Morgunblaðið - 28.03.2002, Page 30
FRÉTTIR
30 FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
hefur kynnt stefnuskrá flokksins
vegna borgarstjórnarkosninganna í
vor. Einkunnarorð kosningabarátt-
unar eru Reykjavík í fyrsta sæti.
Stefnuskráin er birt hér í heild:
Reykjavík er góð borg - en hún
gæti verið betri! Hvar gæti verið
hagstæðara, öruggara og skemmti-
legra að búa en í Reykjavík? Hvar
gæti uppbygging atvinnulífs verið
öflugri? Hvar gæti verið meira úrval
af byggingarlóðum? Hvar gætu dag-
vistar- og skólamál verið í betra lagi?
Hvar gæti öryggi borgaranna verið
meira? Hvar gætu skattar og álögur
verið lægri? Hvar gæti rekstur sveit-
arfélags verið hagkvæmari? Hvar
gæti verið búið betur að eldri borg-
urum eða þeim sem minna mega sín?
Hvar gætu framkvæmdir til eflingar
menningarlífs verið meiri?
Svarið við þessum spurningum er
einfalt. Það ætti hvergi að vera betra
að búa en í Reykjavík. Reykjavík á
að vera í fyrsta sæti en hefur um
stundarsakir tapað forystuhlutverki
sínu. Því vilja allir Reykvíkingar
breyta.
Við ætlum að setja nýjan kraft í
borgarlífið. Við ætlum að gera
borgina aftur að miðstöð menn-
ingar og þjónustu, höfuðborg, sem
vekur stolt borgarbúa og allra Ís-
lendinga. Borg sem stenst alþjóð-
legan samanburð og styrkir sam-
keppnisstöðu þjóðarinnar. Við
ætlum að treysta fjárhagsstöðu
Reykjavíkur með hagræðingu og
sparnað í rekstri að leiðarljósi. Við
ætlum tryggja öryggi íbúanna og
stuðla að því að þeim líði vel í borg-
inni sinni. Við ætlum að lækka
skatta, sérstaklega á eldri borg-
ara. Við ætlum að bjóða reykvísk-
um börnum bestu menntun. Við
ætlum að gera miðborgina fjöl-
skylduvæna og fallega. Við ætlum
að setja Reykjavík í fyrsta sæti.
Betri menntun
fyrir börnin okkar
Sjálfstæðisflokkurinn mun efna til
stórátaks í menntamálum með því að
tryggja reykvískum börnum í leik-
og grunnskólum bestu menntun sem
völ er á. Skólinn er hjartað í hverju
hverfi borgarinnar, miðstöð mennta
og menningar.
Við ætlum að eyða biðlistum við leik-
skóla.
Við ætlum að veita öllum börnum 18
mánaða og eldri rétt á leikskóla-
plássi.
Við ætlum að styrkja fleiri úrræði í
leikskólarekstri, meðal annars
með því að tryggja öllum leik-
skólabörnum sama styrk frá borg-
inni hvort sem þau dvelja á einka-
reknum eða borgarreknum
leikskólum.
Við ætlum að efla dagforeldrakerfið
fyrir yngstu börnin með auknum
sveigjanleika og skilvirkara eftir-
liti.
Við ætlum að efla innra starf leik-
skólanna með því að bjóða þar val-
fög sem tengjast listsköpun,
hreyfingu, tjáningu eða öðru og
með því að hefja undirbúnings-
kennslu í grunnfögum á síðasta ári
leikskólans.
Við ætlum að tryggja öflugt, sjálf-
stætt eftilit með starfi leik- og
grunnskóla. Rekstrar-
skrifstofur leik- og
grunnskóla verða sam-
einaðar og fagleg ráð-
gjöf tryggð, meðal
annars í samvinnu við
háskóla- og vísinda-
stofnanir og með heimsóknum
fremstu sérfræðinga á alþjóða-
mælikvarða.
Við ætlum að tryggja faglega sam-
fellu á milli leik- og grunnskóla-
stigsins í þeim tilgangi að upplýs-
ingar um sértæka námsörðugleika
nemenda flytjist með nemendum á
milli skólastiga.
Við ætlum að þróa betur samstarf
leik- og grunnskóla og hefja til-
raun með það að heimila 5 ára
börnum að fara í grunnskóla.
Við ætlum að efla samstarf skóla-
stjórnenda, kennara, foreldra og
nemenda með því að skipta borg-
inni í skólahverfi. Við ætlum að
skipa 4-5 skólaráð með fulltrúum
þessara aðila í stað
fræðslu- og leikskóla-
ráða um málefni leik-
og grunnskóla.
Við ætlum að gefa for-
eldrum tækifæri til að
velja grunnskóla fyrir
börnin sín, án tillits til
búsetu.
Við ætlum að tryggja
samfellu á milli skóla-
starfs og þátttöku
nemenda í íþrótta- og
tónlistarlífi.
Við ætlum að gefa öllum
grunnskólabörnum
kost á heitum máltíð-
um í hádeginu.
Við ætlum að koma betur
til móts við afburða-
nemendur og útfæra
stefnu um sérkennslu í samráði við
skólafólk og foreldra. Við viljum að
komið verði upp samræmdum
mælikvörðum til að kanna líðan
grunnskólanemenda.
Við ætlum að efla upplýsingatækni í
skólum, til dæmis með því að
tryggja öllum kennurum afnot af
fartölvum.
Við ætlum að jafna samkeppnisstöðu
einkarekinna og borgarrekinna
grunnskóla.
Við ætlum að auka öryggi barna í
skólum og á skólalóðum.
Við ætlum að gæta hagkvæmni við
byggingu nýrra skóla og efla sam-
starf við einkaaðila í því skyni að
styrkja alla þætti skólastarfsins.
Við ætlum að jafna samkeppnisað-
stöðu tónlistarskólanna og taka
skipulega á málefnum tónlistar-
fræðslunnar, bæði innan grunn-
skólans og tónlistarskólanna.
Við ætlum að efla samstarf á milli
grunnskóla og íþróttahreyfingar-
innar og auka samvinnu á milli
grunnskóla og ÍTR þegar skóla
lýkur á vorin.
Við ætlum að nýta svigrúmið innan
núgildandi kjarasamnings kenn-
ara til að útfæra ákvæði um árang-
urstengingu launa og leggja
áherslu á að skólar setji mæli-
kvarða á það hvernig meta megi
hæfni kennara í starfi.
Við ætlum að tryggja að öllum nem-
endum í Reykjavík, án tillits til
uppruna, trúarbragða eða litar-
háttar, sé sköpuð sem best aðstaða
og öryggi.
Við ætlum að efla frumkvæði borg-
arinnar í málefnum framhalds-
skólanna í Reykjavík
og finna sem fyrst lóðir
undir Menntaskólann
við Sund og Kvenna-
skólann í Reykjavík.
Við ætlum að búa vel að
háskólum í Reykjavík
og hlúa að vísindastarfsemi með
stuðningi við þekkingarþorp.
Betra líf fyrir
eldri borgara
Sjálfstæðisflokkurinn vill hlúa vel
að eldri borgurum og tryggja að hag
þeirra verði sem best borgið.
Við ætlum að stórlækka fasteigna-
skatta á íbúðarhúsnæði 67 ára og
eldri, sem þeir eiga og búa í. Við
ætlum að hækka tekjuviðmið
vegna niðurfellingar um 50%.
Þannig fjölgar þeim verulega sem
greiða enga fasteignaskatta og
holræsaskatta og einnig þeim sem
fá 80% eða 50% niðurfellingu.
Við ætlum að eyða biðlistum eftir
hjúkrunarrýmum fyrir eldri borg-
ara. Við ætlum að efna til sérstaks
átaks í þessum málaflokki á kjör-
tímabilinu í samvinnu við ríkis-
valdið, lífeyrissjóði og sjúkrasjóði
og verja milljarði til að mæta
brýnni þörf þessa hóps.
Við ætlum að auka samráð og sam-
starf við félög og samtök eldri
borgara.
Betri úrræði
í félagsmálum
Sjálfstæðisflokkurinn vill tryggja
afkomu þeirra sem þurfa á aðstoð
borgarinnar að halda.
Við ætlum að stórlækka fasteigna-
skatta á íbúðarhúsnæði öryrkja,
sem þeir eiga og búa í. Við ætlum
að hækka tekjuviðmið vegna nið-
urfellingar um 50%. Þannig fjölgar
þeim verulega sem greiða enga
fasteignaskatta og holræsagjöld
og einnig þeim sem fá 80% eða
50% niðurfellingu. Þetta mun auð-
velda öryrkjum að búa sem lengst í
eigin húsnæði, stuðla að öryggi
þeirra og koma til móts við óskir
þeirra og þarfir.
Við ætlum að leysa húsnæðisvanda
þeirra fjölskyldna sem búa í dag
við óviðunandi aðstæður og eru á
biðlistum eftir félagslegu húsnæði.
Við ætlum áfram að beita okkur fyrir
því að Alþingi samþykki breyting-
ar á húsnæðislöggjöfinni sem
heimila sölu á félagslegum eignar-
íbúðum með kaupskylduákvæðum.
Betri staða í fjármálum
Sjálfstæðisflokkurinn mun treysta
fjárhagsstöðu Reykjavíkur með hag-
ræðingu og sparnað í rekstri að leið-
arljósi.
Við ætlum að lækka fasteignagjöld
verulega, bæði á fólk og fyrirtæki,
með því að afnema holræsaskatt-
inn.
Við ætlum að draga úr skuldasöfnun
með hagræðingu og sparnaði í
rekstri og tilfærslu verkefna frá
borg til einkaaðila og félagasam-
taka.
Við ætlum að bjóða út þjónustu borg-
arinnar til að auka hagkvæmni.
Við ætlum að selja fyrirtæki í eigu
borgarinnar sem standa í sam-
keppnisrekstri við einkafyrirtæki.
Við ætlum að selja hlut Reykjavík-
urborgar í Línu.Neti.
Við ætlum að leggja áherslu á nú-
tímalega stjórnunarhætti með því
að einfalda stjórnsýslu og minnka
miðstýringu.
Við ætlum að stytta boðleiðir og
fækka milliliðum.
Við ætlum að auðvelda borgarbúum
aðgengi að þjónustu
borgarinnar og efla
alla upplýsingagjöf
til borgarbúa.
Við ætlum að fram-
kvæma reglubundið
og sjálfstætt eftirlit
með fjárreiðum og
stjórnsýslu borgar-
sjóðs og stofnana þar
sem eignaraðild
Reykjavíkurborgar
er meiri en 50%.
Betri kostir
í skipulagsmálum
Sjálfstæðisflokkur-
inn mun treysta byggð í
borginni og tryggja að
fólk og fyrirtæki sem
vilja búa þar og starfa
eigi þess kost.
Við ætlum að tryggja nægar lóðir í
borginni, bæði fyrir fólk og fyrir-
tæki og afnema lóðauppboð.
Við ætlum að beita okkur fyrir var-
anlegri niðurstöðu um flugvallar-
málið með viðræðum við ríkisvald-
ið og aðra hagsmunaaðila um
skipulag í Vatnsmýrinni og fá þar
aukið landrými undir blandaða
byggð, án þess að vegið verði að
flugöryggi eða gengið gegn hags-
munum Reykjavíkur og lands-
byggðarinnar í samgöngumálum.
Við ætlum að haga gatnagerðar-
gjöldum eða söluverði lóða í sam-
ræmi við kostnað borgarinnar við
gerð nýrra byggingarsvæða.
Við ætlum að leggja áherslu á
strandbyggð og að skipuleggja
blandaða byggð á Geldinganesi,
Gufunesi og Gunnunesi, auk
íbúðabyggðar á landsvæði Keldna.
Við ætlum að skipuleggja íbúða-
byggð á Kjalarnesi og viljum
blandaða byggð í Norðlingaholti.
Við ætlum að nýta SVR-lóðina við
Kirkjusand undir íbúðabyggð og
heimila blandaða byggð við
Dugguvog.
Við ætlum ekki að styðja landfyll-
ingu á Eiðisgranda.
Betri miðborg
Sjálfstæðisflokkurinn vill með öfl-
ugu átaki treysta mannlíf í miðborg-
inni og gera hana fjölskylduvæna á
ný.
Við ætlum með öflugu átaki að
treysta mannlíf í miðborginni og
gera hana fjölskylduvæna á ný.
Við ætlum að hreinsa til í miðborg-
inni.
Við ætlum að hefja mark-
visst uppbyggingar-
starf í miðborginni, t.d.
með því að tryggja að
friðunaráform komi
ekki í veg fyrir eðlilega
uppbyggingu og þróun.
Við ætlum að sætta sjónarmið frið-
unar og uppbyggingar í gamla
miðbænum á raunhæfan og mark-
vissan hátt með samhæfðri heild-
arskipulagningu svæðisins.
Við ætlum að leggja áherslu á að
fjölga íbúum í miðborginni og
treysta forsendur verslunar og
annarrar atvinnustarfsemi.
Við ætlum að treysta stoðir miðborg-
arinnar með þekkingarþorpi á
suðurvæng hennar í Vatnsmýrinni
og ráðstefnu- og tónlistarhúsi á
norðurvæng hennar við höfnina.
Við ætlum að tryggja öryggi borg-
aranna með þjónustusamningi við
lögregluyfirvöld eða öðrum nauð-
synlegum aðgerðum. Við ætlum
að setja á laggirnar miðborgar-
deild í samvinnu við lögregluyfir-
völd, félagasamtök og hagsmuna-
aðila.
Við ætlum ekki að raska Víkur-
kirkjugarði til að tryggja aðgang
að fornminjum við Aðalstræti.
Við ætlum að tryggja næg bílastæði í
miðborginni og afnema stöðu-
mælagjöld þegar bílum er lagt í
skamman tíma.
Við ætlum að endurskilgreina sam-
starf við hagsmunaaðila og hugs-
anlega fjárfesta í tengslum við
framtíðaruppbyggingu miðborg-
arinnar. Við ætlum að setja á lagg-
irnar nýtt miðborgarfélag með
nýju umboði og ábyrgð.
Við ætlum að koma á fót betri hrein-
lætis- og salernisaðstöðu fyrir al-
menning í miðborginni og auka
lýsingu gatna og mannvirkja.
Við ætlum í samráði við rekstrar-
aðila að flytja nektardansstaðina
út fyrir miðborgarmörkin.
Við ætlum að kanna forsendur fyrir
rekstri miðborgarstrætós sem
tekur 20-25 manns í sæti.
Betri skilyrði
í atvinnumálum
Sjálfstæðisflokkurinn vill tryggja
að Reykjavík verði á ný í forystu í
þjónustu, verslun og viðskiptum.
Við ætlum að laða fyrirtæki til borg-
arinnar með því að skapa þeim
góðar aðstæður, góð rekstrarskil-
yrði og bjóða þeim hentugar lóðir
fyrir starfsemi sína.
Við ætlum að treysta forsendur
verslunar, þjónustu og viðskipta,
sérstaklega í miðborg Reykjavík-
ur.
Við ætlum að skapa kjöraðstæður
fyrir sprotafyrirtæki og nýsköpun
á öllum sviðum.
Við ætlum að gera Reykjavík að
þekkingarborg þar sem vel er búið
að háskólum og fyrirtækjum á
sviði rannsókna og vísinda. Við
ætlum að skapa sjálfstætt starf-
andi vísindamönnum góða starfs-
aðstöðu í Reykjavík.
Við ætlum að stækka athafnasvæði á
Esjumelum og við Hallir.
Við ætlum að efla starfsmenntun
fyrir ungt fólk á aldrinum 15-18
ára í samstarfi við atvinnufyrir-
tæki í borginni og efla starfsemi
Vinnuskólans fyrir grunnskóla-
nema.
Við ætlum að skapa aðstæður fyrir
gróskumikið alhliða menningarlíf
og -starf.
Við ætlum að skipa Reykjavík í
fremstu röð borga við nýtingu
upplýsingatækni á öllum sviðum
og auka þar með samkeppnis-
hæfni hennar.
Betra lista-
og menningarlíf
Sjálfstæðisflokkurinn vill beita
sér fyrir því að Reykjavík verði al-
þjóðleg höfuðborg menningar í
fremstu röð.
Við ætlum að ýta undir starfsemi
sjálfstæðra menningarhópa í
sviðslistum og tónlist og stuðla að
því að verk myndlistarmanna njóti
sín í borginni.
Við ætlum að tryggja öflug bókasöfn
sem nýti upplýsingatækni með
virkum hætti og veiti
fjölþætta þjónustu.
Við ætlum að efla safn-
astarf í borginni með
því að nýta sem best
aðstöðu og eignir
borgarinnar, til dæmis
með sjóminjasafni á svæðinu í
kringum Slippinn, náttúruminja-
safni í Perlunni og aðstöðu til lista-
starfsemi að Korpúlfsstöðum.
Við ætlum að efla Miklatúnið sem
útivistar- og menningarsvæði fyr-
ir fjölskyldur og tengja það Kjar-
valsstöðum og lista- og menning-
arstarfsemi þar.
Við ætlum að fjölga tækifærum
menningarstofnana til að afla sér-
tekna og hvetja til aukins sam-
starfs við skóla og fyrirtæki. Við
ætlum að setja skýrari leikreglur í
styrkveitingum til menningar-
mála. Við ætlum að leggja áherslu
á að styrkja listamenn beint og
milliliðalaust.
Sjálfstæðisflokkurinn kynnir stefnuskrá fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor
Ætlum að setja
nýjan kraft
í borgarlífið
Borgin
verði öruggari
fyrir íbúana
Miðborgin
verði
byggð upp