Morgunblaðið - 28.03.2002, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 28.03.2002, Qupperneq 18
Heima- gerður söngleikur um m.a. tekið skyndipróf í algebru og í íslenskutíma var sungið um leshefti, ljóðagerð, orðflokka og vinnubækur einnig um skrift nemenda. Litið var inn á fund þar sem kennarar réðu ráð- um sínum og dansað var í frímínútum. Í tungumálatímum var sungið á ensku og dönsku, en sænskur skipti- nemi olli ýmsum heilabrotum og mis- skilningi í skólanum. Hann var með heimþrá og engar verkjatöflur dugðu við því. Í vandræðum sínum í skólamálum hringdi skólastjórinn í menntamála- ráðherra og þrátt fyrir hríðarspá ætl- aði hann að koma á árshátíðina til FJÖLMENNI var samankomið á árshátíð Stórutjarnaskóla þegar frumsýndur var söngleikurinn Skóla- líf sem nemendur og kennarar sömdu sjálfir. Hátíðin hófst með ávarpi Ólafs Arngrímssonar skólastjóra þar sem hann bauð gesti velkomna og sagði frá því sem í vændum var, en mikil vinna fólst í því að undirbúa sýn- inguna enda höfðu allir nemendur skólans eitthvert hlutverk á sviðinu. Í 15 þáttum var sungið og dansað þar sem fléttað var saman gamni og alvöru hversdagslífsins í náminu. Þarna var sungið um mikilvægt starf skólaliða sem voru fastir við strákústinn og sungið var um tyggjó og fleira sem festist á veggjum og gólfum. Starfsfólk í eldhúsi söng um sín störf og m.a. um það að 10 kíló af kaffi þyrfti í kennarana dag hvern. Þá var slegið á létta strengi í kennslustund- þess að kynna sér há og sívökul mark- mið nemenda. Jaan Alavere tónmenntakennari, einn aðalhöfundur tónlistarinnar, spilaði undir og leikstjóri með honum var Una Kr. Jónatansdóttir kennari. Höfundur margra ljóðatextanna var Sveinn Herjólfsson en aðra texta sömdu kennarar og nemendur í sam- einingu. Afar og ömmur, frændfólk, foreldr- ar og systkini nemenda skemmtu sér mjög vel og að sýningu lokinni var boðið upp á veislukaffi. Svo var stiginn dans og var mjög góður rómur gerður að hátíðinni. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Allir nemendur skólans sungu og dönsuðu. Laxamýri Morgunblaðið/Atli Vigfússon Sungið í heimilisfræðitíma. LANDIÐ 18 FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ meistar inn. is HÖNNUN LIST árinu 2001 en árið áður voru þau tæplega 53 þúsund, en um 2.100 íbúar bæjarins voru virkir lánþeg- ar á árinu. Íbúar bæjarins voru rúmlega 5.500 talsins 1. desember sl. Í anddyri safnins stendur yfir sýning á vegum Héraðsskjalasafns Akraness þar sem saga Akraness árið 1942 er rakin í máli og mynd- um ásamt því að ýmis skjöl eru þar til sýnis. Tilefnið er sextugsafmæli Akraneskaupstaðar á þessu ári og verður sýningin opin til 15. mars nk. Þrátt fyrir tilkomu margmiðl- unartækninnar virðist bóklestur aukast á meðal yngri kynslóð- arinnar en á safninu er einnig hægt að nálgast ýmsar upplýs- ingar og skemmtiefni í gegnum veraldarvefinn í tölvum sem þar eru og auk þess er margs konar margmiðlunarefni á boðstólum. Í SAMANTEKT Bæjar- og héraðs- bókasafnsins á Akranesi fyrir árið 2001 kom í ljós að fjórir af hverj- um tíu íbúum bæjarins notuðu safnið og að meðaltali fékk hver notandi tíu bækur að láni en það er töluverð aukning frá árinu áður. Tæplega 57 þúsund útlán voru á Morgunblaðið/Sigurður Elvar Sindri Snær Gautason, 3 ára, skoðar bók á bókasafninu. Bókin heldur velli hjá Skagamönnum Akranes NÝVERIÐ kom kínversk sendi- nefnd til Austur-Héraðs þeirra er- inda að kynna sér skógrækt svæð- isins. Nefndin kom frá borginni Jilin í norðurhluta Kína, en í henni eru um 4,4 milljónir íbúa og mun hún vera 30. stærsta borg landsins. Kínversku nefndina skipuðu m.a. borgarstjóri Jilin, skógræktarstjóri Jilin-héraðs og forstjóri utanríkismálaskrifstofu. Auk Austur-Héraðs, stóðu að mót- töku nefndarinnar Héraðsskógar, Skógrækt ríkisins og Félag skógar- bænda á Héraði. Björn Hafþór Guðmundsson bæj- arstjóri sagði í samtali við Morgun- blaðið að Kínverjar hefðu haft frum- kvæði að því að leita uppi skógræktarhérað á Íslandi, í gegn- um Samband íslenskra sveitarfé- laga. „Þeirra áhugi á Íslandi beindist að því að komast í samband við sveit- arfélag þar sem skógrækt væri veigamikil eða vaxandi atvinnugrein og mynda jafnvel vinabæjatengsl. Þeir telja sig hafa ýmsan fróðleik að miðla okkur og bentu m.a. á að þeir kynnu að geta ráðstafað fræjum af fljótsprottnum trjátegundum, sem hentuðu vel íslenskum aðstæðum, en landfræðilegar og veðurfarslegar forsendur munu svipaðar í Jilin og á Íslandi. Var að heyra að þeir væru sannfærðir um að geta í einhverjum tilvikum bætt trjábúskap okkar og gert hann ábatasamari.“ Sendinefndin stóð við í sólarhring á Austur-Héraði og var auk viðræðu- funda farið víða um Héraðið og með- al annars tekið hús á Tónlistarskóla Austur-Héraðs, Handverkshúsinu Eik á Miðhúsum, Stofnun Gunnars Gunnarssonar á Skriðuklaustri og Hitaveitu Egilsstaða og Fella. Björn Hafþór segir nefndina leggja áherslu á að íslensk sendi- nefnd komi til Jilin í haust til að kynna sér aðstæður þar, en ekkert liggi fyrir í þeim efnum. „Það er ekk- ert í pípunum um einhver viðskipti, en ég hef látið mér detta í hug að þegar búið verður að stofna hér á Egilsstöðum fræða- og rannsókna- setur, megi bjóða þangað kínversk- um skógræktarmönnum til vísinda- iðkunar.“ Björn Hafþór vísar þar til þess að náðst hefur samkomulag milli Aust- ur-Héraðs og Þróunarstofu Austur- lands, um að starfsmaður Þróunar- stofu gegni starfi verkefnisstjóra við útfærslu hugmynda um fræða- og rannsóknasetur á Egilsstöðum. Skipa á verkefnisstjórn með aðilum frá skógræktargeira og sveitar- stjórn og mun hún hefja störf innan skamms. Slíkt setur yrði að ein- hverju leyti sambærilegt við Nátt- úrurannsóknastöðina við Mývatn og veita vísinda- og fræðimönnum að- stöðu til rannsóknastarfa um lengri eða skemmri tíma. Litið er til húsa- kosts sem áður hýsti sambýli Svæð- isskrifstofu málefna fatlaðra á Aust- urlandi, en stendur nú auður. Sendinefnd frá Jilin í Kína heimsækir Austur-Hérað Kínverjar vilja bæta trjábúskap á Héraði Morgunblaðið/ÁÓ Frá vinstri: Magnús Björnsson, Feng Junlai, Chai Jiyong, Zhang Zhong- bing, Björn Hafþór Guðmundsson, Pei Shuxiang og Wang Qichao. Egilsstaðir SIGURÐUR Bjarnason, for- maður bæjarráðs og for- maður byggingarnefndar, tók formlega í notkun þrjár nýjar íbúðir aldraðra í Þor- lákshöfn. Sigurður afhenti þá Guðna Karlssyni og Fjólu Ólafsdóttur lyklana að íbúð- um sem þau hafa fest kaup á. Í þessum áfanga voru full- gerðar þrjár íbúðir, fyrir voru átta íbúðir en þær eru allar tengdar saman með yf- irbyggðri göngugötu. Arki- tektarnir Þorsteinn Geirharðsson og Geirharð Þorsteinsson eru hönnuðir bygginganna, Sæmundur Gíslason er verktaki og Sigurður Jónsson bæjartæknifræðingur sá um eftirlit. Fyrirhugað er að í næsta áfanga verði byggð parhús með bílskúrum og aukið við þjónustuálmuna. Sig- urður sagði að fyrsta skóflustunga hefði verið tekin 17. mars 2001 og hafa framkvæmdir, sem kostuðu 51 milljón, gengið vel. Hjörleifur Brynj- ólfsson oddviti flutti ræðu og sagði það mál manna að uppbygging öldr- unarþjónustu í Þorlákshöfn hefði tekist vel, en átakinu yrði að halda áfram því búast mætti við að fjöldi aldraðra tvöfaldaðist á næstu tíu ár- um. Séra Baldur Kristjánsson sókn- arprestur blessaði framkvæmdir og bað íbúum allrar blessunar. Að lokum söng karlakór Hreppa- manna. Íbúðir aldraðra Egilsbraut 9 Þrjár nýjar íbúðir teknar í notkun Þorlákshöfn Sigurður Bjarnason, forseti bæjarráðs og formaður byggingarnefndar, afhendir Guðna Karlssyni og Fjólu Ólafsdóttur lykla að íbúðum sínum. Morgunblaðið/ Jón H. Sigurmundsson UNG hjón á Dalvík tóku sig til fyrir nokkru og opnuðu sveitakrá að Böggvisstöðum skammt sunnan Dal- víkur. Þetta eru þau Kristín Hjálm- arsdóttir og Steinar Agnarsson og nefna þau krána Böggver. Góð aðstaða er til að taka á móti rúmlega hundrað manns á staðnum. Framtaki þeirra hefur verið vel tekið og er fólk í byggðarlaginu ánægt með að geta komið saman á slíkum stað, þar sem hægt er að fá sér drykk og snúning. Enn sem komið er hefur Böggver ekki aðstöðu til matsölu. Sveitakráin Böggver opnuð Dalvíkurbyggð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.