Morgunblaðið - 02.04.2002, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 2002 35
betra en nýtt
Nýr og glæsilegur salur
Ísle
nsk
t
tal
Sýnd kl. 4 og 6. Íslenskt tal.
Sýnd kl. 10.10 Enskt tal.Sýnd kl. 8 og 10.30.
Sýnd kl. 3.40, 5.50 og 8.
SÍMI 564 0000 - www.smarabio.is
Miðasala opnar kl. 13
1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 8 og 10. B.i 16 ára.
Sýnd kl. 2, 3, 4 og 6. Íslenskt tal.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Enskt tal.
Fór beint á toppinn í Bandaríkjunum
Frá höfundum Braveheart og Pearl Harbor
Sannsöguleg stórmynd um eina blóðugustu orrustu
Bandaríkjahers í Dauðadalnum í Víetnam. Mel Gibson
fer á kostum í einni öflugustu mynd ársins!
Heimsfrumsýning á sýnishorni
Lord of the Rings II - Two Towers
4 Besta kvikmyndatakaBestu tæknibrellurBesta förðunBesta tónlist
Leysigeislasýning í sal 1 á undan myndinni
DV
Sérstök leysigeislasýning í sal 1
fyrir yngri kynslóðina
Sýnd kl. 4.45. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 2, 5, 8 og 11. B. i. 16.
Sýnd í LÚXUS kl. 4, 7 og 10.
Sýnd kl. 5.45. B.i. 12. Vit 335.
Sýnd kl. 8 og 10. Vit nr. 357. Sýnd kl. 8 og 10. B.i.12 ára. Vit nr. 356.
Sýnd kl. 6. Ísl tal. Vit nr. 358
FRUMSÝNING
4
Óskarsverðlaun
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
Sýnd kl. 8 og 10. B.i.12 ára. Vit nr. 356.Sýnd kl. 8 og 10. Vit nr. 357.
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
KVIKMYNDAGERÐARMAÐURINN Billy
Wilder er látinn, 95 ára að aldri. Wilder er ein-
hver allra virtasti leikstjóri og handritshöf-
undur kvikmynda sem sögur fara af, vann til
sex Óskarsverðlauna og skilur eftir sig mynd-
ir á borð við Double Indemnity, Some Like It
Hot, The Apartment og Sunset Boulevard.
Banamein Wilders var lungnabólga. Hinir
fjölmörgu samferðarmenn hans, samstarfs-
fólk og aðdáendur hafa yfir páskana minnst
Wilders og afreka hans. „Hann á eftir að
skrifa og leikstýra enn einu meistaraverkinu
sínu á himnum,“ sagði Shirley MacLaine, sem
lék í nokkrum mynda Wilders þ.á m. The Ap-
artment og Irma La Douce. „Ég lærði meira
af honum en nokkrum öðrum.“ Leikstjórinn
Cameron Crowe, sem á að baki myndir á borð
við Jerry Maguire og Vanilla Sky, var mikill
unnandi Wilders og átti við hann yfirgrips-
mikið spjall sem gefið hefur verið út: „Myndir
Wilders eru á alheimstungumáli ástar, greind-
ar og oddhvassrar hnyttni. Það geta allir
kvikmyndaunnendur, sem og allir aðrir sem
vilja lifa lífinu með reisn, tekið sér Wilder til
fyrirmyndar.“
Samuel Wilder fæddist í Austurríki. Hann
var af gyðingum kominn og flúði því undan
nasistum 1933. Þegar hann kom til Bandaríkj-
anna var hann slyppur og snauður en með
hæfileika og vilja að vopni vann hann sig á
skömmum tíma til metorða í Hollywood, fyrst
og fremst sem handritshöfundur.
Hann leikstýrði sinni fyrstu kvikmynd árið
1942, hinni lítt þekktu Major and the Minor og
tveimur árum síðan kom ein af hans þekkt-
ustu myndum, rökkursnilldin Double Indemn-
ity. Fylgdu þær síðan hver af annarri, þannig
að þegar hann stóð í hinsta sinn upp úr leik-
stjórastólnum árið 1981 eftir að hafa lokið við
gerð Buddy Buddy – með góðvinum sínum
Jack Lemmon og Walter Matthau í aðal-
hlutverkum sem oft áður – hafði hann leik-
stýrt hátt á fimmta tug mynda. Eftir hann
standa hinsvegar 69 handrit sem hann skrif-
aði nær öll í samvinnu við aðra sökum tungu-
málaörðugleika sinna en þá hálfu öld sem
hann bjó vestanhafs náði þessi þýskumælandi
maður aldrei almennilegum tökum á ensk-
unni. Wilder var mikill sögumaður og fjallaði
gjarnan um myrkrahliðar bandaríska sam-
félagsins. Efnistökin voru þó það lúmsk og
háðið það snjallt að myndir hans urðu aldrei
meiðandi heldur boðuðu von um betri tíð og
lögðu til lausnir, ólíkt flestum öðrum myndum
er tóku á erfiðum samfélagsmeinum.
Wilder varð fyrsti leikstjórinn til þess að
vinna þrenn Óskarsverðlaun fyrir sömu mynd
þegar The Apartment færði honum Óskar
sem framleiðandi, leikstjóri og handritshöf-
undur árið 1961, sem einungis Francis Ford
Coppola og James L. Brooks hafa leikið eftir,
sá fyrrnefndi fyrir aðra Guðföðurmyndina og
síðarnefndi Terms of Endearment. Wilder
fékk sín fyrstu Óskarsverðlaun 1946 þegar
hann hlaut tvenn fyrir The Lost Weekend,
sem leikstjóri og handritshöfundur. Þriðju
verðlaunin bættust svo í safnið 1951 þegar
handrit hans og Diamond að Sunset Boulev-
ard var útnefnt. Alls hlaut Wilder 21 tilnefn-
ingu til Óskarsverðlauna á 6 áratuga löngum
ferli sínum.
Wilder lætur eftir sig eiginkonuna Audrey
Young, fyrrum leikkonu og söngkonu, og
dótturina Judith sem hann eignaðist í fyrra
hjónabandi.
Fleiri meistara-
verk á himnum
ReutersBilly Wilder
Billy Wilder 1906–2002
www.laugarasbio.is
7Tilnefningar til Óskarsverðlauna
Gullmoli
sem
enginn
ætti að
missa af
Sýnd kl. 5.30 og 10.35.Sýnd kl. 8 og 10. 40. B. i. 16.
HK. DV
Kvikmyndir.com
SV. MBL
Sýnd kl. 4 og 6. Íslenskt tal.
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 3, 5.30 og 8.
ER ANDI Í GLASINU?
Vinahópur ákveður að fara í andaglas.
Eitthvað fer úrskeiðis
og nú er eitthvað á eftir þeim...
Nýjasta sýnishornið af Star Wars EP2 sýnt á undan myndinni
½Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
MBL
DV
Kvikmyndir.com
ÓSKARSVERÐLAUN
Besta frumsamda
handrit
2 ÓSKARSVERÐLAUN
Besta klipping
Besta hljóð
Páskamynd 2002
Vinsælasta geimvera allra tíma er komin aftur á
hvíta tjaldið. 20 ára afmælisútgáfa með betri
hljóð og myndgæðum, betri tæknibrellum og
nýjum atriðum sem aldrei hafa sést áður.
skarpi@mbl.is