Morgunblaðið - 08.12.2001, Síða 18

Morgunblaðið - 08.12.2001, Síða 18
STARFSEMI Báta- tryggingar Breiðafjarð- ar lauk hinn 1. október sl., en þá yfirtók Sjóvá- Almennar trygginga- stofn Bátatryggingar- innar. Ákvörðun um að hætta starfsemi var tekin eftir að félagið var orðið eitt eftir af starf- andi bátatrygginga- félögum á landinu, en fyrr á þessu ári hafði Vélbátatryggingafélagið Grótta selt Sjóvá-Al- mennum tryggingastofn sinn. Þar með lauk 63 ára farsælu starfi Báta- tryggingarinnar. Þá hefur Sjóvá-Al- mennar sameinað um- boð sitt í Stykkishólmi, bátatryggingarstarf- seminni frá og með 1. desember og verður skrifstofan í sama hús- næði og Bátatryggingin var til húsa. Gissur Tryggvason, fram- kvæmdastjóri Bátatryggingar Breiðafjarðar, hefur tekið við um- boðinu. Bátatrygging Breiðafjarðar var stofnuð 22. júlí 1938. Aðalhvata- maður að stofnun félagsins var Sig- urður Ágústsson. Tilgangur félags- ins var að tryggja útgerðarmenn fyrir tjónum á bátum þeirra, en bátar voru ótryggðir fyrir þann tíma. Félagssvæðið náði yfir Breiðafjörð og hefur starfsemi Bátatryggingarinnar verið í Stykk- ishólmi. Á síðasta starfsári Bátatrygging- ar Breiðafjarðar voru 65 skip og bátar í tryggingu hjá félaginu. Fyrsti framkvæmdastjóri félags- ins var Kristmann Jóhannsson, og auk hans hafa gegnt starfinu þeir Ásgeir Ágústsson, Víkingur Jó- hannsson og Gissur Tryggvason. Síðasta báta- tryggingafélagið hættir starfsemi Stykkishólmur Gissur Tryggvason hefur verið framkvæmda- stjóri Bátatryggingar Breiðafjarðar í 26 ár. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason LANDIÐ 18 LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Í UPPHAFI jólaföstu er kveikt á jólatré á Bakkafirði og svo var einnig nú í blíðskaparveðri. Oddviti Skeggjastaðahrepps kveikti á jóla- trénu og hjálpuðu allir krakkarnir til við að telja niður og varð mikill fögn- uður þegar ljósin kviknuðu á trénu. Allir bæjarbúar sungu jólalag og pólskir starfsmenn hér á staðnum sungu pólskt jólalag og að því loknu fengu allir sér hressingu, kakó og ný bakaðar vöflur. Sungu ís- lenskt og pólskt jólalag Bakkafjörður Morgunblaðið/Áki Guðmundsson Pólverjar syngja jólalag. Á ÞRIÐJUDAG var kveikt á jólatré hér í Búðardal. Dagskráin hófst með því að séra Óskar Ingi Inga- son sóknarprestur las jólasögu fyr- ir viðstadda og svo var kveikt á trénu. Í ár var það Heiðrún Sandra Grettisdóttir sem tendraði ljósin á trénu. Eftir að ljósin voru kveikt var sungið og dansað í kringum tréð við harmonikkutóna. Tóku all- ir vel undir í söng og dansi. Jólasveinar komu í heimsókn og dönsuðu með okkur í kringum jóla- tréð og gáfu svo öllum krökkunum gotterí. Eftir söng og dans fóru all- ir inn í Dalabúð þar sem var boðið upp á kaffi, kakó og piparkökur. Á meðan fólk gæddi sér á veiting- unum spilaði lúðrasveitin jólalög og síðan söng kórinn Vorboðinn fyrir gesti. Kveikt á jólatrénu Morgunblaðið/Guðrún Kristinsdóttir Strákarnir hlusta áhugasamir á lúðrasveitina spila jólalögin. Búðardalur ÞAGAÐ var í Húsi handanna síðast- liðið mánudagskvöld. Þetta er ár- leg hefð í handverkshúsinu og hef- ur umgjörð kvöldsins jafnan vakið forvitni og eftirtekt. Að þessu sinni var húsið prýtt kertalogi stafna á milli og allskyns nytjahlutir og skreytilist gladdi augu og fingurgóma. Þær Lára Vil- bergsdóttir listhönnuður, Signý Ormarsdóttir fatahönnuður og Sjöfn Eggertsdóttir listmálari, sem standa að Húsi handanna, voru við iðju sína í rósömu andrúmslofti. Gestum var forboðið að tala nokkuð og rituðu staðfestingu þess í sérlega bók við innganginn. Aðventan og þjóðlegt yfirbragð einkenndu kvöldið og mátti þannig sjá föngulegar snótir á upphlut. Var þar á meðal Ingveldur G. Ólafs- dóttir sem söng gamlar þjóðvísur inn í kyrrðina. Enn var þagað í Húsi handanna Morgunblaðið/Steinunn Sjöfn Eggertsdóttir listmálari. Egilsstaðir HINN fyrsta desember sl. var formlega tekinn í notkun annar áfangi Árskóla á Sauðárkróki með veglegri opnunarhátíð. Hátíðin hófst með göngu nem- enda og starfsfólks, þar sem gengið var að Sauðárkrókskirkju, en þar var mynduð friðarkeðja sem náði frá kirkjunni, upp Kirkjustíginn og að ljósakrossi á Nöfum, en síðan var ljósker látið ganga milli manna að krossinum, og á honum tendruð ljós sem loga munu allt fram á þrettánda dag jóla. Aftur var svo gengið að skól- anum, en í íþróttahúsi fór fram stutt athöfn þar sem skólastjóri Óskar G. Björnsson gerði grein fyrir hinu nýja húsnæði, aukn- ingu á almennu kennslurými um sjö stofur auk sérkennslustofa og nýrrar stjórnunaraðstöðu. Þá fluttu formaður skóla- nefndar og formaður foreldra- félags stutt ávörp og óskuðu skól- anum velfarnaðar og lýstu ánægju með þennan góða áfanga. Þessu næst fluttu nemendur skól- ans nokkur jólalög en síðan var nýtt merki skólans kynnt, en merkið er hannað af Áslaugu Árnadóttur arkitekt en hún er gamall nemandi skólans. Að athöfn lokinni gafst gestum kostur á að fylgjast með nem- endum í starfi og leik og um leið að skoða hið nýja og glæsilega húsnæði skólans og þiggja veit- ingar í boði foreldrafélagsins. Morgunblaðið/Björn Björnsson Nýbygging Árskóla formlega tekin í notkun Sauðárkrókur JÓLIN eru að nálgast, flestir eru farnir að huga að þessu venjulega jólastússi og því var ákveðið að nem- endur, foreldrar og kennarar í Grunnskóla Mýrdalshrepps kæmu saman einn laugardag til að föndra og gleðjast saman. Heilu fjölskyld- urnar mættu og var mikið unnið af allskonar föndri. Sumir skáru laufa- brauð, aðrir útbjuggu jólakort eða jólapappír, skreyttu kerti eða gerðu piparkökuhús eins og Þorgils Hauk- ur Gíslason sem vandaði sig mikið við að skreyta jólapiparkökuhúsið sitt þegar fréttaritari Morgunblaðs- ins tók þessa mynd. Jólaföndur í Vík Fagridalur Þorgils Haukur Gíslason, nem- andi í 8. bekk, vandar sig við að skreyta jólapiparkökuhúsið. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Á SEYÐISFIRÐI er orðið jólalegt og jólaljósin glitra í hverjum glugga. „Jólahlaðborð, dansleikur og skemmtun verður í félagsheimilinu Herðubreið 8. desember nk. Hótel Seyðisfjörður stendur fyrir þessu hlaðborði. Meðal skemmtiatriða verður dans, söngdívur frá Seyðis- firði, brekkusöngur, glens og gam- anmál. Veislustjóri er Þorvaldur Jó- hannsson. Kveikt verður á jólatré við sjúkrahúsið með viðhöfn föstudag- inn 7. des kl. 17. Þorláksmessuskata verður í hádeginu á Þorláksmessu á Hótel Seyðisfirði. Sýning Birgis Andréssonar og Magnúsar Reynis Jónssonar; ,,Fossar í firði“, verður opin laugardaginn 8. desember og sunnudaginn 9. desember kl. 14–18 og frá og með 15. desember alla daga fram til 23. desember kl. 14– 18. Birgir teiknar eftir ljósmyndum Magnúsar og speglar ljósmyndir hans. Sýningin stendur til 13. jan- úar 2002, hægt er að skoða sýn- inguna utan afgreiðslutíma ef óskað er. Í Skaftfelli verður jólastemmning helgina 15.–16. desember, seyðfirsk- ir listamenn stíga á svið og níu ung- menni úr menntaskólanum á Egils- stöðum munu leika og syngja fyrir gesti laugardagskvöldið 15. des.,“ segir íkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá ferðamálafull- trúa Seyðisfjarðar. Mikið um að vera fyrir jólin Seyðisfjörður ELDUR kom upp í eldhúsi Essó- skálans á Blönduósi um klukkan 22 í fyrrakvöld. Það kviknaði í steik- ingarpotti og kom upp töluverður eldur. Starfsfólki og vöruflutn- Snarræði kom í veg fyrir stórtjón Morgunblaðið/Jón Sig. Slökkviliðsmenn að störfum. Blönduós ingabílstjóra, sem þarna var gest- komandi, tókst aðráða niðurlögum eldsins áður en slökkviliðið á Blönduósi kom á vettvang. Lúðvík Vilhelmsson, kaupfélags- stjóri á Blönduósi, sagði að með þessari snöru samvinnu gesta og starfsfólks hefði tekist að koma í veg fyrir stórtjón. Að slökkvistarfi loknu var unnið að því að hreinsa og undirbúa veitingastarfsemina.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.