Morgunblaðið - 20.03.2002, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 20.03.2002, Blaðsíða 38
MINNINGAR 38 MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Elisabeth G.Berndsen fæddist á Skagaströnd 11. júní 1918. Hún lést á St. Jósepsspítala 5. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Regine Henri- ette Hansen og Fritz Hendrik Berndsen. Systkini hennar eru Anna Ragnheiður, sem var búsett í Búð- ardal, látin; Björg Henriette, sem var búsett í Búðardal, lát- in; Steinunn Carla, býr á Sauðárkróki; Jörgen býr í Kópavogi; og Hans Ragnar, býr í Reykjavík. Elisabeth giftist 25. sept 1948 Jóni Þórarinssyni úr Sel- vogi, f. 7. júlí 1916, d. 15. desember 1978. Þau eignuðust fjögur börn: 1) Úlfar, f. 19. mars 1949, d. 26. nóv. 1959. 2) Ester, f. 5. apríl 1951, gift Jóni Ólafi Vilhjálms- syni, börn þeirra eru Eyrún, Sóley og Ey- þór. 3) Hörður, f. 6. júlí 1953, kona hans er Sóldís Elfa Lofts- dóttir, börn þeirra eru Lilja, Jón Þór og Brynjar. 4) Sjöfn, f. 24. okt. 1955, maður hennar er Jón Ingvi Ástráðsson, dætur þeirra eru eru Elísa- bet, Hildur og Krist- ín. Jón átti dóttur frá fyrra hjónabandi sem ólst upp hjá þeim Elisabethu, Ragnhildur f. 28. sept. 1940, gift Jóni Halldórssyni, börn þeirra eru Sigrún, Hrafnhild- ur og Úlfar. Útför Elisabethar fór fram frá Hafnarfjarðarkirkju 15. mars. Okkur langar til að minnast ömmu okkar Lísu, eins og hún var kölluð. Amma var góð og gestrisin kona. Alltaf þegar við og aðrir komum í heimsókn var hún með kökur og ann- að meðlæti. Ávallt vorum við vel- komin á hið notalega heimili hennar og þeir voru ófáir sunnudagarnir sem fjölskyldan sameinaðist í eftir- miðdagskaffi á Bergi. Amma tók aldrei bílpróf en sá alltaf eftir því, því henni fannst gaman að ferðast t.d. til Skagastrandar og fara í messu í Strandakirkju. Draumur hennar var að ferðast til Danmerkur, þaðan sem hún átti ættir sínar að rekja en þang- að komst hún aldrei. Amma var dugleg kona og bjó ein í 23 ár. Hún vann öll heimilisstörfin sjálf og vildi helst enga hjálp. En auðvitað kom að því að aldurinn fór að segja til sín, og fyrir rúmum 2 ár- um lærbrotnaði hún og þurfti þá að fá aðstoð við hin ýmsu verk. Í nóv- ember fór heilsu hennar verulega að hraka. Hún lagðist inn á spítala í des- emberlok og átti þaðan ekki aftur- kvæmt. Við eigum margar minning- ar um þig sem fylgja okkur alla tíð. Nú vitum við að þér líður vel hjá afa og Úlfari og ert ef til vill farin að ferðast víða um heim. Elsku amma Lísa, við viljum senda þér okkar hinstu kveðju. Tíminn líður furðu fljótt, fölna hár á vanga, söngvar þagna, nálgast nótt, nóttin hljóða langa. Ljósið dvín og lokast brá, lætur vel í eyrum þá ómur æsku söngva. (Fr. G.) Eyrún, Sóley og Eyþór. ELISABETH GODT- FRIED BERNDSEN     9 5 .)6<  % % &"D  #$% #       + -  $   2 3   6'.% ' 3 6%'$1 01&&' 3:$.% ' 01&&' %-(-% 3  2.% ' 01&&'(      66 6 )<  %0'3 &$1'      $   ;%8&- %01&&' - %6 0 01&&' 600%6 0 01&&' 6'%6 0 3 3$ #0( 4   #  .))( -) <  5 #1/E  #$% #       $   2 3         ' -%%6'% 01&&' )  % 01&&' 3' & 3 -'0 % 01&&'  '. % 6'# 3 *$ % 01&&'( F:$' 3 1 % % 01&&' %*$ 3( Elsku afi minn, nú hefur þú fengið hvíld- ina. Með tárvot augu sit ég og horfi á mynd af ykkur ömmu. Margs er að minnast. Fyrir nokkrum dög- um var spilað lag í útvarpinu sem ég hef ekki heyrt lengi. Mér hefur allt- af fundist það vera lagið okkar. Ég var þá lítil lipurtá sem fékk að standa á tánum hans afa og þannig dönsuðum við saman á eldhúsgólf- inu hjá ömmu þar til lagið var á enda, við skemmtum okkur konung- lega. Oft kúrðum við saman á kvöld- in upp í rúmi, þegar ég gisti hjá ykkur ömmu, fengum okkur nammi- LEÓ SIGURÐSSON ✝ Leó FossbergSigurðsson fæddist á Akureyri 7. júlí 1911. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Seli laugardaginn 9. mars síðastliðinn og fór útför hans fram frá Akureyrarkirkju 15. mars. gott og jafnvel litlar danskar pylsur. Mikið fannst mér gaman að fá að smella axlabönd- unum á ístruna þína, sem þá var, svo hlóg- um við eða þegar þú vinkaðir með stóru tánum til mín. Þá stökk ég til og úðaði fótaspreyi á þær. Oft fórum við í bíltúr niður á bryggju þegar Súlan var að koma að landi, niður í Slipp eða Fisk- hús eða út í Krossanes. Undir hljómuðu falleg- ir tónar Claydermans, sem amma hafði svo mikið dálæti á. Afi vann alltaf heima á skrifstofunni sinni. Oft sat ég á móti honum og dundaði mér eitthvað, fékk að prófa ritvélina og jafnvel gömlu reiknivélina. Marga skemmtilega skrifstofuhluti átti afi í skúffunni sinni og stundum fékk ég að ydda blýin hans í skrúf- blýantinn með pínulitlum yddara, þá var ég aðstoðarkonan hans afa. Það var alltaf gott að koma til ykkar ömmu í Oddeyrargötuna. Þið stóðuð á stigapallinum og tókuð allt- af fagnandi á móti mér. Á öskudag- inn mætti ég með mínu liði, stund- um tíu krakkar, og sungum við af mikilli innlifun fyrir ykkur og feng- um að launum mikið hrós og glaðn- ing í poka. Stutt var að hlaupa úr gagganum til ykkar ef einhver hlé voru, þá ilmaði eldhúsið hennar ömmu oft af steiktum fiski, heitum vöpplum, eins og amma kallaði þær, eða öðru góðgæti. Oft var komið við á leiðinni úr tónlistarskólanum, þá voru haldnir stuttir tónleikar inni í stofu fyrir ömmu og þú hlustaðir á úr fjarlægð á skrifstofunni þinni. Þegar amma veiktist voruð þið í einni af ykkar mörgu ferðum er- lendis. Þið komuð skyndilega heim. Eftir stutta sjúkralegu lést amma, það var sárt! Þú lést ekki bugast og lífið hélt áfram. Eftir að amma dó hugsaði mamma um þig og gerði það af einstakri natni og einlægni með stuðningi pabba. Þú komst og borðaðir hjá okkur á hverjum degi og var þá siginn eða saltur fiskur með mikilli hamsatólg ofarlega á lista við litla hrifningu okkar systra. Áfram leið tíminn og í heiminn var borið lítið stúlkubarn, þú kallaði hana alltaf prinsessuna þína. Áður en hún var skírð fór ég til þín og bar það undir þig hvort hún mætti bera nafnið þitt Fossberg. Glaður og stoltur svaraði þú því játandi. Sam- band þitt og Önnu Birnu var mjög sérstakt. Komur okkar voru áfram tíðar til þín í Oddeyrargötuna og brölluðum við margt saman. Við fór- um saman á vorhátíð í leikskólan- um, lítil trítla sýndi ömmu, afa og langafa það sem hún hafði verið að gera. Við fórum öll í dagsferðir út úr bænum, fengum okkur ís í Vín eða tertusneið. Á áttræðisafmælinu þínu fórum við í Mývatnssveitina og átt- um þar yndislegan dag í blíðskap- arveðri, keyrðum í Kröflu og víðar. Við meira að segja skruppum í dagsferð til Glasgow öll fjölskyldan. Þú veiktist árið 1995 og fluttist skömmu síðar á hjúkrunarheimilið Sel þar sem heilsa þín krafðist sér- stakrar ummönnunar. Líkami þinn var alltaf hraustur en smám saman fór sjúkdómur þinn harðari höndum um þig og tjáskiptin urðu erfiðari. En þú áttir fallegt bros sem þú gladdir okkur með. Þú ljómaðir all- ur þegar mamma kom til þín og sagðir svo oft við hana „ertu nú komin“. Eftir að við fluttumst suður fækkaði ferðum okkar til þín en hugur okkar var alltaf hjá þér og fengum við fréttir af þér nær dag- lega frá mömmu og svo nýttum við hvert tækifæri sem gafst til að koma norður og heimsækja þig. Fjölskyldan hefur enn stækkað og eigum við Óskar nú Ingibjörgu Láru og lítinn Sigurð Leó Fossberg. Sem barn hafði mig alltaf dreymt um að eiga lítinn Leó og er ég mjög þakklát fyrir að sá draumur minn rættist áður en þú kvaddir þetta líf. Það var mömmu og pabba mikil ákvörðun að rífa sig upp og flytja frá Akureyri en það gerðu þau ekki fyrir löngu síðan. Það reyndist mömmu sérstaklega erfitt að fara frá þér en hún vissi að um þig væri vel hugsað á Seli og þér liði þar eins vel og hægt væri. Hún var í mjög nánu sambandi við starfsfólk þar og vissi alltaf hvernig þér leið. Eftir að hafa látið hugann reika yfir kertaljósi við myndina af ykkur, elsku amma og afi, er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa átt ykk- ur að og allt sem þið voruð mér. Elsku mamma mín, þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir afa, betur hefði enginn gert. Við skulum trúa því að afa líði vel hjá ömmu og biðjum góðan Guð að gæta þeirra. Sofðu rótt, elsku afi minn. Þín Fríða. Elsku langafi minn er dáinn. Hann kvaddi þennan heim 9. mars sl. Mínar sterkustu minningar um langafa eru þegar hann kom heim til ömmu og afa til að borða saltfisk og hlusta á Þjóðarsálina. Þú áttir alltaf mikið af bláu opali, kóki í gleri og mackintoshi. Þú varst líka mjög góður vinur fuglanna og gafst þeim mikið af brauði og korni. Þú settist oft með mér inn á skrifstofu og sagðir mér sögur, þú kallaðir mig alltaf „litlu prinsessuna þína.“ Þegar ég fór í hálskirtlatökuna gafstu mér bangsa sem ég skírði Trausta. Hann skírði ég með þinni hjálp. Þegar þú veiktist fórstu á Sel, sjúkdómurinn sem þú varst með lýsti sér þannig að þú gleymdir miklu, en þú gleymdir samt aldrei höfninni, Súl- unni, nöfnum og allra síst fjölskyld- unni. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. (Ásmundur Eiríksson.) Guð geymi þig elsku langafi minn. Þín Anna Birna Fossberg. Látinn er Leó Fossberg Sigurðs- son fyrrverandi Útgerðarmaður á Akureyri. Leó er langafi barnanna minna, faðir hennar Önnu tengda- mömmu. Ég skrifa Útgerðarmaður með stórum staf til að leggja áherslu á að þar fór maður sem stundaði útgerð með reisn. Gerði út skip allt árið um kring og skapaði störf og verðmæti bæði á sjó og í landi með vinnslu aflans þar. Í þá daga var veitt það sem hafið gaf og menn hikuðu ekki við að senda skip á fjarlæg mið ef aflinn brást á heimamiðum eða þá að sigla með aflann erlendis ef svo bar undir. Mín fyrstu kynni af Súlunni voru fyrir um þrjátíu árum síðan þegar aflatölur loðnubátanna voru birtar í blöðunum og keppni var um hvert yrði aflahæsta skipið. Ég þekkti vel til aflaskipsins Halkions frá Vest- mannaeyjum og fylgdist því vel með þessari hörðu og spennandi keppni. Yfirleitt var það norðlenska Súlan sem var aflahæst og skaut öllum öðrum bátum aftur fyrir sig. En hvers vegna skildi ég síðar. Á Súl- unni voru toppskipstjórar og áhöfn, nýlegt öflugt skip í toppviðhaldi og toppútgerð. Ég hefði svo mikið vilj- að kynnast fyrr þeim útgerðar- manni sem gerði þetta skip út en þegar ég kynntist honum var hann orðinn gamall maður á hjúkrunar- heimilinu Seli á Akureyri. Ég held ég gleymi ekki þeirri stund er Fríða fór með mig og kynnti mig fyrir honum afa sínum. Þrátt fyrir erf- iðleika með tjáningu voru það augun hans og brosið sem sögðu mér allt. Ljóst var mér að milli Leós og Fríðu var sérstakt samband sem og hans og Önnu Birnu. Brosið hans og augun voru hans sterkasta tjáning og þau sögðu mér allt sem segja þurfti. En sterkasta sambandið var greinilega milli milli Leós og Önnu tengdamömmu. Aðdáunarverð var öll umhyggja hennar fyrir honum og það sem hún lagði á sig þannig að honum liði sem best. Þá reyndist Bjössi tengdapabbi konu sinni stoð og stytta við umönnun gamla mannsins og var lipurð hans og natni aðdáunarverð. Ljóst var að milli Leós og Bjössa var sérstakt samband sem byggðist á trausti og eins hafði Bjössi einstakt lag á að ná upp samræðum um gamla tímann. Betri fyrirmyndir er ekki hægt að hafa fyrir okkur hinum og bið ég góðan Guð að styrkja tengdafor- eldra mína á þessum erfiðu tímum. Öðrum aðstandendum votta ég sam- úð mína. Ég þakka Leó fyrir ljúfu sam- verustundirnar og það sem hann var Fríðu minni og börnum. Ármann Óskar Sigurðsson. MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt við- taka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. Birting afmælis- og minningargreina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.