Morgunblaðið - 30.12.2001, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 30.12.2001, Blaðsíða 52
FÓLK Í FRÉTTUM 52 SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ EINS OG alltaf fer fyrri hluti ársins íað jafna sig á jólageðveikinni þegarhamagangurinn í útgáfu og allrahanda tilstandi keyrir langt fram úr hófi. Erlendir listamenn sáu því um að skemmta örþreyttum tónlistaráhugamönnum í byrjun árs en erlendis reyna menn (skynsamlega!) að fleyta útgáfu og athafnasemi svona nokkuð jafnt yfir árið. Fyrrum leiðtogi Pavement, Stephen Malkmus, kom því galvaskur í febrúar og skemmti landanum en í mars heillaði skoska síðrokksveitin Mogwai anorakka landsins upp úr pumaskónum með tvennum hljómleikum. Í endaðan mars flugu svo Björk Guðmunds- dóttir, Sjón og fleiri út til Los Angeles. Tilefnið var Óskarsverðlaunin en lag Bjarkar úr Myrkradansaranum, „I’ve Seen It All“, var til- nefnt til verðlauna. Fór þó svo að gamla brýnið Bob Dylan nappaði verðlaununum. Um svipað leyti birtist lofsamleg umfjöllun í breska þunga- rokksblaðinu Kerrang! um Jesus Christ Bobby!, plötu harðkjarnasveitarinnar Mínus. Afdrif af þessu urðu skemmtileg, t.a.m. var plat- an gefin út af harðkjarnarisanum Victory í Bandaríkjunum um sumarið og sveitin hefur verið ausin lofi af harðkjarnamiðlum sýknt og heilagt út árið. Árið einkenndist annars af þónokkurri at- hafnasemi íslenskra dægurlistamanna á er- lendri grundu; en allt þetta fór þó fram á hægan og bítandi hátt – engin læti eða uppvöðslusemi eins og gjarnan hefur einkennt „meik“-tilraunir Íslendinga. Af nógu er að taka hvað þessi popprænu strandhögg varðar. Þannig fór Emilíana Torr- ini í túr um Bandaríkin með Dido, Travis og seinna Tricky; Sigur Rós lék með Radiohead, á þrjú lög í nýjustu mynd Tom Cruise og var jafn- framt valin ein af tíu bestu hljómsveitum heims í Time Magazine! múm gaf út plötu á hinu virta, þýska raftónlistarmerki Morr Music og Quar- ashi fóru í tónleikaferðalag til Bandaríkjanna. Svo gaf Björk út fjórðu breiðskífu sína á árinu og lagðist í lágstemmt ferðalag til að fylgja henni eftir sem lauk með tvennum glæsilegum tónleikum hérlendis í lok desember. Músíktilraunir voru haldnar í lok mars þar sem – engum að óvörum – harðkjarnasveitin Andlát sigraði en þessi sprellfjöruga undir- menning rokksins var áberandi í ár sem endra- nær. Í apríl leit fyrsta útgáfa hinnar nýstofnuðu tónlistarútgáfu Eddu – miðlunar og útgáfu dagsins ljós. Þetta er verkið Klif eftir djass- arann Jóel Pálsson en Edda lét svo að sér kveða svo um munaði í jólaútgáfunni, með mikilli og fjölbreyttri útgáfu og sama gilti um íslensku útgáfuna Thule. Sama mánuð kom dúettinn Pan Sonic frá Finnlandi í heimsókn en hann telst vera frægasta tilraunakennda naum- hyggjutæknósveit heimsins í dag(!). Sumarið er tíminn kvað Bubbi og þá fór fjör að færast í poppleikinn. Fjörkálfarnir fjörgömlu í Buena Vista-genginu heilluðu landsmenn svo um munaði í byrjun maí í troðfullri Laugardals- höll og munaði þar ekki síst um hinn eldhressa æringja Ibrahim Ferrer. Mikið japl, jaml og fuður var svo í kringum Evróvisjón og „Birt- una“ þar en landinn hafði ekki erindi sem erfiði – hafnaði í neðsta sæti ásamt frændum vorum Norsurum. En ef eitthvað eitt er minnisstætt frá þessu ári Ódysseifs þá eru það tvennir tónleikar þýsku þungarokkssveitarinnar Rammstein í Höllinni. Í kringum þá gekk rokkþyrstur Frónbúinn hreinlega af göflunum, uppselt var á hvoratveggju tónleikana og algert Rammstein- æði heltók landsmenn – amma gamla vissi meira segja upp og ofan af Rammstein! Um haustið fór Airwaves-hátíðin svo fram í þriðja sinn og Vetrardagskrá Hljómalindar bauð upp á erlenda jaðarrisa eins og Will Old- ham og Low. Um svipað leyti reyndu menn sig við samslátt nýgildrar og sígildrar tónlistar með tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar, Quar- ashi og Botnleðju. Árangurinn var vafasamur verður að segjast. Stuttu síðar fór svo allt á fullt í hinu stórmerkilega og séríslenska jólaplötu- flóði. Gullbarkinn Páll Rósinkranz seldi þar ógnarinnar býsn af nýrri plötu sinni á meðan nýliðarnir í XXX Rottweilerhundum slógu nokkurn veginn í gegn með frumburði sínum. Sumir foreldrar voru smeykir við hina dónalegu og hneykslunargjörnu hunda en þá stóðu þeim til boða diskar með t.d. Sesar A og Afkvæmum guðanna sem herja sömuleiðis á hinn nýtil- komna alíslenska rappmarkað. Diskur hinna síðastnefndu er fyrirmyndardæmi um eigin út- gáfu, þar sem diskur er brenndur og umslag heimagert en í ár varð minniháttar sprengja í þess háttar útgáfum, grasrótinni til nokkurs framdráttar. Eitt af stóru innflutningsfyrirtækjunum á tónlist stendur höllum fæti um þessar mundir sem gerði að verkum að stórir titlar eins og t.d. ný plata drengjasveitarinnar Westlife sást hreinlega ekki í búðum. Sú staðreynd að við bú- um á lítilli eyju var að þessu leytinu grátlega augljós. Oft vill hið mikla líf sem er í danstónlist- armenningu landans gleymast en í ár komu m.a. Andrew Weatherall, Dave Clarke og Doc Scott til skífuþeytinga og úr rappheimum kom Gang Starr-limurinn Guru og sænska sveitin Loop- troop. Í enda árs var blásið til Íslenskra tónlist- arverðlauna sem verða afhent á næsta ári. Eitt ár dettur því út sem er að sjálfsögðu forkast- anlegt. En maður verður bara að vera bjart- sýnn...það þýðir ekkert annað! Afdrifaríkt og orkumikið Morgunblaðið/Árni Sæberg Rammstein í Höllinni 15. júní. Íslendingar tóku þessari þýsku þungarokkssveit opnum örmum. Annáll íslenskrar dægurtónlistar árið 2001 arnart@mbl.is Arnar Eggert Thoroddsen rekur helstu atburði liðins tónlistarárs. Plötur ársins að mati gagnrýnenda Morgunblaðsins Íslenskar plötur Arnar Eggert Thoroddsen 1. Exos – My home is Sonic 2. XXX Rottweilerhundar – XXX Rottweiler- hundar 3. Sigurður Guðjónsson/Arnar Guð- jónsson – Leðurstræti 4. Hallur Ingólfsson – Fimm fermetrar (tónlist úr dansverkinu) 5. Sigtryggur Berg Sigmarsson – SHIP 6. Hr. Ingi R – Hundadiskó 7. Jóhann Jóhannsson – Englabörn (tónlist úr leikritinu) 8. Sigríður Níelsdóttir – Hin daglegu störf 9. Exos – Strength 10. Afkvæmi guðanna – Dæmisögur Heimir Snorrason 1. Skurken/Heckle&Jive – Skurken/ Heckle&Jive 2. Exos – My home is Sonic 3. XXX Rottweilerhundar – XXX Rottweiler- hundar 4. Stilluppsteypa – Stories Part Five 5. Trabant – Moment of truth 6. Múm – Remixed 7. Sigtryggur Berg Sigmarsson – SHIP 8. Funerals – Pathetic me 9. Ham – Skert flog 10. Bubbi Morthens/Stríð og friður – Nýbúinn Orri Harðarson 1. Fabula – Kossafar á ilinni 2. Björk – Vespertine 3. Dýrin í Hálsaskógi – Láttekkeinsoðú- sértekkiðanna 4. Megas – Far ... þinn veg 5. Lárus Sigurðsson – Jarðhörpusálmar 6. Jóel Pálsson – Klif 7. Egill Ólafsson – Nýr Engill 8. Megas – Haugbrot 9. Mannakorn – 25 ára afmælistónleikar 10. Bubbi Morthens/Stríð og friður – Nýbúinn Steinunn Haraldsdóttir 1. Páll Óskar og Monika Abendroth – Ef ég sofna ekki í nótt 2. Stilluppsteypa – Stories Part Five 3. Ozy – Gray area (51) 4. Ham – Skert flog 5. Trabant – Moment of Truth 6. The Funerals – Pathetic me 7. Björk – Vespertine 8. Skurken/Heckle&Jive – Skurken/ Heckle&Jive 9. Barry Adamson/Pan Sonic/Hljómeyki – The Hymn of the 7th Illusion 10. Quarashi – Kristnihald undir Jökli Erlendar plötur Arnar Eggert Thoroddsen 1. Daft Punk - Discovery 2. Super Furry Animals - Rings around the World 3. Tool - Lateralus 4. Bonie prince Billy - Ease down the road 5. The Shins - Oh, Inverted World 6. Kelis - Wanderland 7. Converge - Jane Doe 8. Sensational - Get on My Page 9. Elton John - Songs from the West coast 10. Smog - Rain on Lens Skarphéðinn Guðmundsson 1. Divine Comedy - Regeneration 2. The Strokes - Is This It? 3. Muse - Origin of Symmetry 4. Ed Harcourt - Here Be Monsters 5. Pulp - We Live Life 6. Gillian Welch - Time (The Revelator) 7. Nick Cave and the Bad Seeds - No More Shall We Part 8. Spiritualized - Let it come down 9. Sparklehorse - It’s A Wonderful Life 10. System of a down - Toxicity  Sjá einnig lista Árna Matthíassonar B28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.