Morgunblaðið - 02.04.2002, Qupperneq 34
FÓLK Í FRÉTTUM
34 ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
! "
#$%
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4507-4500-0030-3021
4507-2800-0001-4801
4507-4500-0030-6412
4507-4500-0030-6776
4507-2900-0005-8609
! "#
"$%&'
()( )$$$
!
"#
$$!
!
%
!
&&$
$'((!
)
*
+,
*
-
'.!
/$0!
!
1
# 333! !
)2
4
5!
#
.!
!
$0!((!
0!
!
'(!((
6 &!
!
$0!((
7!
!
$8!((
!
"##$%%%
&'()"*#+,#$-
""%$$,.( /0
sýnir í Tjarnarbíói söngleikinn
eftir Þórunni Guðmundsdóttur
9. sýn. lau 6. apríl
10. sýn. fös 12. apríl
Fáar sýningar eftir
Sýningar hefjast kl. 20.00.
Miðapantanir allan sólarhringinn
í síma 551 2525
eða með tölvup. á hugleik@mi.is
Miðasala opin alla sýningardaga
frá kl. 19.00.
KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel
Leikgerð: Guðrún Vilmundard. og Hilmar Jónss.
Frumsýning 12. apr kl 20 - UPPSELT
2. sýn su 14. apr kl 20 - ÖRFÁ SÆTI
3. sýn lau 20. apr kl 20 - ÖRFÁ SÆTI
BOÐORÐIN 9 eftir Ólaf Hauk Símonarson
Lau 6. apr kl 20 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 13. apr kl 20 - ÖRFÁ SÆTI
Su 21. apr kl 20 - LAUS SÆTI
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Su 7. apr kl 20 - NOKKUR SÆTI
Fö 26. apr kl 20 - LAUS SÆTI
ATH: Síðustu sýningar
AND BJÖRK OF COURSE ...
e. Þorvald Þorsteinsson
Frumsýning su 7. apr kl. 20 - UPPSELT
2. sýn fi 11. apr kl. 20 - NOKKUR SÆTI
FYRST ER AÐ FÆÐAST e. Line Knutzon
Fi 4. april kl. 20 - UPPSELT
Fö 12. apr kl 20 - LAUS SÆTI
JÓN GNARR
Fö 5. apr kl. 20 - LAUS SÆTI
PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler
Fö 5. apr kl 20 - ÖRFÁ SÆTI
Su 21. apr kl 20 - Ath. br.sýn.tíma
CAPUT Tónleikar
Ferðalög: Æska handan járntjalds
Lau 6. apr kl. 15.15.
GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt
Fö 5. apr kl 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 6. apr kl 20 - NOKKUR SÆTI
Fö 12. apr kl 20 - LAUS SÆTI
Stóra svið
Nýja sviðið
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Litla sviðið
Á SKÍRDAG var frumsýnd ný ís-
lensk kvikmynd, Reykjavík Guest-
house, sem er eftir þrjá unga Reyk-
víkinga. Björn Thors og Unnur Ösp
Stefánsdóttir eru handritshöfundar
og leikstjórar og Börkur Sigþórsson
sér um kvikmyndatökuna.
Svona í samræmi við það fengu
þau ungt og upprennandi tónskáld til
liðs við sig, Daníel Bjarnason, sem
semur alla tónlistina við kvikmynd-
ina. Daníel er útskrifaður í klassísk-
um píanóleik frá Tónlistarskóla FÍH,
og stundar nú nám við tónfræðideild
Tónlistarskólans í Reykjavík þar
sem hann fæst aðallega við tónsmíð-
ar.
„Sumarið 2000 vann ég með fjöl-
listahópi og við settum m.a. upp
dans- og leikhússýningu í ÍR húsinu
sáluga, þar sem ég samdi tónlistina
ásamt Pétri Þór Benediktssyni fé-
laga mínum. Unnur og Bjössi sáu þá
sýningu, og þegar ég hitti þau í
Kaupmannahöfn seinna um sumarið
fórum við að ræða þetta og slógum
því síðan á fast um jólin,“ útskýrir
Daníel þegar hann er að því spurður
hvernig hann kom inn í verkefnið
Reykjavík Guesthouse.
„Myndin gerist á fjórum dögum og
fjallar um gistihúseigandann Jóhann
sem er nýbúinn að missa pabba sinn.
Hann hefur lokað gistiheimilinu og
smátt og smátt hverfur hann meira
inn í sig. Hann kynnist síðan Finni,
litlum strák sem er líka einmana sál.
Þeir ná saman og sagan er um sam-
band þeirra.“
– Varstu búinn að lesa handritið
þegar þú ákvaðst að gera þetta?
„Nei, ég sá búta úr myndinni og
heyrði handritið á mæltu máli, en
mig hafði lengi langað að gera kvik-
myndatónlist.“
– Hvernig tónlist fannst þér passa
við söguna?
„Ég ákvað strax að hafa tónlistina
frekar einfalda með fáum hefðbundn-
um, hljóðfærum sem væru ekki of
uppáþrengjandi en gætu túlkað
breiðan tilfinningaskala. Ég valdi
strengjakvintett og þverflautu.“
– Geturðu lýst tónlistinni?
„Hún er misjöfn í rauninni bæði
húmorísk og dramatísk, þegar það á
við. Þetta er svona nútíma klassísk
kvikmyndatónlist.“
Mismunandi stemning
– Hvað fannst þér flóknast við ferl-
ið?
„Það var langsamlega flóknast að
ákveða hvar ætti að vera tónlist og
hvar ekki, en ég fékk alveg frjálsar
hendur með það, síðan að ákveða
hvernig tónlistin ætti að vera og
halda henni stílhreinni en með mis-
munandi stemningu.“
– Já, ég skal trúa þessu með þögn-
ina.
„Ég horfði á myndina og punktaði
hjá mér hvar ég vildi hafa tónlist. Á
endanum setti ég tónlist bara á helm-
inginn af þeim stöðum. Það kom í ljós
að oft er þögnin betri. Þetta er spurn-
ing um jafnvægi.“
– Tók þetta langan tíma?
„Ég var ekki nema þrjár vikur að
skrifa tónlistina en var búinn að
hugsa mikið um þetta. Síðan æfðum
við í tvo daga og tókum upp í tvo
daga. Þetta gekk mjög vel því ég var
með frábæra hljóðfæraleikara og frá-
bæran upptökumann.“
– Horfðuð þið á myndina við upp-
tökurnar?
„Nei, ég var búinn að tímasetja
alla tónlistina svo þess þurfti ekki.
Mæla hversu hröð hún þyrfti að vera
til að passa nákvæmlega við atriðið,
svo tókum við bara púlsinn við upp-
tökurnar.“
Svolítið ævintýri
Kærastan hans Daníels er Gyða
Valtýsdóttir sem er að læra sellóleik
við Listaháskólann, en þau sömdu
saman lokalagið. Hvernig gekk það?
„Það gekk á ýmsu,“ segir Daníel
og hlær. „En það leystist samt far-
sællega. Það tók langan tíma og við
unnum það með hléum. Margir vinir
okkar hjálpuðu okkur. Þetta var svo-
lítið ævintýri.“
– Er lagið allt öðruvísi en hin tón-
listin?
„Já, það er talsvert ólíkt, það inni-
heldur þó stef úr myndinni en við
notum önnuð hljóðfæri og svo er
sungið.“
– Hver syngur?
„Við Gyða.“
– Ertu núna forfallið kvikmynda-
tónskáld?
„Nei, ég ætla bara að takast á við
það sem er spennandi hverju sinni,
kvikmyndir, leikhús eða hvað sem er.
Núna er ég að skrifa verk fyrir djass-
kvartett og kammerhljómsveit. Verk-
ið verður líklega flutt í lok maí á veg-
um djassklúbbsins Ormslev,“ segir
tónskáldið fjölhæfa Daníel Bjarnason.
Oft er þögnin betri
Ungt tónskáld á uppleið semur tónlistina við nýj-
ustu íslensku bíómyndina. Daníel Bjarnason skýrði
Hildi Loftsdóttur frá sköpunarferlinu.
Daníel og félagar við upptöku
á tónlist myndarinnar.
Reykjavík Guesthouse frumsýnd
hilo@mbl.is
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111