Morgunblaðið - 18.12.2001, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 18.12.2001, Blaðsíða 68
68 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ                                                !   "  BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÞEGAR jólin nálgast er tímabært að huga að jólatrjánum. Ætla má að um helmingur íslenskra fjölskyldna kaupi lifandi jólatré fyrir þessi jól. Flestir velja sjálfsagt tré eftir útlit- inu og eftir því hversu vel þau halda barrinu. Færri hugsa líklega um þau áhrif sem tréð hefur haft á umhverf- ið, frá því að trénu var plantað og þangað til börnin byrja að hengja á það skrautið. Árlega kaupa Íslendingar um 40.000 lifandi jólatré. Þar af eru um 75% innflutt, en um 25% íslensk tré. Innfluttu trén eru nánast öll norð- mannsþinur, en í íslensku fram- leiðslunni ber mest á rauðgreni (rúmlega helmingur) og þarnæst stafafuru (tæplega þriðjungur). En hvaða máli skiptir hvort tréð er inn- fluttur norðmannsþinur eða íslenskt greni eða fura? Norðmannsþinurinn sem fluttur er til Íslands er ræktaður í Dan- mörku. Við ræktunina er notað gríð- armikið af varnarefnum, þ.e.a.s. ill- gresislyfjum og skordýraeitri. Það skal ósagt látið hvort eitthvað af þessum efnum fylgir trjánum alla leið heim í stofuna okkar, en hitt er víst að þau hafa umtalsverð áhrif þar sem trén eru ræktuð. Þannig hafa dönsku náttúruverndarsamtök- in, Danmarks Naturfredningsforen- ing, ítrekað varað við þeirri hættu sem steðjar að grunnvatni, yfir- borðsvatni, dýralífi og plöntum vegna þessarar miklu eiturefnanotk- unar. Annað atriði er vert að hafa í huga varðandi innflutning á jólatrjám: Norðmannsþinur gæti hugsanlega flutt með sér rótarfúasvepp, sem Ís- lendingar hafa fram að þessu verið blessunarlega lausir við. Hættan er þó væntanlega lítil ef trén eru rétt meðhöndluð að notkun lokinni, þ.e.a.s. annaðhvort brennd eða tætt til jarðgerðar við nógu hátt hitastig. Sé trjákurlið hins vegar nýtt til ann- arra þarfa, svo sem í stígagerð, er smithættan fyrir hendi. Talið er að sitkalús hafi fyrst borist til Íslands með innfluttum jólatrjám, þannig að Íslendingar hafa þegar bitra reynslu á þessu sviði. Við ræktun íslenskra jólatrjáa er notað lítið sem ekkert af varnarefn- um. Rauðgrenið þarf að vísu tilbúinn áburð, en við ræktun stafafuru eru alls engin aukaefni notuð, hvorki tilbúinn áburður né varnarefni af nokkru tagi. Það gefur því augaleið að íslensk jólatré hafa algjöra yf- irburði yfir innflutt tré þegar um- hverfisáhrif ræktunarinnar eru bor- in saman. Þar við bætast svo flutningarnir, því að eðlilega er elds- neytisnotkun og útblástur þeim mun meiri eftir því sem flutningsleiðin er lengri. Og ef norðmannsþinurinn verður fyrir valinu vegna barrheldn- innar má minna á að stafafuran heldur barrinu enn betur. Þegar valið stendur á milli inn- fluttra jólatrjáa og íslenskra má loks benda á að íslenskum fjölskyldum gefst í auknum mæli kostur á að fara saman út í skóg og velja sitt eigið tré. Umhverfismál snúast um hags- muni komandi kynslóða og hvers kyns verkefni, sem fjölskyldan getur sameinast um, eru vissulega liður í því að efla þessa hagsmuni. Eftir þessar vangaveltur um um- hverfisáhrif lifandi jólatrjáa dettur eflaust einhverjum í hug hvort ekki sé betra fyrir umhverfið að við not- um plasttré sem endast árum sam- an. En sú er ekki raunin. Rannsókn- ir benda þvert á móti til að lifandi jólatré séu 5 sinnum umhverfis- vænni en jólatré úr plasti. Ástæðan er m.a. sú hversu mikla orku þarf til að framleiða plasttrén og til að flytja þau á markað. Flest plasttrén eru nefnilega framleidd í Asíu. STEFÁN GÍSLASON, umhverfisstjórnunarfræðingur (MSc) og verkefnisstjóri Staðardagskrár 21 á Íslandi. Jólatré og umhverfi Frá Stefáni Gíslasyni: Íslensk jólatré hafa algjöra yfirburði yfir innflutt tré þegar umhverfis- áhrif ræktunarinnar eru borin saman, segir í greininni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.