert búinn að segja það sem þú hefur að segja.““ Þrátt fyrir reynslu sína af tónlist- arbransanum segist hún ekkert endilega ætla að beita sér fyrir slík- um málum sem lögfræðingur. „Ég hef mestan áhuga á sifjarétti og forræðismálum. Ég held að það sé mikið af konum sem eiga erfitt og eru ekki meðvitaðar um rétt sinn. Ég held líka að það þurfi kvenlögfræð- ing í slík störf,“ segir þessi orkuríki lista- og fræðimaður að lokum. Morgunblaðið/Sverrir Móeiður Júníusdóttir, söngkona og lögfræðinemi. Eitthvað allt annað Lace þróaðist úr sveitinni Moa & the Vynilistics þótt aðdragandinn sé reyndar lengri. Arnar Eggert Thor- oddsen ræddi við söngkonuna Móeiði Júníusdóttur, sem nýverið hóf að lesa lögfræði meðfram spilamennskunni. Lace er skipuð þeim Kristni Júníussyni, Móeiði, Guðlaugi Júníussyni, Sindra Má Finnbogasyni og Þórhalli Bergmann. arnart@mbl.is Hljómsveitin Lace gefur út plötuna Zeitgeist
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.